Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 62
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingarsendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ef ég gæti verið grennri en ég
er, án þess að valda vanlíðan og
spennu í lífi mínu, þá væri ég
það. Í dag er raunveruleikinn
hins vegar sá að líf mitt er mér
mikilvægara en líkamsþyngdin.
Guði sé lof fyrir það.“
Louvre-safnið opnað
Sr. Toshiki Toma, prestur innflytjenda
er 49 ára í dag og þó það teljist ekki
til stórafmælis þá eru samt tímamót í
lífi hans í þessari viku því fyrsta ljóða-
bókin hans er að koma út. Fimmta árs-
tíðin. Það mun jafnframt vera fyrsta
ljóðabók innflytjanda hér á landi. Tos-
hiki er í Japan af persónulegum ástæð-
um en var tekinn á beinið áður en hann
fór og spurður út í skáldskapinn og út-
gáfuna. Fyrsta spurning er hvenær
hann hafi byrjað að yrkja á íslensku.
„Ég byrjaði á jóladag 2001,“ svarar
hann og það vottar fyrir feimni. „Mig
hafði lengi langað að takast á við ljóð-
formið en hafði aldrei fundið tíma til
að láta verða af því. Tækifærið kom
á jóladag 2001. Ég var einn heima og
hafði ekkert sérstakt að gera. Þá hugs-
aði ég: Í dag prófa ég að yrkja.“
Toshiki segir það hafa tekið hann
allan daginn að búa til fyrsta ljóðið en
það hafi verið mjög skemmtileg upp-
lifun. Hvert skyldi svo yrkisefnið hafa
verið. „Þetta var prósaljóð og fjallar
um þjáningu mannsins. Þó það væri
ort á jólum er það ekki sérstaklega
tengt jólunum. Maðurinn er elskuleg-
ur í eðli sínu og sýnir náunga sínum
kærleika en svo stundum svíkur hann
og þá mæta honum erfiðir tímar. Þetta
er efni fyrsta ljóðsins.“
Toshiki hefur haldið ótrauður áfram
að yrkja eftir jóladaginn 2001 og
kveðst búa til svona tíu til fimmtán
ljóð á hverju ári. Um fjörutíu þeirra
eru í nýju bókinni og flest tengjast þau
á einhvern hátt náttúru Íslands nema
fyrsta ljóðið hans sem er undantekn-
ing og hefur dálitla sérstöðu. „Þetta
eru stutt ljóð sem eru kveðin um nátt-
úru Íslands, björt og einföld. Mörg
þeirra tengjast árstíðunum, vori,
sumri, hausti og vetri. En sum þeirra
fjalla um ást og óskir lífsins og snert-
ir á tveimur menningarheimum, jarð-
lífinu og hinu guðlega. Ég flokkaði því
ljóðin í fimm hópa, vor, sumar, haust
vetur og líf. Þess vegna er titill bókar-
innar Fimmta árstíðin.“
Undirbúningur undir útgáfuna byrj-
aði í vor að sögn Toshiki. „Ég veit svo
lítið um hvað þarf til að gefa út bók
en góður vinur minn sem stýrir ljod.
is hjálpaði mér heilmikið þannig að ég
fékk góða aðstoð,“ segir hann brosandi.
Spurður í lokin hvort einhverjar að-
stæður reynist honum betri en aðrar til
að yrkja svarar Toshiki. „Skáldskapur-
inn er fyrst og fremst tómstundagam-
an hjá mér. Ég skrifa oft í blöðin um
ýmis samfélagsmál eins og fordóma
og innflytjendamál. Það er hluti af
vinnunni minni. Mér finnst samt leið-
inlegt að fólk haldi að ég hugsi bara
um fordóma og óréttlæti í samfélag-
inu því ég er maður sem sé líka fegurð
í náttúrunni og í mannlegum samskipt-
um. Mig langaði bara að segja frá því
líka í ljóðunum mínum.“
Elskulegur eiginmaður minn og besti
vinur, faðir, tengdafaðir og afi,
Edvald Gunnlaugsson
lést þann 5. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
12. nóvember kl. 15.00.
Málfríður Eyjólfsdóttir
Edda Eðvaldsdóttir Þór Þorvaldsson
Eðvald Brynjar og Þórdís
Halldór Eyjólfsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingibjörg Sæunn Jóhannsdóttir
ljósmóðir, Blesastöðum, Skeiðum,
sem lést á heimili sínu 28. október, verður jarðsungin
frá Skálholtskirkju laugardaginn 10. nóvember kl. 14.
Sigurður Hermannsson Elín Árnadóttir
Kristín Hermannsdóttir Vilmundur Jónsson
Guðrún Hermannsdóttir Hjalti Árnason
Sigríður N. Hermannsdóttir Jónas H. Jónasson
Hildur Hermannsdóttir Kristján Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
Garðar Steinarsson
flugstjóri, til heimilis að Flyðrugranda 4,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 6. nóvember. Útförin
verður gerð frá Neskirkju þriðjudaginn 13. nóvember
kl. 15.
Ásta Sveinbjarnardóttir
Hróðný Garðarsdóttir
Þórhildur Garðarsdóttir Björgvin Þórðarson
Páll Garðarsson
Ásta, Garðar og Dúna
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og systir,
Rannveig Jónsdóttir
Sólheimum 23 5E, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 1. nóvember á krabbameinsdeild
Landspítalans við Hringbraut. Jarðarförin fer fram frá
Langholtskirkju föstudaginn 9. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á krabbameins-
deild Landspítalans og Leitarstöð Krabbameinsfélags
Íslands.
Alois Raschhofer
Birgit Raschhofer Jóhann Pétur Guðvarðarson
Róbert Jón Raschhofer Margarete Schrems
barnabörn, Ásmundur Jónsson og fjölskyldur.
Elsku systir mín og frænka,
Sigríður Þórðardóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Stigahlíð 36, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn
9. nóvember kl. 14.00.
Guðný Þórðardóttir
Gunnvör Valdimarsdóttir Jóhann G. Sigfússon
Ragna, Alda Sif, Þorsteinn, Þórgunnur og fjölskyldur.
Okkar ástkæra og yndislega
Þórlaug Kristinsdóttir
Grundargötu 7, Dalvík,
lést sunnudaginn 4. nóvember á Dvalarheimilinu
Dalbæ, Dalvík. Jarðarförin fer fram frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 10. nóvember kl 13.30.
Arnfinnur Friðriksson Steinunn Pálsdóttir
Jóna Kristín Friðriksdóttir Stefán A. Magnússon
Gunnar Magni Friðriksson Sigrún K. Júlíusdóttir
Friðrik Reynir Friðriksson Marín Jónsdóttir
Irma Ingimarsdóttir Bjarmi Fannar Irmuson
Silja Pálsdóttir Freyr Antonsson
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
Hulda Reynhlíð
Jörundsdóttir
frá Vestmannaeyjum,
sem lést fimmtudaginn 1. nóvember, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. nóvember kl. 15.
Björg Sigurðardóttir Hallgrímur Valdimarsson
Inga Jóna Sigurðardóttir Sævar G. Proppé
Guðlaugur Sigurðsson Kristrún O. Stephensen
barnabörn, systkini og fjölskyldur þeirra.
60 ára afmæli
Birgir Karlsson
fv. skólastjóri og fulltrúi hjá Valitor
(Visa), Bakkastöðum 5, Reykjavík.
Í tilefni afmælisins tekur hann á
móti gestum í Oddfellowhúsinu við
Vonarstræti, Reykjavík, á morgun
föstudaginn 9. nóvember frá kl. 17-20.
Gjafir afþakkaðar.