Fréttablaðið - 18.10.2007, Síða 90
Eiður Smári Guðjohnsen
fyrirliði gerir sér ekki grein fyrir
því sem er að hjá íslenska liðinu.
„Ég held að það sé best að segja
sem minnst þangað til að við
getum horft aftur á leikinn. Við
þurfum að fara yfir það sem fór
úrskeiðis. Það er auðvelt að láta
hlutina fara í skapið á sér og ég
held að við þurfum allir að líta í
okkar eigin barm. Það taka allir
ábyrgð á þessum sem ein heild,“
sagði Eiður Smári.
„Við erum greinilega ekki nógu
samstilltir, hvort sem það sé vegna
skilaboðanna sem við fáum inn á
völlinn eða hvort við útfærum þau
ekki rétt. Það er voða erfitt að
gera sér grein fyrir því sem er að.
Þetta var í lagi í fyrri hálfleik en
við þurftum bara að skora til að fá
sjálfstraustið inn í liðið. Við fáum
síðan á okkur ódýrt mark enn eina
ferðina og það drepur leikinn fyrir
okkur. Þriðja markið undirstrikar
síðan allan pakkann,“ sagði Eiður
sem kláraði 90 mínútur annan
leikinn í röð. „Ég er búinn eftir tvo
90 mínútna leiki. Það var allt í lagi
kraftur í mér inn á milli en ég er
lengi að jafna mig og fann aðeins
til í hnénu undir lok leiksins,“
sagði Eiður Smári sem upplifði í
gær versta kvöld sitt með lands-
liðinu.
„Já. ég held það. Það getur ekki
annað en nartað í stoltið hjá manni
en ég tek bara á mig mína ábyrgð
alveg jafnmikla og hinir leikmenn-
irnir í liðinu. Það þýðir ekkert að
fara heim og grenja heldur þurf-
um við að fara yfir það sem fór
úrskeiðis. Ég er ekki sá sem gefst
upp að eðlisfari og ætla ekki að
byrja á því hér. Við sem lið höfum
aldrei verið þekktir fyrir að gef-
ast upp. Það er engin ástæða fyrir
að fara að byrja á því þó svo að við
höfum fengið stóran skell. Við
gerum miklar væntingar til okkar
sjálfra og það er erfitt að sætta sig
við sjálfan sig þegar maður stend-
ur ekki undir væntingum,“ sagði
Eiður.
Allir strákarnir í liðinu þurfa að líta í eigin barm
Blaðamennirnir frá
Liechtenstein föðmuðu landsliðs-
þjálfarann Hans-Peter Zaugg á
blaðamannfundinum eftir leikinn
og það var ljóst á öllu að liðið
hafði endurskrifað knattspyrnu-
sögu þjóðarinnar.
„Þetta var kannski ekki besti
leikurinn okkar en það var mjög
mikilvægt fyrir okkur að vinna
þennan leik gegn Íslandi. Ísland
er með gott lið en heppnin var
með okkur í fyrsta markinu.
Markvörðurinn okkar átti mjög
góðan leik, varði í tvígang
meistaralega í fyrri hálfleik og
leikurinn kláraðist síðan með
seinni tveimur mörkunum. Ísland
spilaði að mínu mati mjög svipað
og í fyrri leiknum á Ísland. Þetta
var ekki slæmur leikur hjá
Íslandi en heppnin var með
okkur,“ sagði Zaugg á blaða-
mannafundi eftir leik. „Drauma-
úrslitin fyrir mig var að vinna
leikinn 1-0 en það gerist ekki
betra en að skora þrjú mörk og
halda hreinu. Þetta er ótrúlegt
kvöld.“
Dreymdi um
að vinna 1-0
Miðvikudagsins 17. okt-
óber 2007 verður minnst sem eins
svartasta dags í sögu íslenskrar
knattspyrnu. Þetta er dagurinn
þar sem íslenska landsliðið var
niðurlægt af einni minnstu knatt-
spyrnuþjóð heims, Liechtenstein.
Íslenska liðið náði aldrei tökum
á leiknum og vonleysið jókst mín-
útu frá mínútu eftir að íslenska
liðið lenti undir eftir hálftíma leik.
Liðið fékk nokkur góð færi til að
koma sér inn í leikinn en annað
mark Liechtenstein drap algjör-
lega í íslenska liðinu sem hrein-
lega brotnaði saman gegn einu af
smáríkjunum í boltanum. Leik-
menn Liechtenstein eru ekki að
spila með bestu knattspyrnuþjóð-
um Evrópu en þeir afgreiddu
atvinnumenn íslenska landsliðsins
að hætti bestu knattspyrnuþjóða
heims. Framfarir Liechtenstein
hafa verið miklar síðan að Ísland
vann þá í tvígang 4-0 fyrir tíu
árum síðan. En afturför íslenska
landsliðsins á þó hér örugglega
stærstan þátt í óförum liðsins í
Ölpunum í gær.
