Fréttablaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 1
Hefur gaman af því að
leika sér með tískuna
Hópur sérfræðinga
vinnur nú að viðamikilli rannsókn
á allri umgjörð Hafskipsmálsins
svokallaða, eins umdeildasta saka-
og gjaldþrotamáls síðustu ára-
tuga.
Hafskipsmennirnir Björgólfur
Guðmundsson, Páll Bragi Kristj-
ónsson og Ragnar Kjartansson,
eru að baki þessari ítarlegu úttekt
sem staðið hefur mánuðum saman
og vera hvergi lokið. Við verkið
starfar nærri einn tugur lögfræð-
inga og sagnfræðinga.
Ekki mun nauðsynlega vera
stefnt að því að krefjast endur-
upptöku dómsmálsins sjálfs held-
ur er öll umgjörð málsins undir í
rannsókninni sem sögð er hafa að
markmiði að allur sannleikurinn
líti dagsins ljós og að hinir dæmdu
menn fái uppreist æru.
Erfiðleikar voru í rekstri Haf-
skips á árinu 1985 og var félagið
tekið til gjaldþrotaskipta. Gefnar
voru út ákærur á hendur sautján
mönnum. Á endanum voru fjórir
þeirra dæmdir til refsingar í
Hæstarétti í júní 1991. Þyngsta
dóminn hlaut Björgólfur Guð-
mundsson sem verið hafði for-
stjóri Hafskips. Hann fékk tólf
mánaða skilorðsbundinn fangels-
isdóm. Ásgeir Friðgeirsson, tals-
maður Björgólfs, vill hvorki játa
því né neita að hafin sé rannsókn
fyrir Hafskipsmennina á málinu.
Ekki náðist í Pál Braga Kristjóns-
son sem er í orlofi erlendis.
Rannsóknarhópurinn mun bæði
vera að skoða opinber gögn sem
og ýmis gögn úr fórum manna sem
tengdust Hafskipsmálinu og upp-
lýsingar frá þeim. Mikið mun
þegar hafa komið fram sem Haf-
skipsmenn telja að varpi nýju og
óvæntu ljósi á atburðarásina, til
dæmis áður óbirt minnisblöð í
stjórnsýslunni.
Rannsakaður er þáttur ýmissa
stjórnmálamanna, opinberra emb-
ættismanna og forsvarsmanna í
atvinnulífinu.
Fyrir nokkrum árum eignaðist
félag Björgólfs Guðmundssonar
ráðandi hlut í Eimskip. Búast má
við að skjöl úr fórum þess félags
séu meðal þeirra gagna sem nýtt
verða til að draga upp heildar-
mynd af Hafskipsmálinu.
Hafskipsmenn láta gera
einkarannsókn á málinu
Tugur lögfræðinga og sagnfræðinga hefur mánuðum saman unnið að því að rannsaka bakgrunn Hafskips-
málsins að undirlagi þriggja manna sem dæmdir voru. Þeir vilja allan sannleikann fram og uppreist æru.
vinnuvélarFIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 Stigi á hjólumÁ flugvöllum má finna ýmis tæki og tól sem eru ólíkþví sem gengur og geristannars staðar. BLS. 4
Magn fíkniefnanna sem lögreglan
lagði hald á í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn í
september er fjörutíu kíló en ekki sextíu, eins og
komið hefur fram hjá lögreglunni. Um er að ræða
fjórtán kíló af E-töfludufti, tæp tuttugu og fjögur
kíló af amfetamíni og 1.800 E-töflur.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn
á höfuðborgarsvæðinu, segir að efni hafi verið
sett í töskurnar til að þyngja þær, svo þær sykkju
í sjóinn ef með þyrfti.
Ekki hafi verið forgangsverkefni á fyrstu
dögum rannsóknar að vigta efnið nákvæmlega,
heldur hafi verið miðað við heildarþyngd á
fíkniefnapökkunum. Þegar efnin sjálf voru vigtuð
kom á daginn að þau voru þriðjungi léttari en talið
var í fyrstu.
„Svo er þetta spurning um rannsóknarhagsmuni
að gefa magnið ekki nákvæmlega upp,“ segir
Friðrik. Hann vildi ekki gefa upp hvaða efni notað
var til að þyngja töskurnar.
Hörpur og brjótar
eru hágæðatæki
Jólin hefjast í verslun
Ikea í dag. „Jólavörurnar verða
að tínast í hús næstu daga,“ segir
Kristín Krist-
mundsdóttir,
markaðsstjóri
Ikea á Íslandi.
Hún segir engar
reglur hjá Ikea
um hvenær jóla-
herferðin hefjist
en oftar en ekki
verða viðskipta-
vinir verslunar-
innar fyrst varir
við hana hérlend-
is. „Við notum
að minnsta
kosti slagorðið
„Jólin þín byrja
í Ikea“,“ segir
Kristín.
Hinum gamalkunnu jólasvein-
um Rammagerðarinnar verður
stillt upp 1. nóvember en í hugum
margra eru þeir fyrsta merki þess
að jólahátíðin sé í nánd.
Jólaherferð Ikea
formlega hafin