Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 37
FIMMTUDAGUR 6. desember 2007 3
Tvö tímabil ársins eru mikilvæg fyrir ilmvatnsframleiðendur. Vorið,
þegar sumarið er fram undan með sól og sumaryl og neytendur „þurfa“
léttan ilm, og haustið vegna þess að þá hentar þyngri ilmur og jólagjafa-
vertíðin er fram undan. Þá flæða líka á markaðinn ný ilmvötn sem auð-
vitað eiga heima í hverri snyrtitösku á sama tíma og þau eru þægileg
lausn á jólagjöfum. Vandamálið er þó að ilmvatn er eitt af því persónu-
legasta sem hver og einn notar, háð smekk og því sem við teljum hæfa.
Oft hefur fólk sagt við mig að Le male frá Gaultier eða Kenzo í bláu,
hömruðu glerflöskunum lykti allt öðruvísi á mér en öðrum. Þannig
breytist ilmurinn á húð hvers og eins sem flækir enn frekar málið. Það
verður sömuleiðis að segjast eins og er að gæði ilmvatna eru misjöfn.
Hver þekkir ekki dæmi um ilmvötn sem lifa stuttu lífi og eru því nokk-
urs konar stundarfyrirbrigði? Sem dæmi mætti nefna Lovely frá Söru
Jessicu Parker, Intense Instinct sem David Beckham var að markaðs-
setja og Kylie Minogue sem er að senda sitt annað ilmvatn á markað.
Áfram mætti telja. Meira að segja fínustu tískuhús vanda stundum lítið
til verka. Til dæmis hefur komið fram í rannsóknum á ilmvötnum hér á
landi að Jean-Paul Gaultier noti mikið af gerviefnum í sín ilmvötn sem
auðvitað eru miklu ódýrari en ekta. Chanel aftur á móti notar mikið af
náttúrulegum ilmefnum. Í vetur hafa tískuhúsin mörg hver verið að
skipta um fyrirsætur sem eiga að ná til neytandans og tákna ímynd við-
komandi merkis, þar má nefna Dior og Lancôme.
Hinir þekktustu senda frá sér nýjan ilm eins og YSL með Elle. Aðrir
endurvekja gamla slagara líkt og Hermès sem minnist með nýju ilm-
vatni annars vegar hinnar frægu Kelly-tösku sem var hönnuð árið 1930
og Grace af Mónakó gerði fræga og hins vegar ilmvatnsins Calèche
sem var fyrst sett á markað árið 1964. Það var eftir að „nef“ Hermès,
Jean-Claude Ellena, kom inn í leðurgeymslu þar sem skinn sem átti að
nota í töskur voru geymd, að hann
blandaði þennan ilm en skinnin höfðu
verið lituð með viði sem ilmaði af
blómum. Ilmurinn heitir einfaldlega
Kelly Calèche.
Fyrir herrana er hægt að nefna
tvær áhugaverðar ilmvatnstegundir
sem eru móðins í dag. Tom Ford er
ilmur sem hinn samnefndi fyrrum
hönnuður Gucci og YSL fram-
leiðir og Acqua Di Parma sem
er ítalskur ilmur frá frægu
ilmvatnsfyrirtæki og
þykir mikil gæðafram-
leiðsla.
En svo eru þeir sem
ekki vilja fylgja fjöld-
anum og hafa sínar
hugmyndir um stíl og
tísku og láta einfald-
lega blanda sitt eigið
ilmvatn. Nú eru sífellt
fleiri sem velja þá leið.
Það verður þó ekki lausn
á jólagjöfinni í ár nema
þá með gjafabréfi.
bergb75@free.fr
Vetrarvertíð byrjar
Gúmmíblúnda á úlnlið og
ökkla.
Þessi
fallega
gúmmí-
blúnda fæst
í Verksmiðj-
unni á
Skólavörðu-
stíg 10.
Blúnduna er
bæði hægt að
fá á upphand-
legg, úlnlið og
ökkla og er til í
mörgum mismun-
andi litum.
Blúndan lífgar
upp á hvaða
klæðnað sem er og
er til dæmis flott á
hendur við erma-
lausa kjóla og eins á
ökkla við stutt pils.
Rósa Helgadóttir,
einn sex hönnuða
Verksmiðjunnar,
hannar blúnduna.
- ve
Skemmtilegur
skartgripur
Blúnduna er hægt að hafa bæði á úlnlið
og ökkla.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Bæjarlind 6 • s. 554 7030
Eddufelli 2 • s. 557 1730
Opið laugard. í Bæjarlind 10 - 16
og Eddufelli 10 - 14
Opið sunnudag í Bæjarlind 13 - 16
FA
LL
EG
UR
JÓ
LA
FA
TN
AÐ
UR
str. 36-56
Glæsilegur
sparifatnaður
Rauðarárstíg 1 • sími 561-5077
opið laugardag 10:00-18:00
sunnudag 13:00-17:00
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
www.medico.is
HIÐ
FULLKOMNA
ÚTLIT
TVISVAR SINNUM JAFNARI OG FERSKARI ÁFERÐ
SAMANBORIÐ VIÐ HEFÐBUNDINN FARÐA
NÝTT MIRACLE TOUCH
Kynning fimmtudag, föstudag og laugardag frá kl. 12-16Kynning fimmtudag, föstudag og laugardag frá kl. 12-16
Auglýsingasími
– Mest lesið