Það var óöryggi í íslenska liðinu
frá fyrstu mínútu og leikmenn
Liechtenstein voru alltaf hættu-
legir ekki síst þar sem íslenska
liðið var að tapa boltanum ítrekað
á slæmum stöðum. Tapaður bolti á
miðjunni bauð síðan upp á hraða
sókn upp vinstri vænginn á 28.
mínútu þar sem Franz Burgmeier
komst aftur fyrir Kristján Örn
Sigurðsson og gaf fyrir á galopinn
Mario Frick sem skoraði auðveld-
lega utan úr teignum.
Íslenska landsliðið kom öllum á
óvart með því að skora þrjú mörk
á fyrstu 37 mínútunum í fyrsta
útileiknum en hefur síðan hvorki
skorað mark né fengið stig utan
Laugardalsvallarins. Síðan að
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði
þriðja markið í Belfast eru liðnar
413 mínútur og markið lætur enn
bíða eftir sér.
Sú vonarglæta sem glæddist
með góðum úrslitum varð snögg-
lega að engu en þegar litið er til
baka þá náðum við jafntefli úr leik
þar sem við vorum manni fleiri í
69 mínútur og vorum ljónheppnir
að vinna Norður-Íra nokkrum
dögum síðar. Eitt stig gegn botn-
liðunum í riðlinum er staðreynd.
Það er erfitt að sætta sig við að
fjórir lélegustu leikir liðsins komi
gegn þeim tveimur þjóðum sem
við eigum að vinna. Uppskeran er
hins vegar eitt af mögulegum tólf
stigum, eitt mark skorað og tólf
fengin á okkur. Það eru stigin sex
gegn Norður-Írum sem eru að
bjarga liðinu frá því að sitja í
botnsætinu um leið og þau ræna
Norður-Íra farseðilinn til Sviss og
Austurríkis næsta sumar.
Íslenska liðið var taktlaust og
ósannfærandi. Hér hlýtur þjálfar-
inn að taka á sig alla ábyrgð. Eyj-
ólfur Sverrisson hefur fengið
tækifæri til að vinna sig úr skelfi-
legri frammistöðu. Hann fékk það
tækifæri í haust en eftir tvö töp í
röð með markatölunni 2-7 er erfitt
fyrir hann að halda áfram. Liðið er
augljóslega á rangri leið og með
sama áframhaldi er Ísland að
verða ein slakasta knattspyrnu-
þjóðin í Evrópu. Menn gera ekki
lengur grín af San Marínó, Fær-
eyjum og Liechtenstein því eftir
leikinn í gær hefur Liechtenstein
sent íslenska knattspyrnulandslið-
ið niður í kjallarann með þessum
þjóðum.
Íslenska karlalandsliðið steinlá, 3-0, fyrir Liechtenstein í Vaduz í gær og mátti þola eitt neyðarlegasta tap í
sögu landsliðsins. Eftir frábær úrslit gegn Spáni og Norður-Írlandi hrundi leikur liðsins gegn neðstu liðun-
um í riðlinum og það er augljóslega eitthvað mikið að hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu.
Eyjólfur Sverrisson
landsliðsþjálfari var að sjálfsögðu
mjög óánægður með leikinn í gær.
„Það er ekkert sem við þurfum að
tala fallega um úr þessum leik.
Þetta er bara skelfilegt og við
vorum bara niðurlægðir. Ég tek að
sjálfsögðu mína ábyrgð á þessu,“
sagði Eyjólfur sem ætlar þó ekki
að segja af sér.
„Ég ætla að halda áfram með
liðið. Ég veit núna hvað ég þarf að
bæta. Ég geri miklar kröfur til
mín sjálfs og ég tel mig geta lagað
það sem þarf að bæta hjá liðinu,“
sagði Eyjólfur kokhraustur.
„Við vorum einfaldlega niður-
lægðir. Það er ekkert í þessum leik
sem við getum talað fallega um.
Þeir nýttu sín færi. Við fengum
reyndar fjögur dauðafæri en nýtt-
um þau ekki. Þetta er sama vanda-
málið og við höfum glímt við und-
anfarin fimm ár.
Þessi stöðugleiki er ekki í liðinu
og það eru gríðarleg vonbrigði
með þennan leik. Það virðist vera
þannig að ef við erum að verjast
allir á okkar vallarhelmingi þá
erum við í fínu standi en um leið
og við förum að sækja á fleiri
mönnum og erum meira með bolt-
ann þá lendum við alltaf í vand-
ræðum,“ sagði Eyjólfur eftir leik-
inn og hann veit að gengi liðsins
gegn botnliðunum hefur verið
mjög slakt.
„Það er mjög dapurt að fá aðeins
eitt stig af tólf mögulegum á móti
Lettlandi og Liechtenstein og í
rauninni þyrftum við bara að spila
eintóman varnarleik og pakka í
vörn,“ sagði Eyjólfur í kaldhæðni
en hann sá þó mun á liðinu frá því
í tapinu á móti Lettum. „Hugarfar-
ið var í fínu lagi og mun, mun
betra en það var á móti Lettum,“
sagði Eyjólfur.
Við vorum einfaldlega niðurlægðir