Fréttablaðið - 06.12.2007, Side 30

Fréttablaðið - 06.12.2007, Side 30
30 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna > Árleg fiskneysla, magn á íbúa. HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS 46 ,4 K G 48 ,4 K G 46 ,7 K G 47 ,9 K G 47 ,8 K G 2001 2002 2003 2004 2005 Lausleg og óformleg símakönnun Fréttablaðsins sýnir að linsuvökvann Solo Care er hægt að fá á 950 krónur og upp í 1.290 krónur í gleraugnaverslunum landsins. Ódýrastur virðist hann vera hjá Gleraugnaversluninni Optic Reykjavík, þar kostar 360 millilítra flaska 950 krónur en dýrastur er vökvinn í gleraugna- versluninni Auganu í Kringlunni. Rétt er þó að taka fram að sums staðar fékkst Solo Care ekki og ekki náðist í allar gleraugnaverslanir landsins þannig að ekki er útilokað að linsuvökvann megi finna á lægra eða hærra verði. Á vefsíðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi er hægt að fá samskonar linsuvökva rétt undir 1.000 krónum en þá er eftir að taka sendingarkostnað og toll með í reikninginn. ■ Verðlag Solo Care ódýrastur á 950 krónur Kvenfélagasamband Íslands hefur undanfarin 40 ár rekið Leiðbeiningastöð heimilanna. Stöðin er alhliða neytendafræðsla þar sem hægt er að fá upplýsingar um matreiðslu, bakstur, þrif og einnig er þar fylgst með evrópskum gæðakönnunum á heimilistækj- um. Nýr opnunartími er mánudaga til mið- vikudaga milli klukkan 10 og 14, fimmtudaga klukkan 14 til 18 og föstudaga klukkan 10 til 14. Hægt er að hringja í gjaldfrjálst númer 552 1135 eða senda fyrirspurnir um netfangið leidbeining- ar@kvenfelag.is. ■ Neytendafræðsla Leiðbeiningastöð heimilanna „Bestu kaupin sem ég hef gert gerði ég í Bolungarvík þegar ég keypti ísskáp af gerðinni Philips hjá Einari Guðfinnssyni fyrir jólin 1982,“ segir Finnbogi Hermannsson, fyrrverandi fréttamaður Svæðisútvarpsins á Vestfjörðum. „Ég var að því kominn að kaupa annan ísskáp en svo sá ég þennan og féll alveg fyrir útlitinu en hann var mikið fyrir augað. Og það kom bara í ljós að því var öðruvísi farið með þennan ísskáp en Helga nokkurn sem ort var um á þennan hátt: Víst mun Helgi eiga vinsemd fárra/væri hann dæmdur eftir dyggðum sönnum./ Útlitið er innrætinu skárra/en er hann þó með skuggalegri mönnum. Ég veit nú ekki um hvaða ólukka Helga var ort í þessari ágætu stöku en ísskápurinn hefur ekki stigið feilspor og þó að hann hafi útlitið með sér hefur komið í ljós að hann er býsna vel innrættur, Ólíkt Helga þessum. En verstu kaupin gerði ég hins vegar í Sankti Péturs- borg þegar ég fór þangað með Arnari Páli Haukssyni fréttamanni. Þá keypti ég mér ís sem var algjörlega óætur, hann endaði í ruslafötunni sá svo það hljóta að teljast mjög slæm kaup. Reyndar var maturinn ekkert sérlega góður þar í landi svo það reyndist heillaráð hjá okkur að koma við í sjoppu í Finnlandi og birgja okkur upp áður en við héldum yfir landamærin til Rússlands.“ NEYTANDINN: FINNBOGI HERMANNSSON, FYRRVERANDI FRÉTTAMAÐUR Fagur en vel innrættur ísskápur Þegar talað er um fitu kemur óhollusta fyrst upp í hugann hjá mörgum. En það er ekki öll fita slæm og stundum er hún hreinlega ómissandi. Sem dæmi um það eru omega 3 og omega 6 fitusýrur. Þær eru mönnum lífsnauðsynlegar þar sem líkaminn getur ekki myndað þær sjálfur og því verða þær að koma úr fæðunni. Omega 3 fitusýrur finnast aðallega í feitum villtum fiski, fiskiolíu, hörfræjum og hörfræolíu. Omega 6 fitusýrur finnast mjög víða í matvælum eins og í korni, jurtaolíum og hnetum. Skortur á lífsnauðsynleg- um fitusýrum er sjaldgæfur og kemur yfirleitt aðeins fyrir ef líkaminn á erf- itt með að taka upp fitu úr meltingar- vegi vegna sjúkdóma eða við langvar- andi mjög einhæft fæði. Omega 9 fitusýrur eru ekki