Fréttablaðið - 19.10.2007, Side 78
Ætla mér að komast lengra í boltanum
Keflvíkingurinn knái
Jónas Guðni Sævarsson hefur
verið talsvert í umræðunni á
leikmannamarkaðnum upp á
síðkastið og verið meðal annars
orðaður við bæði KR og Val í
Landsbankadeildinni. Jónas
kvaðst þó alveg vera rólegur yfir
stöðu mála í samtali við Frétta-
blaðið.
„Ég er bara í fríi á Spáni eins
og er og hef þannig séð nógan
tíma til þess að fara yfir mín mál.
Ég er enn samningsbundinn
Keflavík í eitt ár í viðbót en ég
hef samt heyrt af áhuga tveggja
liða í Landsbankadeildinni,“ sagði
Jónas rólegur.
Er að fara yfir
mín mál
Jónas Kristinsson,
formaður KR-Sports, rekstrar-
félags meistaraflokks karla hjá
KR, tilkynnti í gær að hann myndi
ekki sækjast eftir endurkjöri á
næsta aðalfundi félagsins. Jónas
hefur verið formaður frá árinu
2001 en hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir KR síðustu
tuttugu ár.
Jónas hættir Bolton leitar þessa dagana að framtíðarmanni í stól
knattspyrnustjóra en sem
kunnugt er hefur félagið rekið
Sammy Lee eftir afleitt gengi í
upphafi leiktíðar.
Archie Knox, þjálfari hjá
Bolton, hefur verið ráðinn stjóri
liðsins á meðan leitin að nýjum
framtíðarstjóra fer fram. Bolton
hefur meðal annars óskað eftir
því að fá að ræða við Steve
Bruce, stjóra Birmingham, en
þeirri beiðni var hafnað.
Þó er ekki loku fyrir það skotið
að Bruce ræði við Bolton á
endanum þar sem hann hefur
sjálfur óskað eftir viðræðum við
stjórn Birmingham varðandi sína
eigin framtíð hjá félaginu.
Bruce á átján mánuði eftir af
samningi sínum við félagið, sem
hann hefur stýrt síðustu sex ár.
Fær ekki að
ræða við Bruce
FH hefur tekið forskot í
kapphlaupinu um bakvörðinn
Höskuld Eiríksson sem er á mála
hjá Víkingi.
FH og Víkingur komust að
samkomulagi um kaupverð í gær
og Höskuldur hittir FH-inga á
samningafundi í dag.
„FH er spennandi klúbbur og
með þjálfara sem ég hef mikla trú
á,“ sagði Höskuldur við Frétta-
blaðið í gærkvöldi. „Vissulega yrði
mikil samkeppni hjá FH en það
yrði bara skemmtileg áskorun. Ég
hef trú á mínum hæfileikum og tel
mig eiga erindi í lið eins og FH þó
svo að leikmennirnir sem fyrir séu
góðir.“
Fer í viðræður
við FH í dag
Iceland Express-deild karla:
Njarðvíkingar unnu
sannfærandi sigur á Þór í Iceland
Express deild karla í körfubolta í
gær en eftir jafnan fyrri hálfleik
keyrðu gestirnir yfir Þórsara í
þeim síðari og unnu 28 stiga sigur,
101-73.
Njarðvíkingar voru slegnir út af
laginu í upphafi leiks þar sem þeir
mættu kokhraustum Þórsurum
sem höfðu undirtökin. Slök sóknar-
nýting gestanna í bland við vel
útfærðan sóknarleik Þórsara skil-
aði heimamönnum 28-19 forystu
eftir fyrsta leikhluta en Njarðvík-
ingar fengu svo vakninguna á milli
leikhluta.
Gestirnir jöfnuðu leikinn með
níu fyrstu stigum annars leikhluta
og eftir það var hálfleikurinn járn
í járn. Hvorugt lið gaf eftir en þó
nokkuð var um mistök á báða
bóga. Að loknum fyrri hálflek
hafði hvort lið skorað 47 stig.
Njarðvíkingar tóku að síga fram
úr og var á tíðum engu líkara en að
Þórsarar hefðu sprengt sig í fyrsta
leikhlutanum. Eftir þriðja leik-
hluta hafði Njarðvík tólf stig yfir,
73-61, en þar skoruðu Þórsarar
aðeins fjórtán stig um leið og gest-
irnir lögðu grunninn að stórsigri
sínum.
