Fréttablaðið - 18.10.2007, Síða 2
Arnar, á að skella sér á
skeljarnar á næstunni?
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Stjórn Varðar, fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík, fundaði um borgarmál í gær
og þar var ákveðið að halda lokað-
an fund síðdegis í dag fyrir stjórn-
ir sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík, ásamt borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins. Á fundinum
munu borgarfulltrúarnir skýra sín
sjónarmið varðandi atburðarásina
sem leiddi til slita meirihlutasam-
starfs Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks í borgarstjórn.
Þetta var ákveðið að tillögu
starfshóps sem var myndaður á
laugardag til að fara yfir með
hvaða hætti best væri að upplýsa
félagsmenn sjálfstæðisfélaganna
um stöðu flokksins og framtíðar-
sýn borgarfulltrúanna í borgar-
málum. Starfshópurinn var skipað-
ur sjö stjórnarmönnum Varðar.
Marta Guðjónsdóttir, formaður
Varðar, segir starfshópinn hafa
fundað tvisvar og að enginn borg-
arfulltrúi hafi verið kallaður fyrir
á þeim fundum. „Um var að ræða
lítinn starfshóp innan stjórnarinn-
ar sem fór yfir hvernig ætti að
standa að því að upplýsa stjórnir
félaganna. Það er allt og sumt.“
Aðspurð segir Marta það af og frá
að starfshópurinn hafi verið stofn-
aður til að leita að blóraböggli
meirihlutaslitanna, enda hafi
stjórnin ítrekað á fundi sínum í
gær fyrri ályktun þar sem lýst var
yfir fullu trausti og stuðningi við
borgarstjórnarflokk Sjálfstæðis-
flokksins undir stjórn Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, fyrrverandi borg-
arstjóra.
Ræða ástæður samstarfsslita
Tveir þingmenn Samfylk-
ingarinnar hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu á Alþingi þar
sem lagt er til að skipuð verði
nefnd til að
kanna hvort
aðild Íslands að
Evrópska efna-
hagssvæðinu
(EES) brjóti
gegn stjórnar-
skrá.
Vitnað er til
álits forseta
EFTA-dóm-
stólsins, sem
hefur fært
rök fyrir því
að samningur-
inn sé yfirþjóðlegur, sem stang-
ast á við ákvæði stjórnarskrár,
eins og sagt var frá í Fréttablað-
inu nýverið. Vilja þingmennirn-
ir Katrín Júlíusdóttir og Ágúst
Ólafur Ágústsson að fimm manna
nefnd verði skipuð til að fjalla um
þetta álitaefni, og hún skili niður-
stöðu fyrir 1. október 2008.
Kanna hvort
EES standist
stjórnarskrá
Kolbrún Halldórsdóttir,
þingkona Vinstri grænna, gagn-
rýnir næstum 100 prósenta launa-
hækkun Páls Magnússonar
útvarpsstjóra harðlega, en laun
Páls hækkuðu um næstum 90 pró-
sent þegar Ríkisútvarpinu (RÚV)
var breytt í opinbert hlutafélag 1.
apríl síðastliðinn. Eins og greint
var frá í Fréttablaðinu í gær er
Páll Magnússon með 1,5 milljónir
á mánuði í heildarlaun en þau voru
um 800 þúsund krónur áður en
RÚV var breytt. Stjórn RÚV ohf.
samþykkti hækkunina einróma á
fundi sínum skömmu eftir að
félagið var stofnað.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
kona Vinstri grænna, segir hækk-
unina fara gegn því sem rætt hafi
verið um áður en ákveðið var að
breyta rekstrarformi RÚV. Hún
telur hækkunina vera hluta af
„græðgisvæðingu“ í samfélaginu.
„Þetta er eins konar staðfesting
á því að menn ætluðu sér að vera í
eigin heimi í þessu opinbera hluta-
félagi. Mér finnst þetta vera hluti
af græðgisvæðingunni í samfélag-
inu,“ segir Kolbrún. Hún segir
launahækkunina ekki skynsam-
lega og með henni sé misfarið með
opinbert fé. „Ég held að það sé ein-
hver ákafi í mönnum í dag að kom-
ast í hálaunastörf. Forstjórar stóru
fyrirtækjanna hafa sett fordæmi
og nú til dags telst enginn vera
maður með mönnum nema hann sé
með meira en milljón á mánuði.
Hjá hinu opinbera eru menn að
ofmeta sig og misskilja starf sitt
með því að fara fram á svona laun.
Ríkisútvarpið er fyrst og fremst
þjónusta við almenning í landinu.
Launahækkun starfsmanna hjá
ríkinu, sem setur á þá kónga-
skikkju, felur í sér bruðl með opin-
bert fé. Og þessi hækkun er það
svo sannarlega.“
Baldvin Þór Bergsson, formað-
ur Starfsmannasamtaka Ríkisút-
varpsins, segir há laun útvarps-
stjóra koma á óvart. Líklegt sé að
hækkunin verði rædd innan stjórn-
ar félagsins. „Ég geri ráð fyrir því
að boða stjórnarfund fljótlega þar
sem þessi mál verða til umræðu.
Það þarf að ræða það einnig hvort
aðrir starfsmenn hafa fengið
svona miklar hækkanir. En því er
ekki að leyna að það kemur á óvart
að stjórnendur fái 90 prósenta
hækkun. Ef endurskoðun kjara-
samninga hjá almennum starfs-
mönnum tekur mið af þessari
hækkun, sem mér finnst ekki óeðli-
legt að hún geri, þá er það fagnað-
arefni.“
Ómar Benediktsson, stjórnar-
formaður RÚV ohf., segir launin
taka mið af breyttu starfssviði
útvarpsstjóra sem gegni umfangs-
meira starfi nú en hann gerði áður
en rekstrarformsbreytingin gekk í
gegn. Áður hafi verið átta yfir-
menn en nú séu þeir fimm og svið
hvers og eins sé umfangsmeira en
það hefði verið áður. Ómar vildi
ekki gefa upp laun annarra yfir-
manna hjá RÚV.
Ekki náðist í Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra en hún er erlendis.
Segir RÚV ohf. vera
að bruðla með fé
Kolbrún Halldórsdóttir gagnrýnir launahækkun útvarpsstjóra harðlega og seg-
ir hana „bruðl með opinbert fé“. Við munum taka mið af þessari hækkun við
endurskoðun kjarasamninga, segir formaður Starfsmannasamtaka RÚV ohf.
Áætlað er að Kaffistofa Samhjálpar flytji
í Borgartún 1. Þangað til opnar Samhjálp eldhús sitt
fyrir utangarðsmenn að nýju á Hverfisgötu 44.
Húsið við Hverfisgötu 44 var flutt á dögunum upp
á Bergstaðastræti. „Við gátum ekki verið í kaffistof-
unni á meðan og þurftum að loka henni. Við fengum
þá inni til bráðabirgða í ágætri aðstöðu í Fíladelfíu-
kirkjunni,“ segir Heiðar Guðnason, forstöðumaður
Samhjálpar.
Þótt Kaffisofa Samhjálpar fyrir heimilislausa
verði aftur opnuð á næstunni þegar vatn og rafmagn
hefur verið tengt að nýju er ekki ætlunin að vera
þar lengi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fær
Samhjálp aðstöðu fyrir kaffistofuna í Borgartúni 1
næstu þrjú árin að minnsta kosti. Guðni segist ekki
vilja staðfesta þetta en segir að verið sé að afla
tilskilinna leyfa fyrir starfseminni á nýjum stað.
Guðni segist vonast til að kaffistofan geti flutt á
nýja staðinn um miðjan nóvember. „Húsnæðið
verður mun betra en niðri á Hverfisgötu. Það er allt
gert upp og verður rýmra og betra að mörgu leyti,“
segir hann
Á heimasíðu Samhjálpar segir að kaffistofan sé
fyrir utangarðsfólk og aðra aðstöðulausa. Á hverjum
degi fái að jafnaði um 70 manns þar súpu og smurt
brauð eða heitan mat.
Verið er að taka
skýrslu fyrir dómi af Lettunum
þrettán sem leituðu til Afls starfs-
greinafélags fyrir nokkru vegna
gruns um vangoldin laun í vinnu á
vegum GT verktaka. Búist er við
að skýrslutökunni ljúki í dag og
að mennirnir geti haldið af landi
brott í lok vikunnar.
Hjá Ríkislögreglustjóra feng-
ust þær upplýsingar í gær að
í kjölfar skýrslutökunnar yrði
tekin ákvörðun um framhald
málsins, hvort einhverjir teld-
ust hafa stöðu sakborninga og þá
hverjir.
Tekur skýrslur
af Lettunum
Óprúttnir sund-
laugargestir í Selárdalslaug við
Vopnafjörð hafa ítrekað unnið þar
skemmdarverk og gengið illa um
svæðið.
Laugin er nokkuð fjarri byggð
og í raun ávallt opin þótt mælst sé
til þess að í hana sé farið á
ákveðnum tímum. Á fréttasíðu
Vopnafjarðar kemur fram að
vegna andstyggilegrar aðkomu
hafi verið ákveðið að loka
lauginni. Slíkt komi þó mörgum
illa meðal annars skólabörnum
sem verða af sundtímum vegna
aðgerðanna.
Skólabörn verða
af skólasundi
Vatni úr Hálslóni var
hleypt á aðrennslisgöng Kára-
hnjúkavirkjunar í gær. Jóhann
Kröyer, verkefnisstjóri Lands-
virkjunar við gangagerðina, ræsti
formlega búnaðinn sem lyftir
aðallokunum í inntakinu við
Hálslón þannig að vatnið tók að
streyma inn.
Aðrennslisgöngin eru um
fjörutíu kílómetra löng. Reiknað
er með því að fullur þrýstingur
verði kominn á þau fyrir næstu
mánaðamót, samkvæmt tilkynn-
ingu á heimasíðu Landsvirkjunar.
Fljótlega upp úr því getur
raforkuframleiðsla hafist í
virkjuninni.
Vatni hleypt á
aðrennslisgöng
Ökufantur á fer-
tugsaldri var handtekinn í Kópa-
vogi í gærkvöld en maðurinn er
grunaður um að hafa ekið undir
áhrifum lyfja og áfengis.
Að sögn varðstjóra ók maður-
inn á bíl við Blikahjalla en um
borð í honum voru kona og lítið
barn. Barnið var flutt á slysadeild
en meiðsl þess voru ekki talin
alvarleg.
Ökumaðurinn gerði sér lítið
fyrir og stakk af slysstað og hélt
áfram að aka á ofsahraða um
borgina. Ökuferðinni lauk sem
fyrr segir í Kópavogi.
Bíll mannsins er töluvert
skemmdur og rannsakar lögregla
hvort hann hafi valdið tjóni víðar
á ferð sinni.
Ók á bifreið og
stakk síðan af