Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 29

Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 29
Kjúklingur er sívinsæll á borðum Íslendinga og kunna flestir að hrista hina ýmsu kjúklingarétti fram úr erminni. Oft vill þó brenna við að sami rétturinn verði ítrekað fyrir valinu en hráefnið býður þó upp á óteljandi möguleika. Í sumar kom bókin Kjúklingaréttir út hjá Skjaldborg og yfirfór matreiðslumeistarinn Ingvar Helgi Guð- mundsson, eigandi Salatbarsins, alla réttina og inni- haldsefnin. Hann segist strax hafa fallið fyrir bók- inni. „Hún er einföld í uppsetningu og ríkulega myndskreytt bæði af aðgerðarmyndum og myndum af réttunum,“ segir Ingvar. Hann segir ýmsar nýstárlegar uppskriftir að finna í bókinni og nefnir til dæmis saltbakaðan kjúkling sem hefur vakið mikla lukku. „Þetta er ofboðslega einfaldur og ódýr réttur en kjúklingurinn er hjúpaður sjávarsalti og eggjahvítu og skellt í ofn,“ segir Ingvar. Eftir það er þess vegna hægt að fara út að hlaupa í klukkutíma og korter því það gerist ekkert á meðan.“ Ingvar segir ekki þurfa neina sósu með kjúklingnum því hann verði safaríkur með þessari sérstöku eldunaraðferð. Hann segir að gott salat, brauð og hrísgrjón sé upplagt meðlæti. „Það er gaman að segja frá því að Jamie Oliver gerði þennan rétt í þætti hjá Jay Leno á dögunum og spurði hann Leno hvernig bragðaðist. Hann svaraði því til að það vantaði aðeins meira salt. Raunin er þó sú að saltmagnið verður alveg mátulegt því það myndast skel utan um kjúklinginn við baksturinn sem er síðan brotin af. Ólíkt því sem ætla mætti verður kjúklingurinn alls ekki brimsaltur.“ Ingvar segir ýmis góð ráð og leiðbeiningar fylgja uppskriftunum í bókinni og bendir til dæmis á að það þurfi að elda heilan kjúkling við lægri hita en bringur. „Ástæðan er sú að ekki er búið að fylla hann með með sykri og vatni,“ segir Ingvar. Þá hvetur hann fólk til að búa til kjúklingasoð úr beinunum til að eiga, enda sé það miklu heilnæmara en kjötkraftsteningar, sem hann segir fulla af aukaefnum. Uppskrift á næstu síðu. Einfalt en óvenjulegt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.