Þórsarar náðu ekki að skora
fyrr en eftir um þrjár mínútur í
síðasta leikhlutanum og sá eini
sem var með lífsmarki var Cedric
Isom. Njarðvíkingar skiluðu
sínum stigum jafnt og þétt og
unnu að lokum sanngjarnan 28
stiga sigur.
Óðinn Árnason var ásamt Isom
besti leikmaður heimamanna en
Brenton Birmingham og Jóhann
Ólafsson voru fremstir meðal
jafninga ásamt Friðriki Stefáns-
syni hjá gestunum.
„Við vorum að gera réttu hlut-
ina í sókninni en frábærar skyttur
okkar misstu bara marks úr
opnum skotum. Mínir menn misstu
svolítið móðinn, sem er óvanalegt
og eitthvað sem við þurfum að
vinna í.
En tímabilið er rétt að byrja og
ég held að það sé réttast að ein-
blína á það sem við gerðum vel og
á löngum köflum í leiknum leit út
fyrir að þeir ættu ekki mikið í
okkur. Við höfum sett okkur
ákveðið stigamarkmið sem yfir-
leitt dugar til að halda sér í deild-
inni og við náum því skoðum við
stöðuna aftur,“ sagði Hrafn Kristj-
ánsson, þjálfari Þórs.
Þórsarar sprungu í síðari hálfleik
Grindavík reif sig upp
á afturendanum eftir slæmt tap
gegn Keflavík í fyrsta leik og lagði
Íslandsmeistara KR, 109-100, í
fjörugum og bráðskemmtilegum
leik í Grindavík.
Leikurinn fór fjörlega af stað
þar sem liðin skiptust á að vera
yfir og KR leiddi 24-27 eftir fyrsta
leikhluta. Liðin héldu áfram að
skora grimmt og segja má að
sóknarleikurinn hafi verið í fyrir-
rúmi í öðrum leikhluta en heima-
menn í Grindavík leiddu 57-56 í
hálfleik.
Keyrslan á liðunum hélt áfram í
þriðja leikhluta og eftir hann var
KR komið með yfirhöndina 79-80.
Spennustigið var hátt og liðin skor-
uðu ekki stig fyrstu tvær mínútur í
fjórða leikhluta og mikið var um
tapaða bolta og ótímabær skot.
Staðan var hnífjöfn, 99-99, þegar
lítið var eftir en þá tók Grindavík
leikinn í sínar hendur og skoraði
næstu tíu stig í leiknum og breytti
stöðunni í 109-99. Þar fór Jonathan
Griffin á kostum fyrir heimamenn
og skoraði sex stig í röð og þar af
voru síðustu tvö stig hans í leikn-
um eftirminnileg.
Griffin byrjaði á að blokka
þriggja stiga skot Helga Más og
fór svo fram og tróð boltanum
með tilþrifum. Troðslan var fínn
endapunktur á tilþrifamiklum
sóknarleik liðanna í gærkvöld og
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindarvíkur, hafði orð á skemmt-
anagildi leiksins. „Þetta var stór-
skemmtilegur leikur þar sem
hungraðara liðið vann og ég er
mjög sáttur við hugarfarsbreyt-
inguna hjá mínum mönnum.
Deildin er bara þannig í dag að ef
þú mætir ekki til leiks af krafti þá
taparðu og við vildum vinna meira
en þeir,“ sagði Friðrik sáttur.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari KR, átti í erfiðleikum með að
finna einhverja jákvæða fleti á
leiknum, þrátt fyrir að lið hans
hafi síst verið lakari aðilinn í
leiknum. „Ég var óhress í 40 mín-
útur í leiknum og við sem gefum
okkur út fyrir að vera sterkt
varnarlið og höfum verið að fá á
okkur 65-75 stig fáum á okkur 56
stig bara í fyrri hálfleik og yfir
100 stig í leiknum öllum. Við
vorum bara í einhverju frjálsu
falli hérna varnarlega og það er
alveg klárt að það verður unnið í
varnarleiknum næstu æfingar,“
sagði Benedikt.
Íslandsmeistarar KR voru sendir tómhentir heim úr Röstinni í gær eftir líflega
rimmu gegn Grindavík. Heimamenn hristu þar með af sér slaka byrjun í mót-
inu þar sem liðið steinlá gegn Keflavík. Fyrsta tap meistaranna því staðreynd.