lífsnauðsynlegar því líkaminn getur myndað þær sjálfur. Omega 9 fitusýrur er helst að finna í ýmsum jurtaolíum eins og í ólífuolíu og repjuolíu. Omega 3 og omega 6 fitusýrur eru mikilvægar í uppbyggingu frumu- himna. Þessir tveir hópar fitusýra geta ekki gengið hvor í stað annars því þeir eru mismunandi, bæði hvað varðar efnaskipti og virkni. Því er það afar mikilvægt að jafnvægi gæti á milli þeirra. Núverandi vestrænt fæði inniheldur frekar lítið af omega 3 fitusýrum en þó má segja að Íslendingar standi nokkuð vel að vígi miðað við önnur vestræn lönd vegna mikillar fisk- og lýsisneyslu. Einnig vegna þess að fiskimjöl er mikið notað í skepnufóður og því verða dýraafurðir ríkari af omega 3 fitusýrum fyrir vikið. Efni, sem myndast úr omega 3 fitusýrum, hafa æðavíkkandi áhrif, koma í veg fyrir blóðstorkumyndun og minnka bólgu. Vegna þessara eiginleika hefur verið sýnt fram á að þær geti minnkað hættuna á ýmsum sjúkdómum svo sem hjarta- og æðasjúkdómum. Efni sem myndast úr omega 6 fitusýrum eru jákvæð í litlu magni. Magn þeirra má þó ekki verða mjög mikið, í samanburði við efni mynduð úr omega 3 fitusýrum, því rangt hlutfall þarna á milli getur stuðlað að blóðsega, slagæðaþreng- ingum og fleiri neikvæðum áhrifum. Bæði omega 3 og omega 6 fitusýrur nota sama ensímið til að umbreyt- ast og því er afar mikilvægt að það sé jafnvægi á milli þeirra því báðar þessar fitusýrur eru mjög mikilvægar. Rannsóknir hafa sýnt að ólífuolía, sem er rík af omega 9 fitusýr- um, hefur áhrif til lækkunar á LDL kólesteróli, sem oft er kallað vonda kólesterólið, en um leið hækki HDL kólesteról sem er kallað góða kólest- erólið. Þessi áhrif eru aðallega tengd fenólinnihaldi olíunnar og andoxun- areiginleikunum sem því fylgja. www.mni.is MATUR & NÆRING GUÐRÚN LINDA GUÐMUNDSDÓTTIR NÆRINGARFRÆÐINGUR Omega 3-6-9 fitusýrur GÓÐ HÚSRÁÐ EDIK Á SPEGLANA ■ Hildur Lilliendahl mælir með dag- blöðum og ediki til að þrífa spegla. „Ég verð að við- urkenna að ég er ekkert sérstaklega mikil húsmóðir í mér og kann ekki kynstr- in öll af húsráðum,“ játar Hildur Lilli- endahl, nemi í kynja- fræðum og ljóðskáld. Hún lumar þó á einu sem hún grípur stundum til. „Ég nota edik til að þrífa spegla, það virkar betur en nokkurt hreinsiefni sem ég hef prófað,“ segir hún. Hildur notar heldur ekki eldhúsþurrku til að þurrka spegilinn heldur dagblöð. „Það koma alltaf rákir eftir þurrkurnar en ef maður notar dagblöð sést ekki arða á spegilfletinum.“ Hagkaup var oftast með lægst verð á borðspilum samkvæmt verðkönn- un Fréttablaðsins. Hæst var verðið í verslunum Eymundsson og Máls og menningar. Meira en fjögur þúsund krónum munaði á Trivial Pursuit þar sem munurinn var mestur. Mestur verðmunur var á spurningaspilinu vinsæla Trivial Pursuit, eða 147 pró- sent. Ódýrast var það í leik- fangaversluninni Toys R Us á 2.999 krónur, en dýrast í versl- unum Eymundsson og Máls og menningar á 7.410 krónur. Mis- munurinn er 4.411 krónur. Spil- ið var áberandi ódýrast í Toys R Us, því í öðrum verslunum þar sem spilið fékkst kostaði það á milli 5.500 og 6.000 krónur. Í verðkönnuninni voru valin fimm vinsæl spil: Monopoly, Scrabble, Trivial Pursuit, Party & Co. og Draumaeyjan, sem er nýtt íslenskt spil. Farið var í verslanir Eymundsson, Hagkaupa, Máls og menningar, BT, Just4Kids og Toys R Us. Vöruúrvalið var mest í Toys R Us, en þar fengust öll spilin sem könnuð voru. Úrvalið var hins vegar minnst í verslun BT í Smára- lind, þar sem aðeins Trivial Pur- suit var til. Á öðrum stöðum var vöruúrvalið misgott en alls staðar fengust þrjú eða fleiri spil af fimm. Næstmestur verðmunur var á Draumaeyjunni, íslensku spili sem innblásið er af bók Andra Snæs Magnússonar um