Fréttablaðið - 06.12.2007, Side 74

Fréttablaðið - 06.12.2007, Side 74
54 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR Nýtt kortatímabil OPIÐ FRÁ 11-18 Leikarinn Dennis Quaid og eigin- kona hans hafa höfðað mál gegn lyfjafyrirtækinu Baxter Healthcare fyrir villandi merk- ingar á blóðþynningarlyfi sem nýfæddir tvíburar þeirra fengu á dögunum. Fengu þeir alltof mikið magn af lyfinu og voru nær dauða en lífi. Krefjast hjónin rúmlega þriggja milljóna króna í skaða- bætur. Tvíburarnir, sem voru tveggja vikna þegar óhappið átti sér stað, áttu að fá tíu einingar af lyfinu en fengu í staðinn tíu þúsund eining- ar. Quaid og kona hans hafa ekki ákveðið hvort þau ætli að höfða mál gegn sjúkrahúsinu, sem hefur beðist afsökunar á mistök- unum. „Tilgangurinn með þess- ari málshöfðun er að koma í veg fyrir að önnur börn lendi í þessu. Þau eru ekki að reyna að græða pening,“ sagði lögfræðingur hjónanna. Bætti hann því við að tvíburarnir væru komnir heim til sín og hefðu það mjög gott. Dennis Quaid, sem er 53 ára, er þekktastur fyrir hlutverk sín í myndunum The Right Stuff, Enemy Mine og Innerspace sem komu út á níunda áratugnum. Quaid höfðar mál DENNIS QUAID Dennis Quaid og eiginkona hans vilja koma í veg fyrir að svipað óhapp eigi sér stað aftur. Upplýsingar um höfunda tíu hljóm- platna sem koma út fyrir jólin virðast eitthvað hafa skolast til. Fréttablaðið ákvað að grennslast fyrir um hverjir höfundarnir væru í raun og veru til að leiðrétta þennan leiða misskilning sem hefur komið upp. Þótt plöturnar séu eflaust óvenjulegar ættu þær að sóma sér vel í hvaða jólapakka sem er. Ég skemmti mér um jólin Þorgrímur Þráinsson (Ekki Guðrún og Friðrik Ómar) Þorgrímur hneppir frá í eitt skipti fyrir öll á sinni fyrstu jólaplötu. Umfjöll- unarefnið er afar þarft; hvernig full- nægja skal kon- unni í jólastressinu. Lög á borð við „Ég sá mömmu kyssa jólasvein“ og „Komdu um jólin“ öðlast nýja merkingu á þessari hressilegu plötu. Ein Eyrún Huld (Ekki Birgitta) Fyrsta sólóplata Eyrúnar Huldar Haraldsdótt- ur þar sem hún gerir upp samband sitt við rokkstjörnuna Magna Ásgeirsson. Fyrsta smáskífulagið „Creep“ hefur þegar vakið mikla lukku á öldum ljósvakans. Sticky Situation Guðmundur í Byrginu (Ekki Bloodgroup) Guðmundur í Byrginu lætur allt flakka á þessari persónulegu kántríplötu. Myndbandið við titillag plötunnar er þegar komið á netið þar sem lagið er flutt í sinni nöktustu mynd án allra hjálpartækja. Það er ekkert víst að það klikki Manúela Ósk og Grétar Rafn (Ekki Einar Ágúst) Hin nýgiftu Manúela Ósk Harðardóttir og Grétar Rafn Steinsson, sem kynnt- ust einungis fyrir nokkrum vikum, syngja ástardú- etta á þessari hugljúfu plötu. Platan var tekin upp á mettíma og á meðal óvæntra gesta í hljóðverinu var sjálf poppprinsessan Britney Spears. Allar stúlkurnar Geiri á Goldfinger (Ekki South River Band) Geiri á Goldfinger rappar taktfast