Fréttablaðið - 18.10.2007, Page 35
Þetta fallega hálsmen er
nýjung í Make Up Store í
Kringlunni og leynir heldur
betur á sér.
Hálsmenið er ný hönnun frá fram-
leiðendum Make Up Store og
gegnir ekki eingöngu hlutverki
glingurs. Inni í meninu er lítill
púði sem hægt er að úða uppá-
halds ilmvatninu sínu í og anga
því af góðri lykt án þess að úða á
sjálfan sig. Þrír púðar fylgja men-
inu þannig að hægt er að skipta
um ilm í hálsmeninu eftir tilefni
eða eigin duttlungum hverju sinni.
Ilmandi skart
Starfsferill virtra hönnuða sem muna tímana tvenna er sviptingum
háður og sumir eiga sér mörg líf. Þetta átti til dæmis við um Gabrielle
Chanel, Yves Saint-Laurent og Valentino svo nokkrir séu nefndir.
Margir eru kallaðir en fáir útvaldir, enn færri lifa af í þessum harða
heimi áratugum saman. Christian Lacroix fagnaði 20 ára starfsafmæli
sínu í júlí með hátískusýningu sinni og á tískuvikunni í byrjun október
sýndi hann fatnað tilbúinn til notkunar og hlaut lof tískublaðamanna
fyrir. Hann ætlaði hins vegar aldrei að vera lengi í tískuheiminum,
hugur hans stefndi á leikhús og listir sem reyndar sést vel ef að er gáð
bæði hvað varðar litaval og stíl í hönnun Lacroix. Hann byrjaði feril
sinn hjá Hermès 1978, starfaði hjá Guy Paulin og að námi loknu hjá
Jean Patou sem var hér vinsæll hönnuður á 8. áratugnum.
Það hefur hins vegar ekki alltaf blásið byrlega fyrir Lacroix. Frá
því að tískuhús hans opnaði árið 1987 var hann í samstarfi við Bernard
Arnault, sem nú er ríkasti maður Frakklands og eigandi LVMH,
stærstu lúxussamsteypu í heimi. En Lacroix skilaði aldrei beinhörð-
um hagnaði og því var tískuhús hans selt 2005 eftir 18 ára samstarf
Lacroix og Arnault, í hendur Bandaríkjamanna. Tískuhús Lacroix er
þó það eina sem Arnault stofnaði sjálfur en að sögn Lacroix skildi
hann aldrei frelsisþörf hönnuðarins. Eftir fyrstu tískusýningu Lacroix
spurði Arnault: „Hvar er tímalausi hlutinn?“ nokkuð sem Lacroix átti
erfitt með að skilja en hann hefur alla tíð notað suðrænar hugmyndir
sínar með hjörtum, sólum, krossum og sterkum litum í ætt við sígauna-
stúlkuna Carmen frá Arles, fæðingarborg Lacroix, og segir það vera
sinn grunn. Seinna sagði viðskiptajöfurinn: „Pressan elskar þig og
hönnun þín er frábær en konur vilja ekki ganga í henni dags dag-
lega.“
Það er líkt og frelsi Christians Lacroix hafi gefið honum byr undir
báða vængi. Hann hefur ekki aðeins sent frá sér hverja tískulínuna á
fætur annarri sem hefur verið lofuð af tískurýnum heldur
hefur hann sömuleiðis hannað nýjan búning Air
France, innréttingar nýju hraðlestarinnar TGV-
Est, hótel í París og tísku- og innanhúslínu hjá pönt-
unarlista La Redoute sem hann segist vera mjög
ánægður með að vera hluti af.
Fyrir næsta sumar veðjar Lacroix á sterka liti.
Kjólarnir eru úr máluðu silki, eins og málverk með
slettum í bláu, fúksía, rauðu og svörtu.
Fyrirsæturnar eru með litríka framúrstefnulega
hatta. Allt þetta undir taktföstu „Earth Intruders“
Bjarkar.
Fæst í heilsubúðum,
apótekum,
og heilsuhornum
verslana
Einnig sjampó, hárnæring o.fl.
DREIFING: BLÓM Í EGGI: SÍMI: 552 6500
• 100% náttúrulegir jurtalitir
• Engin skaðleg aukaefni
• Ekkert ammóníak
• Laust við festiefni (Resorcinol)
• Þægilegt og fljótlegt í notkun
• 30 litir (Hægt að blanda fleiri)