Draumalandið, eða tæplega fjörutíu prósent. Ódýrast var það í Hagkaupum, á 3.970 krónur, en dýrast í Eymunds- son og Máli og menningu á 5.450 krónur. Mismunurinn nemur 1.480 krónum. Tekið skal fram að spilið var aðeins fjórum krónum dýrara í Just4Kids en í Hagkaupum. Hið sama var uppi á teningnum með fast- eignaspilið Monopoly, en það kostaði á bilinu 5.800 til 7.000 krónur. Spilið var dýrast í verslunum Eymundsson og Máls og menningar, en ódýrast í Hagkaupum. Aftur var Just4Kids með næst- lægsta verðið, og munaði nú þremur krónum. Orðaspilið Scrabb- le var til í þremur verslunum af sex: Máli og menningu, Hag- kaupum, og Toys R Us. Það var ódýrast í tveimur síðastnefndu verslununum á 2..999 krónur, en kostaði 3.810 krónur í Máli og menningu. Fjölskyldu- og partíspilið Party & Co. fékkst aðeins í tveimur versl- unum: í Hagkaupum og Toys R Us. Í Hagkaupum kostaði það 4.949 krónur, en fimmtíu krónum meira í Toys R Us. Farið var í allar verslanir á þriðjudagseftirmiðdegi. Hilluverð var skrifað niður, þar sem það sást, og einnig fenginn útskriftarstrim- ill. Allar verðtölur í greininni mið- ast við verðið sem fékkst á kassan- um. salvar@frettabladid.is Ódýrast að kaupa spilin í verslunum Hagkaupa VERÐKÖNNUN Á BORÐSPILUM Eymundsson Hagkaup Mál og menning BT Just4Kids Toys R Us Party & Co. - 4.949 kr. - - - 4.999 kr. Trivial Pursuit 7.410 kr. - 7.410 kr. 5.999 kr. 5.498 kr. 2.999 kr. Scrabble - 2.999 kr. 3.810 kr. - - 2.999 kr. Monopoly 6.995 kr. 5.795 kr. 6.995 kr. - 5.798 kr. 6.499 kr. Draumaeyjan 5.450 kr. 3.970 kr. 5.450 kr. - 3.974 kr. 4.999 kr. Stjórn FL Group hf. boðar hér með til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 14. desember 2007, kl. 8.30. DAGSKRÁ: 1. Tillaga um að hluthafafundur samþykki að veita stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 3.659.265.291 að nafnverði með útgáfu nýrra hluta á genginu 14,7 til að efna samning við Baug Group hf. og tengd félög um kaup á hlutum í fasteignafélögum og -sjóðum. Hluthafar hafa ekki forgangsrétt að hinum nýju hlutum. 2. Tillaga stjórnar um að færa heimilisfang félagsins að Síðumúla 24, Reykjavík. 3. Tillaga stjórnar um að breyta tilgangi félagsins með þeim hætti að starfsemin verði tilgreind sem fjár- festingarstarfsemi almennt. 4. Stjórnarkjör. 5. Önnur mál. Framangreindar tillögur leiða til breytinga á 2. gr., 3. gr. og 1. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins nái þær fram að ganga. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf hluthafafundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði bréflega. Atkvæðaseðla er hægt að nálgast á skrifstofu félagsins frá og með 7. desember n.k. og þar er ennfremur hægt að greiða atkvæði um tillögurnar frá og með þeim degi en um stjórnarkjörið frá og með 10. desember n.k. Þeir hluthafar sem óska þess skriflega fyrir 9. desember n.k. geta fengið atkvæðaseðla senda sér. Bréfleg atkvæði skulu berast á skrifstofu félagsins eigi síðar en kl. 16:00 fimmtudaginn 13. desember eða afhendast á hluthafafundinum sjálfum. Atkvæði verða talin á hluthafafundinum þann 14. desember og verða einungis atkvæði þeirra hluthafa sem þá eru skráðir í hlutaskrá tekin með í atkvæðagreiðslunni. Fundargögn, þ.m.t. tillaga stjórnar ásamt greinargerð, munu vera til sýnis á skrifstofu FL Group hf. 7 dögum fyrir hluthafafund og verða send þeim hluthöfum sem þess óska. Fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 08.00 á fundardegi. Reykjavík, 6. desember 2007 Stjórn FL Group hf. Hluthafafundur 14. desember 2007 FL GROUP BORÐSPIL Ódýrustu borð- spilin reyndust oftast vera í Hagkaupum en dýrust í Máli og menningu og Eymundsson.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.