Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 78
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 7 7 12 16 14 7 12 16 12 14 BALLS OF FURY kl. 8 - 10 EASTERN PROMISES kl. 10 DARK IS RISING kl. 6 - 8 THE HEARTBREAK KID kl. 6 7 16 7 12 16 12 14 THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10 ROUGE ASSASSIN kl. 8 - 10.10 SUPERBAD kl.5.30 - 8 - 10.30 GOOD LUCK CHUCK kl.5.40-8 - 10.20 BALLS OF FURY kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 BALLS OF FURY LÚXUS kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4 - 6 DARK IS RISING kl. 3.45 - 5.50 - 8 THE HEARTBREAK KID kl. 5.30 - 8 - 10.30 RESIDENT EVIL 3 kl. 10.10 GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10.10 HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 3.50 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu BALLS OF FURY kl. 6 - 8 -10 ELIZABETH: THE GOLDEN AGE kl. 5.30 - 8 - 10.30 EASTERN PROMISES kl. 8 - 10.20 SYNDIR FEÐRANNA kl. 6 - 10.20 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST "Virkilega vönduð!" - Á.J., DV HÖRKU HASARMYND MEÐ HEITUSTU TÖFFURUNUM Í DAG, SVAKALEG SPENNA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA www.SAMbio.is 575 8900i i AKUREYRIÁLFABAKKA SELFOSSI KEFLAVÍK KRINGLUNNI VEÐRAMÓT kl. 8 14 THE KINGDOM kl. 8 16 3:10 TO YUMA kl. 10:10 16 HALLOWEEN kl. 10:10 16 HEARTBRAKE KID kl. 8 - 10:20 12 GOOD LUCK CHUCK kl. 8 L THE KINGDOM kl. 10:10 10 ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl tali kl. 6 L MICHAEL CLAYTON kl. 8 7 STARDUST kl. 5:50 10 THE INVASION kl. 8 16 MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 7 THE INVASION kl. 10:10 16 DARK IS RISING kl. 6 7 ÍÞRÓTAHETJAN M/- ÍSL TAL kl. 6 L IN THE LAND OF WOMEN kl. 5:50 - 8 L THE KINGDOM kl. 8 - 10:10 10 MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 7 THE GOLDEN AGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 THE INVASION kl. 8 - 10:30 16 THE INVASION kl. 5:30 8 - 10:30 ÍÞRÓTAHETJAN M/- ÍSL TAL kl. 6 L HEARTBRAKE KID kl. 8 12 THE BRAVE ONE kl. 10:30 16 STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 10 ASTRÓPÍÁ kl. 6 L - bara lúxus Sími: 553 2075 ROGUE ASSASSIN kl. 5.50, 8 og 10.10 16 ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 6 - 600 kr L EASTERN PROMISES kl. 5.50, 8 og 10.10 16 THE HEARTBREAK KID kl. 8 og 10.10 12 LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á H Ö R K U H A S A R Stefán Hjörleifsson, fram- kvæmdastjóri Tónlist.is, óttast ekki að tónlist sé stolið þaðan og henni síðan dreift á netinu. Vænt- anlegri plötu Páls Óskars, Allt fyrir ástina, var stolið eftir að hún var sett í forhlustun á Tónlist.is fyrir síðustu helgi. Eftir það var platan sett á heimasíðuna Torrent. is og kvartaði Páll Óskar sáran undan því. Stefán segir að gæðin á slíkum upptökum geti ekki verið góð. „Gæðin á forhlustuninni eru það slöpp. Hún er bara notuð til að fólk getið hlustað aðeins á og kynnt sér efni. Þetta er ekki eitthvað sem fólk vill eiga á iPodnum sínum,“ segir Stefán. „Við munum halda áfram með forhlustuninna, hún hefur gengið það vel.“ Að sögn Stefán hefur salan á Tónlist.is tvöfaldast eftir að fyrir- tækið hætti að nota höfundavörn á tónlistina sem kom þar út. Núna er hægt að hlusta á tónlist frá fyrir- tækinu á iPod og öðrum stafræn- um spilurum sem áður var ekki hægt. „Það er greinilegt að fólki er treystandi eins og við héldum. Auðvitað er alltaf einhverju stolið, það breytist ekki og hefur verið í gangi alveg frá tímum kassettunn- ar. En það ánægjulegasta er hvað salan rauk upp við þessa aðgerð.