Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 69
Halla Vilhjálmsdóttir leitar að vinnu í
London þessa dagana. Hún söng nýlega lag
inn á plötu Geirs Ólafs.
„Það er eiginlega óráðið. Ég er að skoða málin enda
er tiltölulega stutt síðan staðfest var að ekki yrði af
framleiðslu þáttanna,“ segir fyrrverandi X-factor-
kynnirinn Halla Vilhjálmsdóttir um hvað hún hyggist
taka sér fyrir hendur. Pálmi Guðmundsson, sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2, sagði nýverið í viðtali við
Fréttablaðið að ekki væri víst að X-factor-þátturinn
yrði að veruleika á þessu ári en þar var ætlunin að
frægir Íslendingar reyndu fyrir sér í söng í þágu
góðs málefnis.
Halla hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur undan-
farið. „Ég var til dæmis að syngja dúett með Geir
Ólafs á nýju plötunni hans. Mér finnst gaman að gera
hitt og þetta og ætla ekki að festa mig í leikhúsi alveg
strax. Í þessum töluðu orðum er ég á leið út á flug-
völl. Nú ætla ég að vera með listrænt útibú í London.
Reyndar átti ég flug í morgun en var svo upptekin að
taka til langt fram á nótt að ég svaf yfir mig og missti
af vélinni,“ segir Halla og hlær. „Ég er alltaf með
annan fótinn þar og ætla að athuga hvort einhver vill
ráða mig í vinnu.“ Hingað til hefur ekki verið skortur
á því en Halla starfaði hjá sjónvarpsstöðvunum BBC
og ITV áður en hún flutti til Íslands og hafnaði fyrr á
árinu hlutverki í söngleiknum Eurobeat sem settur
verður upp á West End. „Ég skrapp út og sá verkið
um daginn. Það var þrælskemmtilegt og fékk frá-
bæra dóma. Ég neita því ekki að ég fékk pínu í mag-
ann og hugsaði að það hefði nú kannski verið gaman
að vera með.“
Gefðu þér færi á brosi
24. september, því þá
drögum við út 30
milljónamæringa.
Fáðu þér miða á hhi.is
eða í síma 800 6611.
Það tekur enga stund.
Nú brosa 2.915
vinningshafar breitt eftir
síðasta útdrátt,
en þá eru þeir orðnir
25.859 á árinu.