Fréttablaðið - 06.12.2007, Page 42
6. DESEMBER 2007 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● smáralind og nágrenni
Fyrir rúmlega ári opnaði Austur-Indía-
félagið veitingastað í Hlíðasmára 8 í
Kópavogi til viðbótar við þann sem er á
Hverfisgötu. Kokkarnir eru frá Indlandi
og komu hingað til lands sérstaklega til
að elda mat handa landanum.
„Það gengur bara mjög vel hjá okkur,“ segir
Pato, rekstrarstjóri Austur-Indíafélagsins
í Kópavogi, um gengi staðarins.
„Frægustu indversku réttirnir eru
tandoori- og tikka masala-kjúklingur. Á
Indlandi er mikil kryddhefð vegna þess
að upphaflega var kryddið ekki einungis
notað til að gera matinn betri, heldur til
að hann geymdist lengur. Þá voru auðvitað
engir ísskápar til. Á Suður-Indlandi er
maturinn kryddaður meira en í norðrinu,
en svo er mismunandi hve mikið menn
nota kókosmjólkina til að hafa jafnvægi,“
segir Pato og bætir við að indversk mat-
argerð hafi orðið fyrir miklum áhrifum
héðan og þaðan, meðal annars frá Portú-
gal.
Flest allt hráefnið í indversku réttina er
hægt að fá hér á landi, en sumt þarf að sér-
panta frá útlöndum.
Eftirfarandi er uppskrift að tandoori-
kjúklingi sem eflaust er æði gómsætur.
Tandoori Murgh
Marineraður grillaður kjúklingur
Skammtur handa fjórum:
2 húðlausir kjúklingar, hvor um sig um 1 kg
safi af einni sítrónu
salt, eftir smekk
skorinn laukur og sítrónusneiðar til skrauts
Tandoori-kryddlögur:
750 ml/3 bollar af jógúrt
2 msk. ólífuolía
1 tsk. engifer- og hvítlaukspestó
1 tsk. rautt kasmír-chilli eða cayenne pipar
2 tsk. malaður kóriander
2 tsk. garam masala
1 tsk. turmeric
1 tsk. malaður hvítur pipar
Gerið skurði þvert yfir kjúklinginn.
Nuddið sítrónusafa og salti í og látið bíða í
10 mín. Á meðan er kryddlögurinn lagaður.
Setjið jógúrt í glerskál og hrærið afgangn-
um af uppskriftinni út í. Bætið kjúklinga-
bitunum út í, blandið vel og látið marinera í
6 tíma við stofuhita eða í 12 tíma í ísskáp.
Að því loknu er ofninn forhitaður upp
í 230° C og stillið á grill. Einnig má grilla
kjúklinginn á útigrilli.
Skreytið með hráum lauk, sítrónusneið-
um og berið fram með salati, hrísgrjónum
og jógúrtsalati.
- nrg
Indversk matreiðsla í Hlíðasmára
Tandoori-kjúklingur er einn
vinsælasti réttur á Indlandi.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Nú styttist óðum í jólin og því vel
við hæfi að láta flikka aðeins upp á
sig til að líta sem best út. Í Hygeu í
Smáralind er boðið upp á alls kyns
húðmeðferðir í sérlegri snyrti-
stofu verslunarinnar, sem að sögn
Helgu Óladóttur snyrtifræðings
virka sumar hverjar vel gegn jóla-
stressinu í desember.
„Ég myndi segja að það væri
rosalega gott að fara í ilmolíumeð-
ferðir, þær róa mann niður og eru
sérstaklega góðar í öllu stress-
inu,“ segir Helga. „Ég myndi helst
mæla með þeim, nema viðkom-
andi leiti sérstaklega eftir ein-
hverri styrkingu. Þá er mjög gott
að fara í Hydradermielift.“
Hydradermielift er ein fjöl-
margra meðferða sem boðið er upp
á í Hygeu en um er að ræða and-
litslyftingu sem byggist á vöðva-
og sogæðaörvun, ásamt andlits-
og herðanuddi. „Vöðvaörvunin
styrkir andlits- og hálsvöðva og
húðin verður sléttari, stinnari og
frísklegri,“ segir Helga. „Sogæða-
örvunin eykur líka úrgangsefna-
losun húðvefja og dregur úr þrota
og baugum. Frumurnar endur-
nýjast.“
Munurinn er mikill eftir aðeins
fjóra tíma að sögn Helgu, sem
bætir við að árangur náist þó mis-
fljótt háð ástandi hvers og eins.
