Fréttablaðið - 06.12.2007, Síða 6
6 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Þú vilt ekki fá hvaða jólasvein
sem er inn um gluggann hjá þér!
Hringdu núna í 570 2400 og fáðu frekari upplýsingar.
www.oryggi.is
Jólatilboð á Heimaöryggi. Prófaðu endurgjaldslaust í 3 mánuði.
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
Frábær jólagjöf!
Við minnum á rafrænu gjafakortin okkar.
Þú velur upphæðina og við útbúum gjafakortið
fyrir þig við afgreiðslukassana.
FÉLAGSMÁL Ráðist verður í viða-
miklar aðgerðir til að bæta kjör
aldraðra og öryrkja, og taka helstu
breytingarnar gildi í apríl og júlí
á næsta ári. Þetta tilkynntu fimm
ráðherrar ríkisstjórnarinnar á
fundi með fréttamönnum í gær.
„Ég legg áherslu á að þetta er
bara skref, við erum alls ekki
hætt. En þetta er það sem við
ráðum við að gera í augnablik-
inu,“ sagði Geir H. Haarde for-
sætisráðherra þegar hann kynnti
breytingarnar.
Stærstu aðgerðirnar eru þær að
skerðing tryggingabóta vegna
tekna maka verður afnumin, og
frítekjumark ellilífeyrisþega á
aldrinum 67-70 ára hækkar úr 25
þúsund krónum á mánuði í 100
þúsund krónur á mánuði.
„[Þetta er í] samræmi við
nútíma hugmyndir um að allir ein-
staklingar séu fjárhagslega sjálf-
stæðir,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra.
Afnám skerðinga bóta vegna
tekna maka sé því gríðarlega mik-
ilvæg réttarbót.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði að þessar
aðgerðir hefðu verið unnar í
félagsmálaráðuneytinu, með
aðkomu hagsmunasamtaka aldr-
aðra og öryrkja, auk aðila vinnu-
markaðarins; ASÍ og BSRB.
Aðgerðirnar séu í samræmi við
tillögur nefndar sem fjallaði um
málaflokkinn, og skilaði nýverið
niðurstöðu sinni.
„Stóra málið er eftir,“ sagði
Jóhanna. Þar á hún við heildar-
endurskoðun á almannatrygg-
ingakerfinu. Nefndin mun starfa
áfram til að vinna að því verki.
Fram kemur í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar að hún hafi þegar
hafið undirbúning frekari aðgerða
sem koma muni til framkvæmda í
áföngum á árunum 2008 til 2010.
Aðgerðirnar sem kynntar voru í
gær byggja á stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar frá því í vor,
sagði forsætisráðherra. Hann
sagði að þessar breytingar myndu
koma fram sem breyting á fjár-
lögum 2008 við þriðju umræðu.
Kostnaður ríkissjóðs við þessar
breytingar mun nema 2,7 millj-
örðum króna á næsta ári, en á
heilu ári er reiknað með að kostn-
aðurinn verði 4,3 milljarðar
króna.
Í sumar afnam ríkisstjórnin
skerðingar á ellilífeyri 70 ára og
eldri vegna atvinnutekna. Það
kosti um 700 milljónir króna á ári,
að sögn Geirs. Breytingarnar
kosta því samtals fimm milljarða
á ári. brjann@frettabladid.is
Aðgerðir bæta kjör
aldraðra og öryrkja
Ríkisstjórnin ætlar að afnema skerðingu bóta vegna tekna maka og hækka frí-
tekjumark aldraðra. Breytingar kosta 4,3 milljarða á ári. Stóra skrefið er breyt-
ing á almannatryggingakerfinu sem verður síðar, segir félagsmálaráðherra.
BREYTINGAR KYNNTAR Fimm ráðherrar kynntu fyrirhugaðar breytingar á fundi með
fréttamönnum í gær. Þar voru þau Jóhanna Sigurðardóttir, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, Geir H. Haarde, Guðlaugur Þór Þórðarson og Árni M. Mathiesen.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
■ Skerðing tryggingabóta vegna
tekna maka afnumin frá 1. apríl
2008.
■ Frítekjumark vegna atvinnutekna
ellilífeyrisþega 67 til 70 ára hækkar í
100 þúsund krónur frá 1. júlí 2008.
■ Gripið til aðgerða til að draga úr
of- og vangreiðslum tryggingabóta
frá 1. apríl 2008.
■ Skerðing lífeyrisgreiðslna vegna
innlausnar séreignarsparnaðar
afnumin frá 1. janúar 2009.
■ Vasapeningar vistmanna á
stofnunum hækka um 30 prósent, í
36.500 krónur á mánuði, frá 1. apríl
2008.
AÐGERÐIR RÍKISSTJÓRNARINNAR
BRETLAND, AP Maður sem gaf sig
fram á lögreglustöð í Bretlandi á
laugardag eftir að hafa horfið
sporlaust fyrir fimm árum við
kajakróður var í gær handtekinn
af bresku lögreglunni fyrir fjár-
svik.
Breskir fjölmiðlar greindu í
gær frá því að maðurinn, John
Darwin, hefði sést ásamt konu
sinni, Anne, í Panama í Mið-
Ameríku í fyrra. Ljósmynd, sem
sögð var ársgömul, var birt af
þeim ásamt yfirmanni fyrirtækis
sem leigir út íbúðir í Panama.
Í viðtölum við Anne, sem flutti
til Panama fyrir sex vikum, sagð-
ist hún hafa fengið líftryggingu
eiginmanns síns greidda út í
þeirri trú að hann væri dáinn.
Lögregluforinginn Tony
Hutchinson sem leiðir rannsókn-
ina sagði að unnið væri að því að
púsla saman upplýsingum um
hvar John hefði verið undanfarin
fimm ár og kallaði hann eftir
aðstoð almennings við það. Til
skoðunar er að óska eftir fram-
sali Anne frá Panama.
John hvarf þegar hann var á
kanósiglingu í Norðursjó fyrir
fimm árum. Kanóinn fannst síðar
brotinn á strönd og lýsti dánar-
dómstjóri John loks látinn. Þegar
hann gaf sig fram við lögreglu á
laugardaginn sagðist hann ekk-
ert muna eftir síðustu fimm
árum. - sdg
Hvarf fyrir fimm árum og lýstur dáinn en sagður hafa sést í Panama í fyrra:
Kajakræðarinn grunaður um fjársvik
JOHN DARWIN Segist ekkert muna eftir
tímanum frá því hann hvarf.
NORDICPHOTOS/AFP
Finnst þér notkun fingrafarales-
ara í mötuneytum grunnskóla
eðlileg?
Já 49%
Nei 51%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú sátt(ur) við stefnu ríkis-
stjórnarinnar í loftslagsmálum?
Segðu skoðun þína á visir.is
FÉLAGSMÁL „Þetta eru auðvitað
miklir peningar og miklar úrbætur
og nú munum við fara yfir til
hverra þeir fara í hópi aldraðra og
öryrkja,“ segir Guðni Ágústsson,
formaður Framsóknarflokksins.
Hann segist óttast að fjárlögin
séu þanin. „Við höfum áhyggjur af
verðbólgunni. Það er enginn meiri
þjófur til, hvað lífskjör allra varðar,
en verðbólgan, sem öllu vill stela.“
Guðni segir það „gríðarlega
mikilvægt að rétta þeim stuðning
sem minnst hafa. Við höfum þó
varað mjög við þenslufrumvarpi
ríkisstjórnarinnar. Þetta má ekki
verða til þess að hella bensíni á
þann eld.“ - kóþ
Guðni um aðgerðirnar:
Óttast hinn
mikla þjóf
FÉLAGSMÁL „Þetta er mjög gott
skref fram á veginn, þótt auðvit-
að þurfi að gera meira,“ segir
Margrét Margeirsdóttir, formað-
ur Félags eldri borgara, um
aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Hún
nefnir hærri skattleysismörk
sem dæmi um það sem betur
mætti fara.
„En það er greinilegt að það er
einhver viðhorfsbreyting hjá rík-
isstjórninni. Ég bind vonir við að
loksins verði mörkuð heildar-
stefna í þessum málaflokki. En
auðvitað vildi maður að þetta
kæmi allt til framkvæmda fyrr.“
Sigursteinn Másson, formaður
Öryrkjabandalagsins, er einnig
jákvæður. „Ég tel að þetta sé
mikið framfaraspor, þótt ég hefði
viljað sjá þetta fyrr á árinu,“
segir hann. Mikilvægast sé að
afnema skuli tekjutengingu
maka. Hundrað þúsund króna frí-
tekjumarkið vegna atvinnutekna
ellilífeyrisþega segist Sigur-
steinn ganga út frá að komi einn-
ig í hlut öryrkja.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna segist að
sjálfsögðu fagna auknum fram-
lögum í málaflokkinn. Aðgerðir
ríkisstjórnarinnar gangi þó skem-
ur en kosningaloforð Samfylk-
ingarinnar hafi gefið til kynna.
„En þetta er í átt að þeim breyt-
ingartillögum sem við lögðum til
við aðra umræðu fjárlaga. Þá
lögðum við til að fimm milljarðar
færu inn á ársgrundvelli. Þessu
er hins vegar dreift á tvö ár.“
- kóþ
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar leggjast vel í öryrkja, aldraða og Vinstri græna:
Mjög gott skref fram á veginn
MARGRÉT
MARGEIRSDÓTTIR
KJÖRKASSINN