Fréttablaðið - 30.10.2007, Side 56

Fréttablaðið - 30.10.2007, Side 56
Íslenska landnámskýrin er eins og þjóðin. Lítil, krúttleg og afskaplega dugleg. Hún kom með forfeðrum okkar til landsins í opnum báti yfir Atlantshafið. Á skinnum afkvæma hennar er saga okkar rituð og mjólk hennar hélt lífi í þjóðinni öldum saman. Í Íslend- ingasögum eru mjólkurafurðir oft drifkraftur sögunnar og þeir sem hafa lesið Sjálfstætt fólk eftir sjálft Nóbelsskáldið vita að sjaldan er dauðinn jafn harmrænn í skáldsögu og þegar hann hittir kálf fyrir. var löngun Hallgerðar Höskuldsdóttur í góðan ost í Hlíðarendabúr sem varð til þess að spádómurinn um þjófsaugun rættist. Það að eiginmaður hennar hafði rekið henni kinnhest fyrir það eitt að sækja mjólkurafurðir sýnir best hversu mikil liðleskja Gunnar var og slíkur búskussi að halda ekki almennilegri nyt í kúnum. Kýr eru næsta guðlegar verur í bókmenntum og því ekki að undra þótt Gunnar hafi verið drepinn skömmu síðar. greina frá því að aðeins truflað fólk kunni ekki að meta mjólkurafurðir − fólk eins og Egill Skallagrímsson. Hann hefur ábyggilega ekki drukkið nægilega mikið af mjólk, líklega verið með mjólkuróþol ofan á drykkjusýkina. Þið munið nú hvað gerðist þegar Egill fékk skyr að drekka hjá fjandmanni sínum Ármóði. „Síðan þeysti Egill upp úr sér spýju mikla og gaus í andlit Ármóði, í augun og nasarnar og í munninn; rann svo ofan um bring- una.“ Daginn eftir skar Egill svo skeggið af Ármóði og krækti úr honum augað. Fleiri svipuð atvik gerast eftir mjólkurdrykkju í sög- unni og enn fleiri í öðrum Íslend- ingasögum. Af lýsingunum dreg ég þann lærdóm að aðeins illmenni fúlsi við mjólk. Hún getur þó orðið þeim til lífs eins og sjá má þegar Egill hyggst svelta sig í hel en mis- heppnast þegar honum er gefin mjólk að drekka fyrir misgá. er drykkur góðs fólks og á kálfskinn eru rituð stórvirki − um það tjáir ekki að deila. Í sam- tímanum gorta íslenskir matvæla- framleiðendur mest af gæðum íslenskra mjólkurafurða. Það að vilja blanda hinni dásamlegu land- námskú við aðrar kýr og óæðri hljómar eins og drottinsvik í mín eyru. Stígum varlega til jarðar og minnumst kvæðis Sigurðar Sigurðssonar dýralæknis: Búkolla mín baular nú/og biður menn að hafa trú/ á litskrúðugri landnáms- kú/sem lífið þakka megum./ Hennar mjólk er holl og góð/ heilsubrunnur vorri þjóð./Kynið hreina sýnir sjóð/sem við bestan eigum. Illmenni og kýr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.