Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 76
Heather Mills hellti sér yfir fyrr- verandi eiginmann sinn Paul McCartney eftir að hún sá myndir af honum í blöðunum kyssandi milljónamæringinn Nancy Shevell. Dóttir þeirra, Beatrice, sá mynd- irnar og þekkti föður sinn. Við það beið Mills ekki boðanna og hringdi í fyrrverandi eiginmann sinn, jós hann skömmum og kallaði hann hræsnara. Stutt er síðan Mills lét allt flakka í nokkrum sjónvarps- viðtölum um þá meðferð sem hún hefur fengið í fjölmiðlum. Sagðist hún vera í lífshættu og líkti sér við Díönu prinsessu þegar hún var hundelt af ljósmyndurum. „Hann var undrandi á þessum sjónvarps- viðtölum og sagði Mills að hann væri ósáttur við þau,“ sagði kunn- ingi McCartneys. „Hann er rólegur yfir þessu öllu saman núna. Hann hafði vit á því að þegja á meðan hún blaðraði við alla sem vildu hlusta. Hann sagði henni að halda áfram með líf sitt því hann væri einmitt að gera það. Hún var ekki sátt.“ Nancy Shevell er eiginkona lög- fræðingsins Bruce Blakemann og eiga þau táningssoninn Arlen. Voru þau vinir Pauls og fyrri eiginkonu hans Lindu, sem lést úr krabba- meini. Trylltist vegna kossamynda Katie Melua ætti að vera Íslendingum vel kunn en í fyrra söng hún fyrir fullri Laugardalshöll. Söngkonan unga stoppaði stutt á Íslandi fyrir helgi til að kynna nýj- ustu plötu sína, Pictures. „Við stoppuðum hér til að kynna plötuna því Ísland er einn af mínum uppáhaldsstöðum. Náttúran er stórkostleg og mig langar að sjá miklu meira af henni. Sjáðu til dæmis hvað þetta er ótrúlegur foss!“ segir söngkonan Katie Melua upprifin og bendir á mynd af Seljalandsfossi í myndabók Sigurgeirs Sigurjónssonar, Lost in Iceland. Melua var stödd hér á landi fyrir helgi til að kynna þriðju plötu sína, sem kom út fyrir skömmu. Katie Melua vonast til að halda hér aftur tónleika á næsta ári en dagskrá tónleikaferðalagsins hefur ekki verið ákveðin að öðru leyti en því að söngkonan ætlar sér að spila í fæðingarlandi sínu, Georgíu, sem áður tilheyrði Sovétríkjunum. Þaðan flutti Katie sem barn vegna stríðsátaka og hefur búið í London frá fjórtán ára aldri. Pictures er þriðja plata söngkonunnar en þær fyrri gerðu hana að einni söluhæstu tónlistarkonu áratug- arins í Bretlandi. Hún segir nýju plötuna ólíka hinum að því leyti að upphaflega átti að gera tónlist með Tarantino-kvikmyndir í huga. „En svo fór að mörg af bestu lögunum sem við sömdum pössuðu illa inn í þá hugmynd. Við gáfum hana því upp á bátinn, en hún mótar þó anda plötunnar.“ Hún segir Pictures einnig kraftmeiri plötu en hinar tvær. „Loks tókst mér að semja glaðlegt og fjörugt lag, Spellbound,“ segir Katie og er afar sátt við árangurinn. Frekari breytinga er að vænta á næstu plötum Katie því hún hefur slitið listrænu samstarfi við umboðsmann sinn, Mike Batt. „Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu náið við höfum unnið saman að þessari tónlistarsköpun. Plöturnar þrjár innihalda efni tveggja listamanna en ekki aðeins mitt eigið,“ segir Katie. „Mér finnst tími til kominn að ég uppgötvi óstudd sjálfsmynd mína sem listamaður og hætti að treysta á hans frábæru lagasmíði.“ Gagnrýnendur vilja sumir meina að undarlegir textar Batts dragi plötuna niður, en Katie mótmælir: „Ég elska textana hans og þoli ekki hvernig gagnrýn- endur ráðast að honum. Þeir virðast bara ekki ná húmornum, textarnir eru svo sniðugir og óvenjuleg- ir.“ Katie lætur hina miklu velgengni ekki stíga sér til höfuðs. „Ég bjóst aldrei við svona mikilli sölu og finnst þetta frábært. Þessi bransi hefur þó kennt mér að söluhár listamaður er ekki endilega góður listamaður,“ segir Katie. „Góð sala á plötunum veitir mér sjálfstraust en skiptir alls ekki öllu máli.“ Mörgum brá í brún þegar þau tíð- indi bárust að ný plata söngkon- unnar Britney Spears, Blackout, hefði ekki náð toppsætinu á hinum fræga Billboard-lista í Bandaríkj- unum. Sigurvegarar þessarar viku reyndust vera gömlu brýnin í The Eagles með plötu sína Long Road to Eden. Sú plata seldist í ríflega 700 þúsund eintökum en Spears varð að bíta í það súra epli að hafa „aðeins“ náð að selja tæp 300 þús- und eintök þrátt fyrir að salan hefði farið geysilega vel af stað og að platan hefði almennt fallið gagnrýnendum vel í geð. Plata The Eagles er fáanleg í stórverslununum Wal-Mart og Sam´s Club og hingað til hafa sölutölur þaðan ekki verið notaðar. Nú hefur orðið breyting á með þess- um afleiðingum, Britney tapar en The Eagles sitja á toppnum. „Við hefðum vilj- að taka þessa ákvörðun fyrr,“ sagði Geoff May- field hjá Billboard. „En það var bara að koma í ljós að Wal-Mart-versl- anirnar væru tilbúnar til þess að gefa okkur sölutöl- ur um þennan disk.“ Bandaríska leikkonan Sarah Jessica Parker segir sér vera alveg sama um kosningu karlatímarits- ins Maxim sem nýverið titlaði hana kynþokkaminnstu konu veraldar. „Ég læt orð annarra aldrei særa mig svo það truflar mig ekki neitt að fólki þyki ég ekki kynþokkafull, mér þykir það reyndar ekki heldur. Þótt ég verði feit einn daginn verð ég áfram jafn hamingjusöm og núna,” segir Parker sem skaust upp á stjörnuhimininn sem hinn kynþokkafulli kynlífsdálkahöfund- ur Carrie Bradshaw í sjónvarps- þáttunum Sex and the City. Sammála Maxim Rúmlega helmingur aðdáenda hljómsveitarinnar Radiohead borgaði ekkert fyrir nýjustu plötu hennar, In Rainbows. Fólk fékk að ráða því hvort það borg- aði fyrir plötuna og þá hversu mikið. Samkvæmt niðurstöðum könn- unar fyrirtækisins comScorse Inc sáu 62 prósent þeirra sem hlóðu plötunni niður á netinu á fjögurra vikna tímabili í síðasta mánuði ekki ástæðu til að borga fyrir hana. Hinir sem borguðu fyrir hana greiddu að meðaltali um 350 krónur fyrir hana. Frá 1. til 29. október heimsóttu 1,2 milljónir manna heimasíðu Radiohead en í könnuninni kemur ekki fram hversu margir tryggðu sér eintak. Fleiri borguðu ekki Britney í öðru sæti komin í verslanir og leigur á DVD TAKTU ÞÁTT Í JÓLALEIK HARRY POTTER Límmiðinn á myndinni gæti fært þér 42 TOMMU PHILIPS PLASMA SJÓNVARP, Ipod, árskort í Sambíóin og margt fleira. Nánari upplýsingar á www.fm957.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.