Fréttablaðið - 08.11.2007, Page 33

Fréttablaðið - 08.11.2007, Page 33
Í Evrópu settu tvö stríð mark sitt á tuttugustu öld þó að vissu- lega hafi komið til ófriðar bæði eftir fyrri og seinni heimsstyrj- öldina. Tískan hefur ekki farið varhluta af áhrifum þessara styrjalda, nægir að nefna að rykfrakkinn (trenche) sem var í upphafi hannaður fyrir breska hermenn í stríðinu 1914-18 varð svo ómissandi í hverjum fata- skáp. Eftir báðar heimsstyrjald- irnar má sjá á tískunni anda frelsis og sköpunargleði en þó að undarlegt megi virðast er tíska millistríðsáranna, á þriðja áratug tuttugustu aldar, miklu byltingarkenndari en eftir þá seinni. Í París þar sem tíska er einnig listgrein stendur nú yfir sýning í Galleria-tískusafninu á hönnun frá árunum eftir fyrri heims- styrjöldina milli 1919-1929, „Les années folles“ eins og þau eru kölluð sem mætti þýða sem „Óðu árin“ og vísar í að þá varð allt leyfilegt. Þar má sjá 170 flíkur, aðallega kjóla, 200 fylgihluti og 50 snyrtivörur sem endurspegla tíðaranda og líf Parísardömunn- ar á þessum árum, bæði daga og nætur. Konur voru kallaðar til starfa utan heimilis þegar eiginmenn, feður og synir fóru í herinn. Þær fóru að keyra bíla í fyrsta sinn. Einnig byrjuðu þær að reykja og klipptu hárið stutt. Eftir stríðið komu karlmennirnir (flestir) heim en konur héldu áfram að keyra bíla, reyktu og drukku í fyrsta skiptið opinberlega og hálfsítt hár í anda Charleston varð aðaltískan. Konur sýndu nú á sér bæði ökkla og hné sem ekki þekktist áður. Þetta tímabil ein- kenndist af bjartsýni og enginn trúði því að hörmungar stríðsins myndu nokkru sinni endurtaka sig. Lífið einkenndist af óbær- legum léttleika tilverunnar, í það minnsta hjá þeim sem höfðu eitt- hvað milli handanna. Næturlífið var villt og allt leyfilegt. Callot, Chanel, Patou, Schiap- arelli og Lanvin eru meðal þeirra hönnuða sem eiga flíkur á sýn- ingunni. Kjólarnir bera vitni um ótrúlega vinnu þrátt fyrir að vera framúrstefnulegir miðað við tímann sem þeir endurspegla, hrein listaverk oft og tíðum. Þeir eru skreyttir með útsaumi, sumir með ásaumuðum perlum eða pallíettum, aðrir með steinum og margir með þykku kögri sem sveiflast í nýjum, fjörugum dans- takti þessara ára. Stíllinn er mjög kvenlegur á kvöldin og í næturlífinu en dálítið kynlaus á daginn, í takt við frelsi tíðarand- ans eins og kjóll Lanvin að nafni Lesbos gefur til kynna en nafnið er að finna á skissum tískuhúss- ins sem sömuleiðis má finna á sýningunni. Sýningin var opnuð þann 20. október og stendur yfir fram í enda febrúar 2008. Ættu áhuga- menn um tísku sem eiga leið um París endilega að drífa sig á sýn- inguna.(Les Années folles, Musée Galleria, 10 avenue Pierre Ier-de Serbie, París 16. hverfi). bergb75@free.fr

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.