Sumir séu með svo stinna og slétta
húð að þeim nægi jafnvel að mæta
einu sinni, á meðan aðrir þurfi að
koma oftar en fjórum sinnum til
að meðferðin beri árangur.
Þess má geta að frá því að
stofan var opnuð fyrir tæpum
tveimur árum hafa konur verið
duglegar að prófa þær ólíku með-
ferðir sem þar eru í boði og þá eru
karlar í sívaxandi mæli farnir að
nýta sér þjónustuna.
„Þeir fara nú oftast í andlits-
böð, með nuddi og hreinsun,“
segir Helga. „Þá eru andlit, axlir
og bringan nudduð. Svo er húðin
hreinsuð með ilmolíumeðferð. Það
er andlitsmeðferð sem felst í mjög
þægilegu nuddi og styrkir höfuð
og húð. Gott bæði fyrir karla og
konur.“
Nánari upplýsingar um Hygeu á
vefsíðu Smáralindar, www.smara-
lind.is. - rve
Gott gegn jólastressi
Boðið er upp á alls kyns meðferðir í
Hygeu, meðal annars róandi ilmolíu-
meðferðir og andlitslyftingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Snyrtistofa var opnuð í versluninni Hygeu fyrir tæpum tveimur árum þar sem nú er
hægt að kaupa snyrtivörur og prófa alls kyns meðferðir.
Veröldin okkar í Smáralind er
sannkallaður sælureitur fyrir
smáfólkið.
Veröldin okkar er afdrep í versl-
unarmiðstöðinni Smáralind þar
sem börn koma saman til að leika
sér, hoppa, klifra, dansa og syngja.
Þá er Veröldin okkar hugsuð sem
staður þar sem foreldrar geta
geymt börnin sín á meðan þeir
versla. Báðir aðilar njóta góðs af.
Foreldrar eru lausir við suðið í
börnunum og börnin geta sprell-
að áhyggjulaus í þrefaldri renni-
braut eða hoppað á trampól-
íni, enda segir sagan að Veröldin
okkar sé full af gleði og hamingju-
sömum börnum.
„Börnin geta verið hjá okkur
að hámarki tvo tíma, og þau eru á
aldrinum frá þriggja til tólf. For-
eldrar passa vel upp á að skilja
þau ekki eftir lengur en þau eiga
að vera. Stundum kaupa þeir sér
sjálfir hálftíma og eru með börn-
unum sínum,“ segir Guðbjörg
Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
Veraldarinnar okkar.
Vel er passað upp á börnin, að
þau hvorki meiði sig né sleppi
út. Þau eru sett í sérstök vesti
með ísaumaðri þjófavarnarþynnu
þannig að ef barn reynir að læðast
út um hliðið fer allt að pípa. For-
eldrar geta því verslað áhyggju-
lausir.
Á staðnum er einnig rólegt
hvíldarherbergi fyrir börn sem
hafa fengið of stóran skammt af
gleði og ærslum. Þegar þreyta
sígur yfir litla kroppa geta þeir
líka fengið sér trúðaís og kókó-
mjólk sem veitir þeim auka orku
til að leika sér meira í foreldra-
heldum leiktækjunum. Leiktæk-
in eru svo sterk að þau þola full-
orðna einstaklinga og mega for-
ráðamenn fá sér snúning að hætti
ungdómsins ef þeir vilja.
Þá er boðið upp á ýmsa þjónustu
á staðnum og gefst foreldrum og
öðrum forráðamönnum að halda
þar afmælisveislu fyrir smáfólkið.
„Hérna eru haldin afmæli á hverj-
um degi og geta verið fimm til
sjö afmæli yfir helgi,“ segir Guð-
björg og bætir við að á þriðjudög-
um hittist síðan sérstakir tvíbura-
hópar á staðnum.
- nrg
Skemmtistaður fyrir börn
Börnin geta sprellað á meðan foreldrarnir versla áhyggjulausir. Foreldrarnir geta líka tekið þátt þar sem tækin þola líka fullorðna
einstaklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON