Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 73
Í kvöld hefst keppni í
N1-deild kvenna með tveimur
leikjum. Grótta tekur á móti HK
og Haukar fara í heimsókn til
Framara. Í vikunni var spáð fyrir
um lokastöðu deildarinnar og kom
fáum á óvart að Íslandsmeisturum
Stjörnunnar var spáð titlinum.
Haukum var spáð öðru sæti en
þjálfari liðsins, Díana Guðjóns-
dóttir, sagðist fara í alla leiki til að
vinna og stefna því ótrauð á topp-
inn með liðið.
„Mér líst vel á veturinn,“ sagði
Díana. „Við höfum bætt við okkur
þremur leikmönnum og er því
með meiri breidd en var í hópnum
í fyrra. Ég vonast til að fara langt
á því.“
Hind Hannesdóttir er komin til
Hauka frá Stjörnunni, einnig
Laima Miliauskaite markvörður
sem lék með FH á síðustu leiktíð
og þá hefur Inga Fríða Tryggva-
dóttir tekið fram skóna að nýju.
Stjarnan, Haukar, Grótta og
Valur voru í nokkrum sérflokki
síðasta tímabil en Fram og HK
voru þó dugleg að kroppa stig af
toppliðunum. „Ég býst jafnvel við
að þessi sex lið verði í baráttunni í
efri hluta deildarinnar. Það verður
bara gott fyrir deildina að hafa
svo mikla breidd. Svo er Fylkis-
liðið skipað ungum stelpum með
þremur reyndum útlendingum.
Þær gætu því verið í því hlutverki
að stela stigum af toppliðinum,
rétt eins og Fram og HK gerðu síð-
ast. Ég á því von á skemmtilegu
móti,“ sagði Díana.
Sex lið verða í bar-
áttunni um titilinn
B&L