Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 48
fréttablaðið farið á fjöll 8. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR12
fólk sé áhugasamt um að prófa og hafa gaman
af þessu,“ segir Sveinbjörn en elsti meðlimur
félagsins í dag er 31 árs og sá yngsti 22 ára.
Sem dæmi um hve virkni félagsins eru
farnar jeppaferðir aðra hverja helgi á veturna
en einu sinni í mánuði á sumrin. „Það bætast
stöðugt nýir félagar í hópinn og til dæmis ætla
28 manns sem aldrei hafa farið í jeppaferð að
koma með okkur í nýliðaferð sem verður farin
16. nóvember í samstarfi við 4x4 klúbbinn,“
segir Sveinbjörn.
Spurður hvort jeppamennskan sé skemmti-
legt sport segir Sveinbjörn: „Þetta er það
besta. Ísland er náttúrlega svo stórkostlegt
land og æðislega gaman að ferðast um það og
taka myndir. Maður kemst í burtu frá öllu og er
jafnvel ekki í símasambandi þannig að þetta er
alveg yndislegt. Síðan er félagsskapurinn alveg
frábær. Við stoppum einhvers staðar og gistum
ýmist í tjöldum eða skálum og höldum kvöld-
vökur og borðum góðan mat. Þannig að þetta er
algjört lúxuslíf.“
sigridurh@frettabladid.is
Sveinbjörn Ingi Þorkelsson er
mikill jeppaáhugamaður og
meðlimur í Gemlingunum,
sem er ferðaklúbbur ungs
jeppaáhugafólks. Félagið er
mjög virkt og fer í fjölda jeppa-
ferða á hverju ári upp um fjöll
og firnindi.
„Félagið var stofnað í febrúar árið
2004 af þremur vinum sem vildu
fara í jeppaferðir með fólki á
sínum aldri,“ segir Sveinbjörn en
sjálfur hefur hann verið meðlimur
í Gemlingunum frá upphafi. „Þau
ákváðu að finna fólk milli tvítugs
og þrítugs sem hefði áhuga á slík-
um félagsskap og fljótlega eftir
stofnfundinn var farið í fyrstu
ferðina. Stuttu seinna var haldið
partí og upp frá því myndaðist
mikill vinskapur sem hefur haldist
síðan. Í dag er það þannig að með-
limir félagsins tala saman jafn-
vel oft á dag því einhverjir vinna
saman, breyta bílum í samein-
ingu, æfa saman og fleira þannig
að í rauninni er þetta orðið miklu
meira en ferðahópur,“ bætir hann
við.
Þrátt fyrir þennan mikla vin-
skap meðlima segir Sveinbjörn
að Gemlingarnir séu mjög opnir
fyrir nýju fólki. „Við viljum endi-
lega að krakkar á okkar aldri
komi til okkar ef þeir vilja ferð-
ast á fjöllum en þora ekki að fara
einir. Við tökum nýliða með okkur
í ferðir allt árið og engin skilyrði
eru fyrir þátttöku önnur en þau að
Galvaskir Gemlingar
Það er margt brallað í ferðum Gemlinganna og segir
Sveinbjörn félagsskapinn vera alveg einstakan.
Stór hópur frá Gemlingunum og 4x4 klúbbnum fór í nýliðaferð saman í Landmannalaugar en næsta
nýliðaferð þessara tveggja félaga verður hinn 16. nóvember næstkomandi.
Hér er Sveinbjörn á leið yfir Tungnaá síðastliðið sumar.
Skömmu eftir að myndin var tekin fékk Sveinbjörn
vatn inn á vélina með þeim afleiðingum að hún sprakk.
Sveinbjörn Ingi Þorkelsson jeppaáhugamaður er til hægri en með honum á myndinni er Jóhann Ingi, einn af stofnendum Gemlinganna. Merki félagsins er á milli þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR