Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 34
34 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
Lífskjaraskýrsla Þróunarstofn-unar Sameinuðu þjóðanna,
sem ég lýsti hér fyrir viku, vakti
athygli um allan heim. Hún er
stútfull af fróðleik. Ýmislegt í
skýrslunni kemur á óvart, til
dæmis það, að í 51. sæti listans
um búsælustu lönd heimsins á
mælikvarða Sameinuðu þjóðanna
er – þetta hefðir þú aldrei getað
gizkað á! – Kúba. Já, Kúba. Af
þeim 177 löndum, sem skýrslan
tekur til, eru 50 lönd hærra skráð
en Kúba á búsældarkvarðann og
126 eru lægra skráð. Staða Kúbu á
listanum ræðst af því, að Kúb-
verjar lifa nú að jafnaði aðeins tíu
vikum skemur en Bandaríkja-
menn, búa við almennt læsi líkt og
þeir og senda svipað hlutfall af
hverjum árgangi æskufólks í
grunnskóla og framhaldsskóla og
Bandaríkjamenn, fullt hús þar
líka. Þetta dugir til að fleyta Kúbu
upp í 51. sæti þrátt fyrir á að
gizka sjöfaldan mun á kaupmætti
þjóðartekna á mann í Bandaríkj-
unum og á Kúbu.
Ekki nóg með það: munurinn á
búsældarvísitölu Bandaríkjanna
og Kúbu er aðeins þrettán
prósent. Getur það verið rétt
mæling á lífskjaramuninum á
löndunum tveim? Nei, munurinn
er auðvitað miklu meiri en svo.
Lífskjaravísitölunni er ætlað að
leyfa góðri lýðheilsu og menntun
að lyfta löndum upp fyrir þá stöðu
á listanum, sem kaupmáttur tekna
á mann myndi skipa þeim í án
tillits til langlífis og skólagöngu,
og draga niður eftir listanum þau
lönd, sem hafa slegið slöku við
heilbrigðis- og menntamál.
Búsældarmunurinn á Bandaríkj-
unum og Kúbu er vísast miklu
nær því að vera sjöfaldur en
þrettán prósent. Ef kaupmáttur
þjóðartekna á mann væri hafður
til marks einn sér, væru Banda-
ríkin í öðru sæti listans á eftir
Lúxemborg, og Kúba skipaði 93.
sætið, en þá væri munurinn á
Kananum og Kúbverjum ýktur
Bandaríkjunum í vil. Listin er að
rata meðalveginn.
Byltingin á Kúbu og fleira
Kjarasamanburðurinn á Kúbu og
Bandaríkjunum er merkilegur í
sögulegu samhengi. Þegar Fídel
Kastró og félagar tóku völdin á
Kúbu 1959, gat nýfætt barn þar
vænzt þess að ná 64 ára aldri á
móti 70 árum í Bandaríkjunum og
73 árum á Íslandi. Þennan
langlífishalla tókst kommunum á
Kúbu að jafna á röskum áratug:
frá 1972 hefur Kaninn haft aðeins
um þriggja mánaða forskot á
Kúbverja. En við? Það er saga að
segja frá því. Þegar föðurafi minn
fæddist 1867, gat hann vænzt þess
að verða þrítugur. Fjórða hvert
íslenzkt barn á hans reki dó á
fyrsta aldursári, og aðeins röskur
helmingur þeirra var ennþá uppi
standandi við fimmtán ára aldur.
Ísland var þá verr á vegi statt á
mælikvarða barnadauða og
langlífis en öll nema allra fátæk-
ustu lönd heimsins eru nú. Við upp-
haf nútímans um aldamótin 1900
hafði ástandið skánað, en samt dó
þá eitt af hverjum átta börnum á
fyrsta ári og eitt af hverjum fimm
fyrir fimmtán ára afmælið. Ísland
var Afríka, og það er nýliðin tíð.
