Fréttablaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 68
Eyjasafn í Artóteki
Föstudaginn 19. október verður
opnuð sýning á nýjum verkum
Bjargar Örvar í Listasafni Reykja-
nesbæjar. Björg Örvar útskrifað-
ist úr Myndlista- og handíðaskóla
Íslands árið 1979 og stundaði síðan
listnám við University of Cali-
fornia á árunum 1981-1983. Björg
hefur sýnt víða og er löngu orðin
þekkt fyrir sérkennileg málverk
sem erfitt er að skilgreina, en
hvort sem þau teljast náttúru-
myndir eða ekki eru þau fyrst og
fremst einstök.
Í texta Halldóru K. Thoroddsen
í sýningarskránni sem gefin er út
af þessu tilefni segir meðal ann-
ars: „Hér fer stríðinn málari. Á
þessari sýningu er mætt til leiks
rauð agressjón. Björg hefur
fyrrum málað okkur græna mildi
og blátt afskiptaleysi. Hvernig
sem þessir litir kunna að hitta
okkur fyrir eru þeir alltaf um það
bil að bresta á límingunum en
halda þó.“
Sýning Bjargar er í sýningarsal
Listasafns Reykjanesbæjar í
Duushúsum og stendur til 2.
desember. Í Duushúsum er opið
alla daga frá kl. 13-17.30 og
aðgangur er ókeypis.
Björg sýnir í
Reykjanesbæ
kl.20
Annars árs nemar í leiklistar-
deild Listaháskóla Íslands setja
upp leikritið Gárur á Korpúlfs-
stöðum í kvöld og annað kvöld
kl. 20. Nemarnir unnu handritið
sjálfir út frá rýminu sem
sýningin fer fram í. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir,
en taka skal fram að hlýr
klæðnaður er æskilegur.
Íslenski dansflokkurinn
stendur fyrir fjölskyldu-
sýningum í Borgarleikhús-
inu nú um helgina.
Þetta er þriðja árið í röð sem dans-
flokkurinn stendur fyrir fjöl-
skyldusýningum, en fyrri árin tvö
voru þær afar vel sóttar.
Markmiðið með sýningunni er
að gera danslistina aðgengilega
almenningi og þá sérstaklega
yngra fólki. Á sýningunni eru sýnd
þrjú stutt verk sem eru lífleg og
skemmtileg.
Katrín Hall er listrænn stjórn-
andi Íslenska dansflokksins. Hún
segir verkin hafa verið valin á
sýninguna vegna þess að þau eru
fjölskylduvæn. „Við höfum sýnt
öll þessi verk áður og völdum þau
á fjölskyldusýninguna vegna þess
að við töldum þau geta höfðað til
afar breiðs aldurshóps. Verkin eru
Practice Paradise eftir Stijn Celis,
Critics Choice? eftir Peter Anders-
son og Maðurinn er alltaf einn
eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Síðast-
nefnda verkið var fyrst sýnt árið
1999 og er orðið að hálfgerðri
klassík á verkaskrá okkar.“
Að sögn Katrínar vill dans-
flokkurinn bjóða börnum og fjöl-
skyldum þeirra möguleika á að
upplifa dansleikhús. „Við viljum
gera danslistina aðgengilega fyrir
ungt fólk svo að það upplifi það
sem sjálfsagt og eðlilegt að fara á
danssýningu rétt eins og að fara í
leikhús eða bíó. Við höfum fundið
fyrir miklum áhuga á þessum fjöl-
skyldusýningum okkar og það
hefur oftast verið fullt út úr
dyrum, enda er mikið af börnum
og ungu fólki að læra dans og
finnst spennandi að komast á
svona sýningu. Þar að auki erum
við að reyna að bjóða fjölskyldum
upp á samverustund sem allir geta
notið saman.“
Að fjölskyldusýningunum
loknum taka við ferðalög hjá
Íslenska dansflokknum, en hann
heldur til Bandaríkjanna í næstu
viku og mun þar ferðast um
austurströndina með sýningar
sínar.
Fjölskyldusýningarnar verða
tvær talsins og fara fram á morgun
kl. 14 og á sunnudag á sama tíma.
Áhorfendur tólf ára og yngri fá
miða á sýninguna ókeypis, og
áhorfendur á aldrinum 13-16 ára
fá miða á hálfvirði, en almennt
miðaverð er 3.100 kr. Undanfarin
ár hefur selst upp á þessar sýning-
ar og því er áhugasömum ráðlagt
að kaupa miða sem fyrst.
Sýningar eru opnar virka daga kl. 11 - 17
og um helgar kl. 13 - 16 • sími 575 7700
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Handverkshefð í hönnun
Leiðsögn á hverjum sunnudegi
kl. 14 Boðið er upp á leiðsögn
fyrir hópa, s. 575 7700
Úr ríki náttúrunnar
Guðmunda S. Gunnarsdóttir
sýnir málverk og myndverk úr
rekaviði og steinum
Vissir þú af...
góðri aðstöðu fyrir veislur,
námskeið, fundi o.fl.
Nánar á www.gerduberg.is
MIÐASALA Á WWW.OPERA.IS
MIÐASÖLUSÍMI 511 4200
KOLBEINN
ANNA MARGRÉT
ÁSGEIR PÁLL
BERGÞÓR
GUÐRÚN JÓHANNA
ÁGÚST
HRAFNHILDUR
INGVAR
JÓN
ÞORSTEINN HELGI
ÞORVALDUR
BRAGI
DAVÍÐ
HALLVEIG
HLÖÐVER
F
A
B
R
I
K
A
N
SÍÐASTA SÝNING!
Í KVÖLD, 19. OKTÓBER, KL. 20.00
„Fyrir þá sem vilja fylgjast með íslenska
söngvarahópnum er því skyldumæting á
sýninguna.…Flottur söngur.“
Fréttablaðið, Páll Baldvin Baldvinsson
3 stjörnur
„Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, dásamleg…
Arndís Halla, töfrandi…
Hanna Dóra Sturludóttir, stórbrotin…
Kolbeinn Jón Ketilsson, heillandi…
Þvílíkt partý!“
Silja Aðalsteinsdóttir, www.tmm.is
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið