Fréttablaðið - 18.10.2007, Side 94
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Skáldsagan Rokland eftir Hall-
grím Helgason hefur fengið afar
góðar viðtökur í Danmörku en hún
var gefin þar út fyrir tveimur
vikum undir nafninu „Stormland“.
Gagnrýnendur mega
var vatni halda yfir
henni og Berlingske
Tidende gaf bókinni
fullt hús, heilar sex
stjörnur. Jyllands-
posten og Börsen
gáfu fimm og Polit-
iken útnefnir Rok-
land bók vikunnar.
Menningarþáttur
danska ríkissjón-
varpsins, „Smags-
dommerne“, fjallaði
einnig um bókina.
Hallgrímur segist í viðtali við
Fréttablaðið hafa lesið gagnrýni
Dananna. „Þetta er skemmtilegt,“
segir hann. „Bókin selst vel úti,
talan nálgast tvö þúsund eintök á
tveimur vikum. Maður er
bara sáttur.“ Það er einkum
menningargagnrýni bókar-
innar og kraftur tungu-
málsins sem heillar gagn-
rýnendur í Danaveldi. Einn
þeirra sagði Hallgrím
greina nútímann með
nákvæmni hjartalæknis
og tilfinningu uppistand-
ara fyrir tímasetningu. Annar
sagðist hafa svipast um í stofu
sinni í leit að einhverjum til að
deila menningargagnrýninni með
sem sett væri fram á svo „ótrú-
lega skemmtilegu og kraftmiklu
máli“. Sá þriðji sagði bókina fara
langt fram úr öllum öðrum nor-
rænum samtímabókmenntum.
Hinn kaldhæðni húmor Hallgríms
virðist því hafa skilað sér í dönsku
þýðingunni. „Ég var einstaklega
heppinn með þýðandann, Kim
Lembek,“ viðurkennir Hallgrím-
ur. „Þetta veltur mikið á því, sér-
staklega fyrir okkur Íslendinga.“
Rokland fjallar sem kunnugt er
um Bödda nokkurn Steingrímsson
sem snýr aftur heim á Sauðárkrók
eftir námsdvöl í Þýskalandi. „Kim
lærði íslensku þegar hann starfaði
sem vinnumaður á bæ í Skagafirði
í eitt ár. Það má segja að hann hafi
nánast verið forritaður til að þýða
þessa bók.“
Hallgrímur vinsæll í Danmörku
Grafíski hönnuðurinn Oscar Bjarna-
son er á meðal átta sérfræðinga
sem heimasíða dagblaðsins New
York Times leitaði álits hjá um nýtt
merki hjá leigubílum New York-
borgar.
„Það er gaman að vera með á
þessum lista því það eru stórar kan-
ónur þarna,“ segir Oscar. „Þetta er
að sjálfsögðu heiður og mjög gaman
fyrir mig. Hönnunarstjórinn hjá
nytimes.com sem er búinn að fylgj-
ast dálítið með mér sendi mér fyrir-
spurn og spurði hvort ég vildi taka
þátt í þessu. Þess vegna datt ég inn
á þetta.“
Samkvæmt heimasíðunni hafa
íbúar New York verið frekar ósáttir
við breytinguna á merki leigubíl-
anna og því var ákveðið að leita álits
sérfræðinga í málinu. Í áliti sínu
segir Oscar merkið vera óþarflega
flókið og leggur til aðrar praktísk-
ari lausnir.
Oscar er greinilega orðinn einn
af virtustu grafísku hönnuðum
heims. Auk þess að fá athygli frá
New York Times var vörumerki
hans Systm keypt af japanska fata-
framleiðandanum UNIQLO, eins og
áður hefur komið fram í Fréttablað-
inu. Voru bolir með merkinu til sölu
í fimmtán til tuttugu þúsund eintök-
um víða um heim, þar á meðal í New
York, London, Japan og Frakklandi.
„Allir bolirnir eru uppseldir nema
þessir gulu. Þetta rauk út,“ segir
Oscar. „Ég ætlaði að redda mér ein-
tökum en þau hlógu bara að mér í
búðinni.“
Oscar hefur áður vakið athygli
fyrir hönnun sína því hann á heiður-
inn að merkinu fyrir N1 og veit-
ingastaðinn Domo, sem hann hlaut
FÍT-verðlaun fyrir. Þeim sem vilja
kynna sér verk Oscars er bent á
heimasíðuna http://analog.sys.is.
Sérfræðingur hjá NY Times
„Ég fæ mér oftast kvöldmat í
morgunmat, til dæmis hamborg-
ara eða pitsu, sem ég hita upp í
örbylgjunni. Ég er lítið fyrir að
fá mér hefðbundinn morgunmat
og vil meira bara kjöt, sósu og
eitthvað svoleiðis.“
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.
Þú færð aðeins það besta hjá okkur
úrv sk, kinnar, gellur
signa grásleppu, reykt ýsa og mar eira
Garðar Thor Cortes mun syngja á góðgerðarsamkomu
The Bobah Center í Kensington-höllinni í kvöld en
meðal gesta er lávarðurinn Sebastian Coe. Garðar mun
syngja í móttökunni en Bobah-samtökin hafa stutt við
bakið á þeim sem hafa orðið fyrir heilaskaða snemma á
ævinni. Athöfnin fer fram í einum af íbúðum hallarinn-
ar, við hliðina á þeirri sem Díana prinsessa bjó í þegar
hún var gift Karli Bretaprins.
Verndari samtakanna er hertogaynjan af Gloucest-
er, hin danska Brigitte Eva van Deurs, en hún er mikill
aðdáandi íslenska tenórsins að sögn Mark Devine hjá
Mother, umboðsskrifstofu Garðars í London. „Hún
hlakkar mikið til að hitta hann og kannski að Garðar
bregði fyrir sér íslenskunni þegar þau ná saman,“
segir Mark og hlær.
Heimildir Fréttablaðsins herma að ákveðið hafi
verið að taka þessu boði í ljósi nærveru Sebastian
Coe en hann er formaður Ólympíunefndarinnar
fyrir leikana í London sem fram fara 2012.
Mark segir það ekkert launungarmál að
stefnt sé að því að koma Garðari þar fyrir,
hvort sem það verði við setningarathöfn-
ina eða aðra tengda viðburði en þetta er
án nokkurs vafa stærsti viðburðurinn í
Lundúnum á þessari öld.
Ferill Garðars er á hraðri uppleið. Tilkynnt hefur
verið að hann verði meðal söngvara á stórri safnplötu
með sígildri tónlist sem gefin verður út á heimsvísu.
Meðal annarra listamanna sem syngja á plötunni eru
Kiri Te Kanawa, Luciano Pavarotti, Placido Domingo,
Anna Netrebko, Bryn Terfel, IL Divo, Mario Lanza og
Andrea Bocelli en það eru Sony Records og Universal
sem standa að þessari útgáfu. Þá má ekki gleyma söng
Garðars fyrir Tony Blair í byrjun næsta mánaðar en
hápunktinum verður síðan náð þegar Garðar
syngur í beinni útsendingu Sky-sjónvarps-
stöðvarinnar frá vígslu nýjasta skemmti-
ferðaskips Cunard-skipasmíðafyrirtækisins
en þar munu Camilla Parker Bowles og Karl
Bretaprins gefa fleyinu nafn. Meðal ann-
arra sem munu væntanlega koma fram
ásamt Garðari verða Katherine Jenkins og
hinn margverðlaunaði Derek Jakobi.