Fréttablaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 74
Nemendur á þriðja ári í vöruhönnun í Lista-
háskóla Íslands sýndu afrakstur vinnu sinnar
síðastliðinn mánudag. Eftir að hafa kynnt sér
starfsemi fyrirtækja í póstnúmerinu 105 fundu
nemendur sér samstarfsaðila úr þeirra hópi. Hér
má sjá brot af útfærslum nemendanna átta, sem
eru hver annarri skemmtilegri.
Fatahönnuðurinn Marín Manda
Magnúsdóttir rekur barnafata-
verslun í Kaupmannahöfn og
hefur nú bætt vefverslun við
þjónustuna. „Það gengur rosa-
lega vel með hana. Það eru aðal-
lega Danir og Norðmenn sem
hafa keypt af okkur, þeir virðast
vera duglegri við þetta en Íslend-
ingarnir,“ segir Marín Manda,
sem segir að verslunin henti
Íslendingum þó ekki síður. „Ég
held að það sé oft ódýrara að
versla í gegnum netið en á Íslandi,
þó að sendingarkostnaðurinn
bætist ofan á. Upphæðin er ekki
það há, og þar að auki kemur
þetta enn betur út ef fólk kaupir
fleiri en eina flík,“ bendir hún á.
Verslunin Baby Kompagniet
var opnuð í mars en vefverslunin
fékk að sitja á hakanum. „Upp-
haflega hugmyndin var að stofna
bara vefverslun. Hún kviknaði
eiginlega þegar ég var sjálf í
fæðingarorlofi að versla á netinu
á dóttur mína. Mér fannst vanta
samansafn af þeim merkjum sem
ég var áhugasöm um. Þegar við
fórum í að opna sjálfa búðina
gafst enginn tími fyrir þetta, en
nú er þetta allt að smella saman,“
segir Marín Manda.
Vefverslunina er að finna á
baby-kompagniet.dk. Meðal þess
sem þar er hægt að nálgast eru
barnaföt frá merkinu Nümph, en
kvenföt frá því merki hafa átt
vinsældum að fagna hér á landi.
Sendingarkostnaður til Íslands
nemur 155 dönskum krónum.
Baby Kompagniet á netinu
Mugison, Brain Police, Raggi
Bjarna og Dr. Spock koma fram á
opnunarhátíð Hljóðfærahússins
næstkomandi laugardag. Fagnað
verður nýju og stærra húsnæði
verslunarinnar að Síðumúla 20 og
stendur hátíðin yfir frá kl. 13 til
17.
Á meðal fleiri flytjenda á
hátíðinni verða Land og synir,
Hunang, Jazzkvartett Guðmundar
Steingrímssonar, Bardukha,
píanóleikarinn Þuríður Helga og
fiðluleikararnir Páll Palomares
og Geirþrúður Ása.
Tónleikar og
nýtt húsnæði
Myndband af Michael Lohan, föður Lindsay, þar sem hann
reynir að selja sjónvarpsstöðvum hugmynd að veruleikaþætti
um sjálfan sig hefur gengið manna á milli á netinu síðustu
daga. Hann hefur áður haft slíkar hugmyndir, til dæmis
þegar hann vildi taka upp þátt með sér og dóttur sinni, Paris
Hilton og föður hennar og Jessicu og Joe Simpsson. Michael
hefur hins vegar þverneitað þessum orðrómi.
„Ég er svo sannarlega ekki að leita að
veruleikaþætti. Dina sér um það og ég sé
um mitt,“ segir hann.
Dina Lohan reitti dóttur sína til reiði á
dögunum þegar hún samþykkti að
Lindsay kæmi fram í veruleikaþætti um
líf Dinu á sjónvarpsstöðinni E.
Svo virðist sem Michael
vilji ekki fara sömu leið, en samband hans og dótturinnar var
lélegt með eindæmum þangað til Lindsay fór í meðferð í ár.
Michael segir myndbandið á netinu vera
hrekk á sinn kostnað, þar sem
einhverjir hafi klippt saman upptökur.
Hann hefur hingað til verið afar
opinskár um hag og líf dóttur sinnar.
Nú er útlit fyrir að foreldrar
Lindsay Lohan verði hvort um sig
með veruleikaþætti um líf sitt í
sjónvarpi á sama tíma og hún
reynir að koma fótunum
aftur undir sig.
Lohan-fjölskyldan á skjáinn