Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 8
8 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
39
98
6
12
/0
7
Brettapakkar
20% afsláttur
Auglýsingasími
– Mest lesið
BYGGÐAMÁL „Frá mínum sjónarhóli séð er æskilegast
að útgerðarfyrirtæki eigi jafn mikinn kvóta og því er
úthlutað í byggðakvóta,“ segir Úlfar Thoroddsen
formaður bæjarstjórnar Vesturbyggðar.
Fjórar umsóknir um byggðakvóta liggja hjá
bæjarstjórn. Ein þeirra er frá útgerðarfyrirtæki á
Bíldudal sem aðeins á 54 tonna kvóta. Það eru því ekki
miklar líkur á því að byggðakvótinn komi í þeirra hlut
né tveggja annarra sem hefja vilja vinnslu á Bíldudal
þar sem þeir eiga heldur ekki mikinn kvóta. Oddi frá
Patreksfirði á mestan kvóta af þeim sem sótt hafa um
en þeir vilja verka fiskinn á Patreksfirði.
Þegar byggðakvóta er úthlutað er skilyrði sett um
að umsækjandi leggi jafn mikið á móti og hann fær
úthlutað. Þeir sem ekki eiga nægilega mikinn kvóta
geta leigt eða keypt kvóta til að koma til móts við þetta
skilyrði en kvótaverð hefur hækkað verulega eftir
skerðingu aflaheimilda. Forsvarsmenn Odda hafa
boðið sértækar aðgerðir til að koma til móts við
Bílddælinga í atvinnumálum fái þeir kvótann.
Hugmyndir sem nefndar eru í því samhengi er að fólki
frá Bíldudal verði ekið til og frá vinnu í fiskvinnslu
Odda á Patreksfirði eða að fjármunir frá Odda fari til
atvinnuuppbyggingar á Bíldudal.
Jón Þórðarson, útgerðarmaður frá Bíldudal sem er
annar þeirra sem sótt hefur um byggðakvóta, er ekki
sáttur við þetta. „Ég hef í hyggju að þrefalda þetta
með því að leggja áherslu á veiði og vinnslu á ýsu,“
segir hann. „Og ef rúm 900 tonn eru ekki grundvöllur
til rekstrar þá skil ég ekki hvað þarf til. En það er
alveg ljóst að ef þessi kvóti kemur ekki til vinnslunnar
á Bíldudal þá er útgerðarsögu staðarins lokið.“
Vesturbyggð hefur um 240 þorskígildistonn til
úthlutunar. Úlfar segir að þar af hafi 139 verið
eyrnamerkt Bíldudal en Jón segir að búið hafi verið að
lofa Bílddælingum þessum 240 þorskígildistonnum.
Fresturinn sem bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur til
að úthluta byggðakvótanum rennur út um áramót en
Úlfar segir að þeir hafi fengið vilyrði sjávarútvegsráð-
herra um að framlengja þann frest.
„Það er hlutverk okkar í bæjarstjórn Vesturbyggðar
að tryggja það að rekstur fiskvinnslu á Bíldudal sé
tryggður til framtíðar. Ef rekstur fer af stað en honum
er svo hætt innan tveggja ára eða árs þá er betur
heima setið en af stað farið,“ segir Úlfar.
Oddi hóf í vor fiskvinnslu á Bíldudal í samvinnu við
Fossberg undir merkjum Stapa. Þeirri vinnslu var
hætt eftir að þorskveiðiheimildir voru dregnar saman
um þriðjung. jse@frettabladid.is
Úti um útgerðina
Töluverðar líkur eru á því að byggðakvótinn sem Vesturbyggð hefur til úthlut-
unar fari til Patreksfjarðar. Útgerðarsögu Bíldudals er lokið ef kvótanum verður
ekki úthlutað þangað, segir útgerðarmaður.
FRÁ BÍLDUDAL Erfiðlega hefur gengið með fiskvinnslu á Bíldu-
dal síðasta áratug og nú er svo komið, að mati Jóns Þórðar-
sonar útgerðarmanns, að útgerðarsögu þorpsins sé lokið komi
byggðakvóti Vesturbyggðar ekki til vinnslu þar.
ÁSTRALÍA, AP Hvalavinurinn Paul
Watson, stofnandi Sea Shepherd-
samtakanna, ætlar að láta til skar-
ar skríða gegn japönskum hval-
veiðimönnum.
Í gær hélt hann úr höfn í Mel-
bourne í Ástralíu á skipi sínu Steve
Irwin, sem fyrr um daginn var
nefnt í höfuðið á ástralska krókód-
ílabananum sem fórst á síðasta
ári.
Terri Irwin, ekkja Steves, tók
þátt í athöfninni þegar skipið var
nefnt, sagði við það tækifæri að
maður hennar hefði mikið velt því
fyrir sér hvort hann ætti að ganga
til liðs við samtök Watsons.
„Steve Irwin stöðvar hvalveiði-
skip – væri það ekki frábær fyrir-
sögn?“ spurði hún fréttamenn í
höfninni í Melbourne þegar Wat-
son bjó sig undir að sigla úr höfn á
skipinu.
Japanski hvalveiðiflotinn er um
þessar mundir að hefja sína árlegu
vertíð við Suðurskautið. Watson
hefur heitið því að gera allt sem
þarf til að stöðva veiðarnar.
„Steve hefði viljað koma með
okkur til Suðurskautsins til að
verja hvalina, og nú verður hann
með okkur í anda með nafnið sitt
letrað stórum stöfum á skipið,“
sagði Watson.
Í febrúar síðastliðnum laskaðist
þetta sama skip, sem þá hét Robert
Hunter, í árekstri við japanskt
hvalveiðiskip. - gb
Hvalavinur nefnir skip sitt í höfuðið á krókódílavini:
Watson býr sig und-
ir átök við Japana
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
TERRI IRWIN OG PAUL WATSON Annað
tveggja flaggskipa Sea Shepherd-
samtakanna er nýkomið úr viðgerð og
hefur hlotið nafnið Steve Irwin.
MENNTUN Nemendur Listaháskól-
ans þurfa ekki að óttast aukin skóla-
gjöld vegna nýrrar skólabyggingar,
að sögn rektors skólans, Hjálmars
H. Ragnarssonar.
Rektor undirritaði á dögunum
samstarfssamning við Samson
Properties, sem Fréttablaðið hefur
greint frá síðustu mánuði.
Stofnkostnaður við skólann er
áætlaður 3,25 milljarðar, en ekki
5,2 milljarðar eins og greint var frá
í öðru dagblaði.
„Og ef kostnaðurinn hækkar, þá
lendir það á Samson, ekki okkur,“
segir Hjálmar. Ríkið mun greiða
húsaleiguna, sem verður 210 millj-
ónir á ári næstu 30 árin. Þau fjár-
framlög eru nú þegar á fjárlögum.
Annar kostnaður vegna nýrrar
byggingar verður vegna aukins
búnaðar og flutnings skólans. Um
búnaðinn segir rektor að leitað
verði til fyrirtækja um stuðning, en
meðal annars þarf að kaupa tugi
píanóa og flygla.
Leitað verður til ríkisins um
aðstoð við flutningana sjálfa, en
rektor segir að kostnaðaráætlun
vegna þeirra sé ekki tilbúin.
„Það er stefna skólans að fara
varlega í skólagjöld og ætlum við
að kunna okkur hóf í þeim efnum,“
segir rektor. Ráðgert er að þau
verði um 300.000 krónur á ári.
Kostnaður við hvern virkan með-
alnemanda er frá 1,1 milljón til 1,6
milljóna við skólann, en til saman-
burðar er kostnaðurinn rúm millj-
ón við Háskóla Íslands. - kóþ
Rektor Listaháskólans um samning við Samson Properties:
Nemar borga ekki nýjan skóla
REKTOR ÁSAMT SVEINI BJÖRNSSYNI
Kostnaður við meðalnemenda LHÍ
verður frá 1,1 milljón. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR