Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 68
48 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is Kvikmyndin Good Heart í leikstjórn Dags Kára Péturssonar fer væntanlega í tökur í byrjun janúar á næsta ári og á föstudaginn verða áheyrnarprufur fyrir aukahlutverk í myndinni. Fara þær fram í Alþjóðahúsinu milli klukkan þrjú og sex. Þar sem myndin gerist öll í New York er verið að leita að leikurum af erlendum uppruna sem eru tuttugu ára og eldri. „Myndin verður nánast öll tekin upp hér á landi og því þurfum við að búa til alþjóð- legt umhverfi á Íslandi,“ segir Dagur og tekur skýrt fram að íslenskukunnátta sé ekki skilyrði. Myndin verður tekin upp bæði í myndveri og svo úti á fyrrverandi varnarsvæði Bandaríkjanna í Reykjanes- bæ. „Þar eru öll smáatriði fyrir hendi, bandarískar innstungur og þar fram eftir götunum. Margar af byggingunum þar eru tómar sem hentar vel fyrir okkur,“ bætir Dagur við. Good Heart segir frá lífsreyndum bar- eiganda sem tekur að sér ungan heimilis- leysingja. Handrit myndarinnar vakti strax mikla athygli og fékk meðal annars styrk á Sundance-kvikmyndahátíðinni og eftir velgengni Nóa albínóa og Voksne mennesker á kvikmyndahátíðum bíða menn spenntir eftir því að sjá fyrstu kvikmynd Dags Kára á ensku. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur bandaríska ungstirnið Paul Dano gefið vilyrði sitt fyrir því að leika eitt aðalhlut- verkanna í myndinni en hann sló í gegn í hinni eftirminnilegu kvikmynd Little Miss Sunshine. Að sögn Dags Kára eru viðræður við hinn aðalleikarann á við- kvæmu stigi en þau mál ættu að skýrast á allra næstu dögum. - fgg Dagur Kári leitar að útlendingum Á UPPLEIÐ Paul Dano mun að öllum líkindum leika í Good Heart en hann fór á kostum í kvikmynd- inni Little Miss Sunshine. LEITAR AÐ LEIKURUM Áheyrnar- prufur fyrir statista í kvikmyndina Good Heart verða á föstudaginn. Íslenskukunnátta er ekki skilyrði. > HAGGIS Í MÁL Paul Haggis hyggst draga framleið- endur Crash fyrir dómstóla sökum þess að hann telur sig eiga inni sinn hluta af gróða myndarinnar. Haggis leikstýrði myndinni sem fékk þrenn Ósk- arsverðlaun, þar á meðal sem besta myndin 2006 og finnst hann hafa farið heldur slyppur og snauður frá borði. Varla telst það til tíðinda þegar trúarhópar rísa upp á afturlappirnar og mót- mæla sið- og guðleysi frá afþreyingariðnaðinum. En sú deila sem nú er sprottin upp er harla óvenjuleg enda eru bæði guðleysingjar og trúaðir ósáttir. Kvikmyndin The Golden Compass verður frumsýnd hér á landi strax eftir jól en hún er byggð á fyrstu bók Philips Pullman af þremur í bókaflokknum His Dark Materi- als. Stórstjörnurnar Nicole Kid- man og Daniel Craig leika aðal- hlutverkin og er búist við því að hún eigi eftir að njóta mikilla vin- sælda. Kirkjan er hið illa Kvikmyndaútgáfan af bókinni kemur líka á besta tíma. Vinsældir bóka og kvikmynda sem skora trú- arbrögðin á hólm hafa aldrei verið meiri og almenningur virðist sólg- inn í heimspekilegar vangaveltur um lífið og tilgang þess. Philip Pullman er einn þekktasti guðleysingi Breta og er meðal annars meðlimur í bresku húman- istasamtökunum auk þess að vera heiðursfélagi í Landssamtökum um trúlaust samfélag. Hann hefur ekki farið leynt með skoðanir sínar á trúarbrögðum, hvorki í viðtölum né bókum sínum enda segir fyrrverandi nunna í einni bókanna við aðalpersónuna: „Kristnin er mjög valdamikil og sannfærandi mistök,“ og sjálfur lét Pullman hafa eftir sér að hann vildi gera lítið úr grunnstoðum kristninnar. Og engan skyldi undra að bæði mótmælendur og kaþól- ikkar líti bækur Pullmans horn- auga, í bókinni heitir hið illa til að mynda „The Church“ eða Kirkj- an. Hollywood fær á baukinn Bækur Pullmans um ferðalag Lyru og Wills Parry milli ólíkra heima njóta mikilla vinsælda