Þessi staðreynd ætti að vekja
vonir um betri tíð í brjóstum
fátækra þjóða og ætti einnig að
minna okkur hin á að ganga hægt
um gleðinnar dyr og gleyma ekki
uppruna okkar.
Læsi var orðið að almennings-
eign á Íslandi um 1900 borið saman
við 60 prósent fullorðinslæsi í
Afríku nú. Hér skilur milli feigs og
ófeigs. Almennt læsi gerði okkur
kleift að nota heimastjórn,
fullveldi og sjálfstæði til að
stökkva inn í nútímann. Kannski
var læsið í sjálfu sér ekki lykillinn
að lífskjarabyltingunni hér, heldur
hitt, að almennt læsi bar vitni um
aga, löghlýðni og skilvirka
stjórnsýslu. Það var skylt að kenna
börnum að lesa, skyldan var háð
eftirliti, og hún var virt.
Aðrar upplyftingar
Búsældarskýrsla Sameinuðu
þjóðanna er hafsjór af upplýsing-
um um ýmsa þætti, sem orka á
lífskjör almennings, þótt ekki sé
rúm fyrir þá í vísitölunni. Atvinnu-
leysi hefur óvíða verið minna en
hér nema á Kúbu, í Hvíta-
Rússlandi (það er líklega ólöglegt
þar ennþá) og fáeinum öðrum lönd-
um. Mannsmorð eru einnig óvíða
færri en á Íslandi miðað við
fólksfjölda nema í Austurríki, Dan-
mörku, Noregi, Japan, Hong Kong
og Singapúr auk Írlands og flestra
Arabaríkja. Fangar eru mun færri
á Íslandi en í nokkru öðru iðnríki,
jafnvel í Japan, þótt þar séu
framin helmingi færri morð en hér
heima miðað við mannfjölda.
Íslendingar afnámu dauðarefsingu
1928, mörgum áratugum á undan
Svíum (1972), Dönum (1978) og
Norðmönnum (1979). Síðasta aftak-
an hér fór fram 1830. Aðeins eitt
iðnríki utan Asíu heldur áfram að
beita dauðarefsingu, Bandaríkin.
Rússar hættu að beita dauðarefs-
ingu 1999, en Kúbverjar ríghalda í
hana líkt og Kaninn, og Kínverjar.
Íslendingar hafa á að skipa fleiri
læknum á mann en allir aðrir
nema Belgar, Ítalar og Grikkir auk
Kúbverja, Eista, Rússa og
nokkurra annarra austrænna
þjóða, sem reykja flestar miklu
meira en við samkvæmt skýrsl-
unni góðu, læknarnir líka. Allt
þetta lyftir okkur upp, og margt
annað. Gott.
Smáa letrið
Í DAG | Lífskjaraskýrsla SÞ
ÞORVALDUR GYLFASON
UMRÆÐAN
Kvenfrelsi
Grafalavarleg eru skrif ungra manna í bloggheimum þar sem fólki sem talar
máli kvenfrelsis er hótað ofbeldi, hrotta-
fenginni nauðgun eða öðrum líkamsmeið-
ingum. Á undanförnum dögum hef ég séð
ofbeldis- og hótunarskrif af þessu tagi og
hefur þeim verið komið á framfæri við lög-
regluyfirvöld. Að sjálfsögðu var það gert.
Að mínum dómi væri það hreinlega ámælis-
vert að láta skrifin óátalin.
Aðgerðarleysi gagnvart ofbeldi á ekki rétt á sér.
Ekki heldur andvaraleysi. Þannig verður einræðis-
menningin til. Ekki aðeins vegna þess að ofbeldis-
menn gerast fyrirferðarmiklir og hrifsa til sín
völdin heldur vegna hins að þeir eru látnir komast
upp með það. Það á að verða þjóðfélaginu öllu til
umhugsunar ef hér er að myndast andrúmsloft þar
sem það líðst að allir þeir sem hreyfa við ranglæti í
samfélaginu eru látnir sæta einelti og hótunum! Af
slíku stafar sjálfu lýðræðinu ógn.
