Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 70
Fyrir einu ári var ferill Tom Cruise kom-
inn í öngstræti, kvikmyndaverin forðuðust
að vera bendluð við hann og stórstjarnan
virtist ekki trekkja neitt að. Og stóra spurn-
ingin er sú, tókst Cruise á hálfu ári að leggja
glæsilegan feril í rúst?
Eflaust er hægt að segja margt um Tom Cruise en
enginn skyldi vanmeta völd hans í Hollywood. Frá
árinu 1999 hefur Cruise leikið í að minnsta kosti einni
mynd á ári. En það er varla tilviljun að Cruise skuli
hafa valið að leika með þeim Robert Redford og
Meryl Streep í kvikmyndinni Lion for Lambs sem
frumsýnd verður um helgina. Ímynd hans hefur
beðið hnekki á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru
síðan hann kom út úr skápnum með ástarsamband
sitt og Holmes.
Heimsbyggðin stóð á öndinni
þegar Cruise kynnti fjölmiðla
fyrir Katie í apríl 2005. Ekki varð
þverfótað fyrir samsæriskenning-
um um að sambandið væri
tilbúningurinn einn, hann
þyrfti á umfjöllun að
halda vegna War of the
Worlds og kveða í
kútinn kjaftasögurnar
um meinta samkyn-
hneigð sína.
Á einni nóttu varð til
undarlegt æði, hjá
fjölmiðlum og
almenningi sem
þyrsti í sífelldar
fréttir af parinu. Í
maí mætti Cruise til
Opruh Winfrey og
ræddi um sjálfan sig
og nýju kærustuna.
Áhorfendur göptu af
undrun þegar Tom
hoppaði hæð sína í sófanum
og sagðist vera „brjálaður í
hana“.
Flestir sammæltust um að Cruise væri bara brjálaður
og það þyrfti enga Katie í þá jöfnu. Á þjóðhátíðardegi
Íslendinga stal Cruise athyglinni frá hoppkastölunum
og pylsunum í Hljómskálagarðinum og tilkynnti að
hann hefði beðið unnustu sinnar í Eiffel-turninum í
París. Og þrátt fyrir að Cruise svifi um á bleiku skýi í
einkalífinu var ferillinn að hruni kominn. Kvik-
myndaverið Paramount boðaði hann á sinn fund og
tilkynnti honum að margra ára sambandi þeirra væri
lokið, umfjöllunin síðustu misserin hefði skaðað
ímynd fyrirtækisins en Cruise hafði þá verið tekinn
af lífi í fjölmiðlum og almenningur hló að honum en
ekki með.
Furðusögurnar um Cruise og Holmes héldu áfram.
Hlutverkaval hennar var allt í einu komið í hendur
Cruise og svo mikil varð afskiptasemi leikarans að
framleiðendur Batman þökkuðu Katie kærlega vel
fyrir leikinn í Batman Begins en afþökkuðu
nærveru hennar og Toms við frumsýningar. Og
þegar kom að því að velja í hlutverkin fyrir
næstu mynd var Katie víðsfjarri og
Maggie Gyllenhaal mun aðstoða riddara
næturinnar í baráttunni gegn Jókern-
um sem lögfræðingurinn réttláti
Rachel Dawes.
Vísindakirkjan og stöðug predikun
hans um ágæti þeirrar stofnunar og
yfirlýsingar hans um fæðingarþung-
lyndi ólu á hreinræktuðu hatri í garð
Cruise og ef til vill náði þetta allt
hámarki þegar þýska ríkisstjórnin
meinaði honum að taka upp í herstöð
í landinu nýverið vegna trúar sinnar.
Eftir nokkrar samningaviðræður
náðist þó að leysa hnútinn.
En enginn skyldi afskrifa Cruise,
þrátt fyrir hrakfarir síðustu tveggja
ára. Þó að viðtökurnar á Lions for
Lambs hafi ekki verið í samræmi við
væntingar bíða menn nú spenntir eftir
Valkyrjunni, sögunni um manninn sem
reyndi að drepa Adolf Hitler. Hver veit,
kannski lumar Tom á einhverju leyni-
vopni sem fær almennning til að
gleyma hinum klikkaða Cruise.
Ef handritshöfundar og fulltrúar
kvikmynda-og sjónvarpsiðnaðar-
ins semja ekki innan næstu tveggja
sólarhringa gæti verkfall þeirra
fyrrnefndu orðið æði langt. Þetta
kemur fram í kvikmyndatímarit-
inu Variety. Samkvæmt úttekt
blaðsins á kjarabaráttu hand-
ritshöfunda hafa
deiluaðilar
verið svo upp-
teknir af því að
benda hvor á
annan sem söku-
dólg að þeim
hefur ekki einu
sinni tekist að
útskýra fyrir
fjölmiðlum hver
hin raunverulega
ástæða fyrir verkfallinu er. Og
vilji þeir komast hjá dýru og löngu
verkfalli verða þeir að setjast
niður á allra næstu misserum.
Verkfallið er þegar farið að hafa
áhrif á sjónvarpsiðnaðinn og strax
á mánudaginn var endursýningum
af David Letterman og Jay Leno
skellt inn í dagskrána. Afleiðing-
arnar af löngu verkfalli gætu þó
farið að sjást á næstunni því
þættir gætu þurft að stytta sýn-
ingarferli sitt eða fara í tíma-
bundið hlé ef þetta dregst á
langinn. Afleiðingar fyrir kvik-
myndaiðnaðinn koma líklega
ekki í ljós fyrr en eftir þó nokk-
urn tíma enda hafa kvikmynda-
verin verið dugleg við að safna að
sér bitastæðum handritum.
Deilan snýst um að handritshöf-
undar vilja fá sinn hlut af kökunni
í dvd-útgáfunni en þar hafa þeir
setið eftir. Shawn Ryan, samninga-
maður handritshöfunda, er ekki
bjartsýnn á framhaldið og segir
fulltrúa kvikmynda- og sjónvarps-
iðnaðarins ekki líklega til að ganga
að þeirra kröfum. „Þeir hafa komið
fram við okkur af mikilli óvirð-
ingu og yfirlýsingar þeirra um að
við hefðum slitið samningaviðræð-
unum eru algjörlega út í hött,“
sagði Ryan við Variety.
Verkfallsdeila handritshöfunda í hnút
John Farley vaknar upp við vondan
draum einn daginn þegar hann upp-
götvar að móðir hans hyggst ganga í
það heilaga. Ekki er það þó það að
John vilji ekki að móðir hans finni
hamingjuna á nýjan leik heldur er
brúðguminn af verri gerðinni, fyrr-
verandi leikfimiskennarinn frá
barnaskólaárunum sem var og er
alræmdur fyrir illsku sína og þekkt-
ur fyrir að gera líf nemenda sinna
að martröð.
Varla er það algengt að gaman-
mynd af þessu tagi skuli skarta jafn
virtum nöfnum og Mr. Woodcock en
með aðalhlutverkin fara þau Billy
Bob Thorton og Susan Sarandon.
Sean William Scott er kannski kunn-
uglegra nafn en þau Bob og Susan
en hann lék í American Pie-mynda-
unum sem slógu eftirminnilega í
gegn. Eitthvað virðist þó ferill Bill-
ys Bobs vera á niðurleið því hlut-
verkin sem hann hefur fengið að
undanförnu hafa öll verið í þessa
áttina; Bad Santa, Bad News Bears
og School for Scoundrels. Af honum
verður það hins vegar ekki tekið að
leikarinn gerir það manna best að
leika hreinræktuð skítseyði. Susan
Sarandon hefur látið lítið fyrir sér
fara að undanförnu.
Martröð skóladrengs
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
rv
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.