hjá smáfólkinu sem drekkur í sig fant- asíuveröldina. Og það er kannski helst sú staðreynd sem veldur kristnum samtökum hvað mestum áhyggjum, það að börnin skuli vera „fórnarlömb“ guðleysingja- stefnu Pullmans. Og nú þegar Hollywood, með allar sínar markaðsmaskínur á milljón, hefur hoppað um borð í skip Pullmans þá er draumaverk- smiðjan að mati kirkjunnar manna að matreiða veröld ofan í börn þar sem öll trúarbrögð eru vond. Aðkoma kvikmyndaborgarinnar féll í það grýttan jarðveg hjá íhaldssömum armi kaþólsku kirkj- unnar í Bandaríkjanna að hún sá sig tilneydda til að hvetja alla fylg- ismenn sína til að sniðganga The Golden Compass. Aðrir hafa sagt Pullman vera að ráðast gegn ævintýrum hins rammkristna C.Ss Lewis um Narn- íu. Og vissulega eru þar hliðstæð- ur. Báðar bækurnar fjalla um börn sem þurfa að taka siðferðislega erfiðar ákvarðanir; þarna eru tal- andi dýr, stórir og miklir bardagar að ógleymdum fataskáp sem kemur víst við sögu í báðum bóka- flokkunum. Trúleysingjar ósáttir Það eru ekki eingöngu hinum trú- uðu sem er meinilla við kvik- myndaútgáfuna af The Golden Compass. Trúleysingjarnir í Bandaríkjunum benda á að Holly- wood hafi látið undan ritskoðun- arstefnu hinna valdamiklu kristnu þrýstihópa þegar þeir skírðu hin illu öfl upp á nýtt en þau heita Magisterium í mynd- inni í staðinn fyrir Kirkjan. Þessi ákvörðun snerist þó í höndunum á handritshöfundum myndarinn- ar því magisterium er latneska heitið yfir kennarastéttina hjá kaþólikkum. En ekki eru öll kristin samtök ósátt við kvikmyndina. Þau telja að bækur Pullmans séu einmitt sú áskorun sem trúaðir þurfi til að verða staðfastir í sinni sannfær- ingu. „Bækur Pullmans eru ekki árás á kristni sem trúarbrögð held- ur föst skot á þau öfl sem misnota sér vald sitt í krafti þeirra,“ segir Donna Freitas, aðstoðarprófessor við trúarbragðadeild Háskólans í Boston í samtali við fréttavef CNN. Framleiðandi myndarinnar, Deborah Forte, vísar hins vegar allri gagnrýni til föðurhúsanna og segir að fólk eigi að láta vera að túlka hlutina svart og hvítt. „Ég hef unnið að gerð þessarar myndar í tólf ár og aldrei hefur nokkurt barn spurt mig hvort bækur Pull- mans séu árásir á trúarbrögðin. Þau elska bara bókina og persón- urnar.“ freyrgigja@frettabladid.is Mikill trúarhiti í kringum jólamynd UMDEILDUR UM JÓLIN Nafn Philips Pullman hefur verið töluvert í umræðunni vegna ævintýramyndarinnar The Golden Compass sem frumsýnd verður hér um jólin. Barna- og ævintýramyndin Dugguholufólkið verður frum- sýnd um helgina en þetta er fyrsta kvikmynd Ara Kristins- sonar í tíu ár eða síðan hann leik- stýrði verðlaunamyndinni Stikk- frí. Dugguholufólkið segir frá Kalla, tólf ára gömlu borgarbarni sem hefur alist upp hjá einstæðri móður sinni í Reykjavík. Hann er sendur til pabba síns á Vestfjörð- um yfir jólin en kemst fljótlega að því að þar er ekki allt eins og á mölinni. Úrvalið af sjónvarpsefni er heldur takmarkað og varla tölvuleikur í sjónmáli. Kalli tekur því þá stórtæku ákvörðun að flýja en lendir í snjóbyl og týnist. Og þá hefjast ævintýrin fyrir alvöru enda kemst Kalli í kynni við ísbjörn og drauga. Dugguholufólkið er fyrsta íslenska barnamyndin í háa herr- ans tíð og því má reikna með að börnin teymi foreldrana í kvik- myndahúsin á næstu dögum. Ari fékk að notast við græna tjaldið hjá Latabæ fyrir margar af tökum myndarinnar og hún þykir mikið augnakonfekt. Í helstu hlutverkum eru þau Bergþór Þor- valdsson, Þórdís Hulda Árnadótt- ir og Árni Beinteinn Árnason sem öll eru frekar ung að aldri en þau eru dyggilega studd af þeim Brynhildi Guðjónsdóttur, Mar- gréti Vilhjálmsdóttur og Erlendi Eiríkssyni. Dugguholufólkið frumsýnt ÆVINTÝRI Kalli lendir í miklum hremmingum fyrir vestan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.