“ Framundan hjá Tónlist.is er sala á erlendri tónlist án þessara höf- undavarna, sem hefur hingað til ekki tíðkast erlendis. Vonast Stefán til að fyrirtækið nái þeim áfanga snemma á næsta ári. Halda áfram með forhlustun Listamaðurinn Snorri Ásmundson stendur fyrir bænastund í Laugardalshöll 24. nóvember næstkomandi. Hún er með óhefðbundnu sniði, því henni er ætlað að ná út fyrir öll mörk trúarbragða. Mark- mið Snorra er „að fá sem flesta einstakl- inga og hópa sem aðhyllast mismunandi trúarbrögð til að taka þátt í þessri sameiginlegu bænastund“. Snorri segir bænastundina hafa blundað lengi í sér og hefur rætt við fulltrúa margra trúarbragða og trúfélaga á landinu. Hann segir viðbrögðin mjög jákvæð. „Það eru allir mjög þakklátir og vilja taka þátt í þessu,“ segir Snorri, en trúarbrögð hafa verið honum hugleikin lengi. „Fólk á að eiga sínar stundir með sínum æðri mætti, ekki í gegnum neinn annan, eða einhvern miðstjórnarhóp, eins og kirkjur. Trúarbrögð voru notuð svo mikið sem stýrirtæki sem mér finnst miður,“ segir hann. Bænastundin fer fram í nafni umburðarlyndis og kærleika, sem Snorri segir ekki veita af nú til dags. „Fólk kemur bara saman þarna og biður með sínu sniði. Það er enginn sem leiðir fólk, þannig séð. Ég ýti þessu kannski úr vör, en bænarefnið er hið sama,“ útskýrir Snorri. Bænastundin hefst klukkan 15 laugardaginn 24. nóvember og stendur í klukkutíma. Bænastund allra trúarbragða Vandræðagemlingurinn Pete Doherty hefur verið tíður gestur í fjölmiðlum vegna eiturlyfjavanda síns og samband sitt við ofur- fyrirsætuna Kate Moss. Þegar nánar er að gáð kem- ur þó í ljós að Doherty er ljóðelskur faðir, alinn upp af ástríkum foreldrum. Pete Doherty fæddist 12. mars 1979 í bænum Hexham á Englandi. Móðir hans er hjúkrunarkona og er Doherty miðbarnið í fjölskyld- unni. Á hann tvær systur, þær Amy-Jo og Emily. Faðir hans, sem er af írskum uppruna, var yfir- maður í breska hernum og því þurfti fjölskyldan oft að standa í flutningum þegar Doherty var ungur að árum. Fljótt kom í ljós að Doherty var miklum gáfum gæddur og gekk honum vel í skóla. Var hann mikill bókaormur og hafði mestan áhuga á rómantískum ljóðum og stríðs- ljóðum. Sextán ára gamall vann hann ljóðasamkeppni og ferðaðist í kjölfarið um Rússland á vegum breskra yfirvalda. Seinna meir skráði Doherty sig í Queen Mary-háskólann í Lundún- um og lagði þar stund á enskar bókmenntir en hætti eftir eitt ár. Eftir háskólanámið leigði Doherty íbúð í London með tónlistarmann- inum Carl Barât, sem hafði verið bekkjarfélagi systur hans í Brunel- háskólanum. Saman byrjuðu þeir að semja lög og stofnuðu á endan- um hljómsveitina The Libertines ásamt bassaleikaranum John Hassall og trommaranum Gary Powell. Árið 2001 gerði sveitin samning við útgáfufyrirtækið Rough Trade og árið eftir kom út fyrsta platan, Up the Bracket. Vakti hún gríðar- lega athygli og voru Doherty og félagar sagðir næstu stjörnurnar í bresku tónlistarlífi. Síðan hefur smám saman hallað undan fæti hjá Doherty. Eftir útgáfu annarrar plötu The Libertines hætti hann í sveitinni vegna eiturlyfjavanda og stofnaði hljómsveitina Babyshambles sem er ennþá starfandi. Vegna vandamála sinna hefur Doherty verið meinað að hitta son sinn Astile sem hann á með söng- konunni Lisu Moorish. „Lisu finnst mjög erfitt að halda Pete inni í lífi Astile,“ sagði kunn- ingi Moorish. „Pete er ennþá að berjast við heróínpúkann og þess vegna er erfitt að reiða sig á hann. Stundum hittir hann Astile á hverj- um degi í heila viku en síðan hverf- ur hann í margar vikur og hefur ekkert samband. Hann stendur ekki við það sem hann segir og hann svarar nánast aldrei í símann og það hefur farið illa í Lisu.“ Til að bæta gráu ofan á svart hefur móðir Dohertys skrifað bók um samband sitt og sonar síns. Bókin heitir Pete Doherty: Undrabarnið mitt. Doherty og faðir hans hafa deilt hart í gegnum árin. Um hríð afneitaði faðirinn syni sínum vegna eiturlyfjavanda hans en samkvæmt síðustu fréttum hafa þeir náð sáttum. Doherty á engu að síður enn í vandræðum með fíknina og nýlega baðst hann afsökunar á að hafa freistast til að sprauta sig á nýjan leik eftir að hafa verið laus úr viðjum heróíns í nokkuð langan tíma. Spurningin er hvort Dohertys verði á endanum minnst sem hæfi- leikaríks tónlistarmanns eða sem fyrrverandi kærasta Kate Moss og dópista sem kastaði frá sér tæki- færum á eftirminnilegan hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.