Fréttablaðið - 18.10.2007, Page 65
Eins og allir vita þá hefur Ice-land Express lagt fram hug-
myndir um risavaxna flugstöð í
Vatnsmýrinni. Þetta eru stórkost-
legar hugmyndir og ber að fagna
þeim. Borgaryfirvöld hafa að vísu
hafnað þessum hugmyndum en
munu örugglega skipta um skoðun
eftir að hafa lesið þessa grein.
Eins og allir vita þá eru til ill-
gjarnir menn sem vilja hola óska-
barni þjóðarinnar niður uppi á
köldum og næðingssömum heiðum
eða í einhverjum rok og rigningar-
rassi suður með sjó. Varðandi heið-
arnar þá hefur samgönguráðherra
bent á í viðtölum að Hólmsheiðin
sé um 135 metra há. Þetta er ekk-
ert smáræði og jafnast næstum á
við hæstu fjöll Danmerkur og má
þar til dæmis nefna fjallgarð einn
mikinn á Fjóni sem kallast De
Fynske Alper, sem útleggst á
íslensku sem Fjónsku Alparnir. Við
blásum því á allar fyrirætlanir um
að flytja flugvöllinn og skulum
frekar huga að endur-
bótum á athafnasvæði
óskabarnsins. Það gerum
við með því að lengja
flugbrautir í allar áttir,
byggja nýja og glæsi-
lega flugstöð og flytja
allt millilandaflug í mið-
borg Reykjavíkur. Af
þessu yrði mikill þjóð-
hagslegur sparnaður.
Það er lítið mál að
gera uppfyllingar út í
sjó til þess að lengja
flugbrautir og stækka
athafnasvæði óskabarnsins, sem
er með vaxtarverki og þarf pláss
til að dafna. Við norðurenda norð-
ur/suður flugbrautar er garð-
ræksni sem kallast Hljómskála-
garðurinn og er óþarfi að
vera neitt að púkka upp á
hann lengur. Þangað má
lengja flugbrautina. Þar í
framhaldinu er einhver
forarpollur þar sem í
sífellu svífa yfir sískít-
andi mávar og annað fið-
urfé. Það þarf að fylla
upp í þessa úreltu tjörn
og gera þar athafnasvæði
fyrir óskabarnið, sem
getur þá keyrt rellurnar
alveg upp að ráðhúsinu
og næstum að Alþingis-
húsinu. Það er stórkostlegt hag-
ræði að þessu fyrir alþingismenn
sem þurfa að vera í góðu sambandi
við kjördæmin sín. Þeir hoppa bara
beint inn í vél.
Framsýni einkennir okkur
Íslendinga. Það er mikil lukka fyrir
samfélag þjóðanna að hafa þjóð
eins og okkur innanborðs. Við erum
heimsborgarar og viljum fljúga á
milli miðborga. Við þurfum að fara
fram á það við borgaryfirvöld vin-
sælla borga erlendis, t.d. í London,
að gerðar verði flugbrautir í mið-
borginni. Við getum vitnað til um
það að slíkt er algjör sæla. Það er
bara heimilislegt að heyra gný og
skellinöðruhljóð berast úr háloft-
unum í sífellu og frá morgni til
kvölds og sérstaklega þó snemma á
sunnudagsmorgnum. En morgun-
stund gefur gull í mund og það elur
á leti að liggja í bælinu á sunnu-
dagsmorgnum. Þegar ég var ungl-
ingur fyrir allt of löngu síðan hafði
ég svo gaman af skellinöðrum og
líkar því alltaf vel þegar ég heyri í
hljóðkútslausri háloftaskellinöðru.
Örfáar heilagar nöldurskjóður
munu setja sig uppá móti glæsileg-
um hugmyndum mínum og finna
þeim allt til foráttu enn við blásum
bara á það. Þetta lið getur bara
flutt uppí sveit. Farið hefur fé
betra. Það er notalegt fyrir okkur
að vita að kvartanir þessara nöld-
urskjóða rata jafnharðan í rusla-
fötuna. Hálfnað er verk þegar hafið
er og fyrsta skóflustungan fyrir
nýjum flugvelli í miðborginni er í
raun tekin með þessari grein.
Höfundur er Reykvíkingur og
áhugamaður um skipulagsmál.
Óskabarnið í Vatnsmýrinni
Frumvarp um afnám á ein-
okunarsölu rík-
isins á léttu víni
og bjór er nú
enn og aftur lagt
fram á Alþingi.
Spurningin er:
Er það réttlæt-
anlegt að þessar tilteknu vöruteg-
undir sé einungis hægt að kaupa í
verslunum á vegum ríkisins? Er
það fyrirkomulag í takt við nútím-
ann og það frelsi sem nú tíðkast
almennt í verslun og viðskiptum,
jafnt hér á landi sem á öðrum
Vesturlöndum? Áfengislöggjöfin
á Íslandi er ein sú strangasta í
heiminum, en í henni er m.a. kveð-
ið á um einkaleyfi, auglýsinga-
bann, 20 ára aldurstakmark og
mjög hátt verð.
Andstæðingar frumvarpsins
sem nú liggur fyrir telja að
ákveðinni forræðishyggju beri að
beita í þessum efnum í forvarnar-
skyni. Ríkinu sé best treystandi
til að hafa vit fyrir fólki og því sé
réttast að sala á áfengi fari
alfarið fram af hálfu verslana á
vegum ríkisins. Verði áfengi selt í
matvöruverslunum sé verið að
auka aðgang fólks að því og það
þýði meiri neyslu og misnotkun,
ekki síst meðal fólks undir
lögaldri.
Hér er alls ekki verið að gera
lítið úr því böli sem fylgt getur
áfengi sé það misnotað og þeim
afleiðingum sem drykkja
unglinga getur haft í för með sér.
Flestir geta tekið undir það að
forvarnir megi stöðugt efla, jafnt
varðandi reykingar og áfengis-
notkun sem og aðra þætti sem
lúta að lýðheilsu.
En þáttur okkar foreldra er
líklega mikilvægastur þegar að
forvörnum kemur. Við berum
ábyrgð á börnum okkar og okkur
ber að upplýsa þau um skaðsemi
og hugsanlegar afleiðingar
áfengisdrykkju rétt eins og við
kennum þeim á aðra hluti í lífinu.
Hvort áfengi verði selt í öðrum
verslunum en þeim sem ríkið
rekur er aukaatriði. Það er verið
að fjalla um þau grundvallaratriði
að afnema einokun og forræðis-
hyggju. Einnig þau grundvallarat-
riði að einstaklingarnir hafi frelsi
til athafna og þeim sé best
treystandi til að bera ábyrgð á
sjálfum sér og sínu lífi.
Höfundur er varaþingmaður og
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði.
Frelsi, for-
ræðishyggja,
og forvarnir
Opnum í dag stórglæsilega breytta Blend verslun í
Smáralind með nýjum spennandi merkjum.
Fullt af góðum tilboðum í tilefni dagsins fram yfir helgi.
Kringlunni // Smáralind // Keflavík
BLEND Smáralind stækkar og þroskast