Fréttablaðið - 06.12.2007, Síða 46
6. DESEMBER 2007 FIMMTUDAGUR
Skeifan 8 - s. 568 2200 Smáralind - s. 534 2200 - www.babysam.is
Örn Árnason og Björgvin Franz
halda uppi fjörinu í Vetrargarð-
inum í Smáralind.
Fram að jólum verður mikið hopp
og hí í Vetrargarðinum í Smára-
lind. Klukkan tvö um helgar og
fimm á fimmtudögum og föstu-
dögum munu leikararnir Örn
Árnason og Björgvin Franz sjá
um sannkölluð jólaævintýri til
að skemmta gestum og gangandi,
eða Jólakabarett eins og Örn kýs
að kalla það.
„Við sáum um þessa sýningu í
fyrra og hittifyrra,“ segir hann.
„Þarna setjum við upp ævintýrið
um Trölla sem stelur jólunum,
Númi úr Spaugstofunni birtist á
myndbandi, við kíkjum á verk-
stæði jólasveinanna og svo
kemur bakarameistari frá Dan-
mörku. Hann er reyndar rotta
og kemur til með að baka pipar-
kökur og svona. Svo er lítið ballett-
ævintýri og þá munu Hara-systur
frá Hveragerði, sem gerðu garð-
inn frægan í Ædol síðastliðið vor,
syngja dálítið fyrir okkur líka.“
Að lokinni sýningunni, sem er
um klukkutími að lengd, koma
tveir jólasveinar til að sitja fyrir
hjá fólki sem vill taka myndir
af þeim með börnunum við jóla-
tréð. Aðgangur er gjaldfrjáls og
hafa einhverjir gert góðan róm
að sýningunni.
„Það mun allt mögulegt bera
fyrir sjónir og mikil tónlist óma,
svo það leiðist engum hvort sem
hann er gamall eða ungur. Nú, ef
mönnum leiðist þá fara þeir bara,
ef það er gaman þá sitja þeir til
enda,“ segir Örn og hlær þeim
smitandi hlátri sem flestir lands-
menn þekkja.
- nrg
Rotta bakar piparkökur
Vetrargarðurinn í Smáralind breytist í
sannkallaða ævintýraveröld þegar Örn
Árnason og Björgvin Franz stíga þar á
svið, en þeir halda utan um sérstaka
jólasýningu sem góður rómur hefur
verið gerður að.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N