Hver eru þau kvenfrelsismál sem fara helst fyrir
brjóstið á þessu umburðarlitla og ofbeldis-
fulla fólki? Ég læt mér nægja að vísa í
baráttumál þess stjórnmálaflokks sem ég
starfa innan, Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs. Í þeim flokki höfum við
barist fyrir því að komið verði í veg fyrir
kynbundið ofbeldi, að mansal verði stöðvað,
kynbundnum launamun útrýmt, að jafnræði
ríki með kynjunum á vinnumarkaði, innan
stjórnsýslunnar og í fyrirtækjum. Við
viljum með öðrum orðum tryggja mann-
réttindi öllum til handa á öllum sviðum
þjóðlífsins, óháð kyni.
Það er gegn baráttu af þessu tagi sem við
félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði
þurfum að sitja undir skrifum þar sem sagt er beint
út og vafningalaust að leiðin til að þagga niður í
okkur sé að beita okkur líkamlegu ofbeldi. Ég höfða
til samfélagsins alls um að láta ofbeldi af þessu tagi
ekki óátalið. Ég höfða til lýðræðisvitundar þjóðar-
innar og réttlætiskenndar þótt ég setji þessar línur á
blað einnig með þrengra sjónarhorn í huga. Ég
skrifa sjálfum mér til varnar.
Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks VG.
Sjálfum mér til varnar
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
V
iðbrögð við rússnesku þingkosningunum síðastliðinn
sunnudag hafa á Vesturlöndum verið nær einróma á þá
lund, að lýst er áhyggjum af stöðu og þróun lýðræðis
í hinu risavaxna landi. Aftur á móti eru ekki bornar
brigður á að skýr meirihluti Rússa styðji þá stefnu sem
Vladimír Pútín forseti stendur fyrir.
Það sem er vinsælast við þá stefnu er að hún hefur megnað
að endurreisa stórveldisstolt Rússa. Niðurstaða kosninganna á
sunnudaginn ber því vitni að meirihluti Rússa telur það mikilvæg-
ara en að þeir öðlist lýðræðisleg réttindi sem jafnist á við það sem
gengur og gerist á Vesturlöndum.
Vert er að hafa í huga í þessu sambandi, að annar skilningur er
lagður í lýðræðishugtakið í austurvegi en almennt gerist í okkar
heimshluta. Á þetta benti til að mynda rússneska blaðakonan Jel-
ena Larionova, sem starfar í Múrmansk, í viðtali við Fréttablaðið
á dögunum. Að hennar sögn hefur hugtakið lýðræði neikvæðan
hljóm í eyrum margra Rússa. „Það minnir fólk á óreiðu í stjórn-
og félagsmálum, í samanburði við sovéttímann. (…) Fyrstu árin
eftir hrun Sovétríkjanna voru hræðileg fyrir marga og því tengja
Rússar hugtakið lýðræði við fátækt, stjórnleysi, glæpi og þaðan
af verra.“ Stjórnvöld hafi jafnvel alið á þessum hugsunarhætti.
Larionova tók fram að svo lengi sem Pútín og hans menn væru við
völd væri ekki að vænta frekari lýðræðisvæðingar. „Hann hefur
þegar heitið þjóðinni því að hann muni ekki víkja langt frá valdinu
þótt hann stigi af forsetastóli.“
Og með úrslitum þingkosninganna, þar sem flokkur Pútínsinna,
Sameinað Rússland, hlaut 70 prósent þingsæta, hafa rússneskir
kjósendur gefið Pútín blankótékka til að vera áfram við völd þótt
hann láti af embætti forseta þegar öðru kjörtímabili hans lýkur í
vor. Stjórnarskráin bannar að óbreyttu að sami maður gegni emb-
ættinu þrjú kjörtímabil í röð. Enn er þó óljóst með hvaða hætti
Pútín hyggst nota þennan blankótékka, að öðru leyti en því að hann
veitir honum umboð til að marka kúrsinn í Kreml, hver svo sem
verður arftaki hans – til bráðabirgða? – á forsetastóli.
Hinar nýafstöðnu þingkosningar snerust aðeins að nafninu til
um að kjósa nýtt löggjafarþing. Frá því Pútín tók við völdum af
Borís Jeltsín fyrir átta árum hefur vægi Dúmunnar í stjórnkerfi
Rússlands verið stöðugt að minnka. Pútín tók ákvarðanir í öllum
veigameiri málum og sá til þess – með tilstyrk eigin persónuvin-
sælda og valdsins til að ráðstafa stöðum og bitlingum – að þingið
yrði að valdasviptri stimpilstofnun.
Með blankótékka valdsins upp á vasann, ásamt stöðugt hækk-
andi jarðgas- og olíuverði, getur Pútín nú haldið áfram að vinna
að því sem hann og hans menn álíta nauðsynlega endurreisn stór-
veldisstöðu Rússlands. Og það boðar hvorki gott fyrir lýðréttindi
Rússa né samskipti Rússlands við grannríki og Vesturlönd.
Þróun lýðræðis í Rússlandi:
Pútín gefinn
blankótékki
AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR
Með blankótékka valdsins upp á vasann getur Pútín
nú haldið áfram að vinna að endurreisn stórveldis-
stöðu Rússlands. Og það boðar hvorki gott fyrir lýð-
réttindi Rússa né samskipti Rússlands við Vesturlönd.
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Björn Þór Sigbjörnsson, Kristján Hjálmarsson og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI
RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
issn 1670-3871
??
Fyrsta flokks gæði
og frábær verð
Laugavegi 87 • símar 551 8740 & 511 2004
jólagjafir
HLÝJAR Dúnsængurog koddar
í miklu úrvali
Bellora since 1883 Milano
Unglingadeildin
Æskufólkið heldur áfram að sölsa
undir sig forstjórastólana hér á landi;
strákar sem stöppuðu nærri fermingu
þegar Ísland gekk í EES hafa nú tögl
og hagldir í viðskiptalífinu. Aðeins
29 ára að aldri hefur Jón Sigurðsson
sest í forstjórastól FL Group. Hann
var ellefu ára þegar
Bónus var stofnað
og tvítugur þegar
Bónus og Hagkaup
sameinuðust undir
nafninu Baugur,
sem nú er stærsti
hlutafjár eigandi FL
Group. Lárus
Welding,
forstjóri
Glitnis,
er 31 árs. Jafngamall honum er
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.
Unglingarnir hafa þó ekki enn slegið
við Eysteini Jónssyni, sem var 27
ára þegar hann varð fjármála-
ráðherra árið 1933.
Öldungadeildin
Nú er svo komið í fjármála-
heiminum að menn sem
eru að skríða á fimmtugs-
aldur þykja gamlir í hett-
unni. Björgólfur Thor Björg-
ólfsson varð fertugur fyrr
á þessu ári, sömuleiðis
Hannes Smárason, en
Bjarni Ármannsson og Jón
Ásgeir Jóhannesson fagna
þeim áfanga á næsta ári.
Sem sagt eldgamlir.
Dörtí Danir
Þvert á allt svartagallsrausið um sóða-
skap og ófremdarástand í miðbænum
mældist Reykjavík hreinasta borgin
af fjórtán borgum á Norðurlöndum
í samnorrænni könnun sem gerð
var í sumar. Hvernig ætli ástandið
sé í hinum miðborgunum?
Enn einn ganginn skutum
við þar Dönum ref fyrir rass
en Kaupmannahöfn mæld-
ist sú óhreinasta. Þessar
niðurstöður hljóta að vera
bagalegar fyrir ferðamála-
stofuna sem gerði könnun-
ina en hún heitir Wonderful
Copenhagen.
bergsteinn@frettabladid.is
jse@frettabladid.is