Fréttablaðið - 30.10.2007, Page 56
Íslenska landnámskýrin er eins og þjóðin. Lítil, krúttleg og
afskaplega dugleg. Hún kom með
forfeðrum okkar til landsins í
opnum báti yfir Atlantshafið. Á
skinnum afkvæma hennar er saga
okkar rituð og mjólk hennar hélt
lífi í þjóðinni öldum saman. Í Íslend-
ingasögum eru mjólkurafurðir oft
drifkraftur sögunnar og þeir sem
hafa lesið Sjálfstætt fólk eftir sjálft
Nóbelsskáldið vita að sjaldan er
dauðinn jafn harmrænn í skáldsögu
og þegar hann hittir kálf fyrir.
var löngun Hallgerðar
Höskuldsdóttur í góðan ost í
Hlíðarendabúr sem varð til þess
að spádómurinn um þjófsaugun
rættist. Það að eiginmaður hennar
hafði rekið henni kinnhest fyrir
það eitt að sækja mjólkurafurðir
sýnir best hversu mikil liðleskja
Gunnar var og slíkur búskussi að
halda ekki almennilegri nyt í
kúnum. Kýr eru næsta guðlegar
verur í bókmenntum og því ekki
að undra þótt Gunnar hafi verið
drepinn skömmu síðar.
greina frá því að aðeins truflað fólk
kunni ekki að meta mjólkurafurðir
− fólk eins og Egill Skallagrímsson.
Hann hefur ábyggilega ekki
drukkið nægilega mikið af mjólk,
líklega verið með mjólkuróþol ofan
á drykkjusýkina. Þið munið nú hvað
gerðist þegar Egill fékk skyr að
drekka hjá fjandmanni sínum
Ármóði. „Síðan þeysti Egill upp úr
sér spýju mikla og gaus í andlit
Ármóði, í augun og nasarnar og í
munninn; rann svo ofan um bring-
una.“ Daginn eftir skar Egill svo
skeggið af Ármóði og krækti úr
honum augað. Fleiri svipuð atvik
gerast eftir mjólkurdrykkju í sög-
unni og enn fleiri í öðrum Íslend-
ingasögum. Af lýsingunum dreg ég
þann lærdóm að aðeins illmenni
fúlsi við mjólk. Hún getur þó orðið
þeim til lífs eins og sjá má þegar
Egill hyggst svelta sig í hel en mis-
heppnast þegar honum er gefin
mjólk að drekka fyrir misgá.
er drykkur góðs fólks og
á kálfskinn eru rituð stórvirki −
um það tjáir ekki að deila. Í sam-
tímanum gorta íslenskir matvæla-
framleiðendur mest af gæðum
íslenskra mjólkurafurða. Það að
vilja blanda hinni dásamlegu land-
námskú við aðrar kýr og óæðri
hljómar eins og drottinsvik í mín
eyru. Stígum varlega til jarðar og
minnumst kvæðis Sigurðar
Sigurðssonar dýralæknis: Búkolla
mín baular nú/og biður menn að
hafa trú/ á litskrúðugri landnáms-
kú/sem lífið þakka megum./
Hennar mjólk er holl og góð/
heilsubrunnur vorri þjóð./Kynið
hreina sýnir sjóð/sem við bestan
eigum.
Illmenni og kýr