um „kjell- ingarnar“ sínar á Goldfinger og lætur lögguna fá það óþvegið. Með gullkeðjurnar um hálsinn færir hann sígild lög á borð við Bond-slagar- ann „Goldfinger“ og „Fuck tha Police“ í nýjan og óvæntan búning. Tímarnir okkar Vilhjálmur Vilhjálmsson (Ekki Sprengjuhöllin) Borgarstjórinn fyrrverandi rifjar upp gömlu góðu dagana þegar hann og Sjálfstæðis- flokkurinn áttu samleið. Raggi Bjarna syngur með honum dú- ett í angurværri útgáfu þeirra á laginu „Við Reykjavíkur- tjörn“. Man ég þinn koss Ingibjörg Sólrún (Ekki Ingibjörg Þorbergs) Utanríkisráðherra syngur um frægan koss sinn og Geirs H. Haarde á Þingvöllum á sinni nýjustu plötu. Að sjálfsögðu fær hið vin- sæla „Kiss“ að fljóta með í þokkafullri útgáfu Ingibjargar. Vestur Aron Pálmi (Ekki Sniglabandið) Aron Pálmi Ágústsson er í kántrístuði á sinni fyrstu sólóplötu þar sem hann syngur um reynslu sína af villta vestrinu. Með kassagítarinn að vopni flytur hann kunna slagara á borð við „Jail- house Rock“, „Sweet Home Ala- bama“ og „Frelsið“ eins og honum einum er lagið. Allt fyrir ástina Jón Ásgeir (Ekki Páll Óskar) Jón Ásgeir Jóhannesson syngur undurfagrar ballöður um milljónabrúðkaup sitt og Ingi- bjargar Pálmadóttur þar sem engu var til sparað. Á rándýrri viðhafnarútgáfu plötunnar eru þrjú bónuslög, þar á meðal hið sívinsæla „Money“. The Hope Ólafur og Pétur (Ekki Sign) Dúettplata landsliðsþjálfarans og aðstoðar- manns hans þar sem þeir syngja aríur um vonir og vænt- ingar fyrir næstu undankeppni HM í fótbolta. Textarnir eru einlægir þar sem meginþemað er hin fjarlæga von þeirra um að einn sigur náist í keppninni áður en lokaflautið gellur. Öðruvísi plötur í jólapakkann Hellvar, Hjaltalín og Morðingj- arnir, sem eru á mála hjá útgáfufyrirtækinu Kimi Records, auk rokkaranna í Reykjavík!, spila á tónleikum á Gauki á Stöng á laugardagskvöld. Um nokkurs konar uppskeruhá- tíð er að ræða hjá hinu nýstofn- aða fyrirtæki, sem nýlega opnaði sína eigin vefbúð. Þar geta viðskiptavinir keypt plötur og fengið þær sendar frítt heim til sín. Með hverju keyptu eintaki fylgir einnig rafræn útgáfa, líkt og Mugison gerði með sína nýjustu plötu. Gaukur á Stöng verður opnaður klukkan 20 í kvöld og kostar 1.000 krónur inn. Kimi fagnar uppskerunni HÖGNI Högni Egilsson og félagar í Hjalta- lín spila á uppskeruhátíðinni í kvöld. Hljómsveitin Hellvar ætlar að halda útgáfutónleika sína á mjög óvenjulegum stað, eða í strætis- vagni. Á föstudag klukkan 18 leggur strætisvagn af stað frá Lækjartorgi með Hellvar um borð. Mun vagninn keyra hring á meðan hljómsveitin leikur lög af sinni fyrstu plötu, Bat Out Of Hellvar. „Við vonumst að sjálfsögðu til að það verði vagnfyllir,“ segir söngkonan Heiða Eiríksdóttir. „En hljómurinn í strætó á enn eftir að koma í ljós. Það kemur þó ekki að sök þótt hann verði ekki fullkominn því það er upplifunin sem skiptir máli.“ Frítt er inn á þessa sérstæðu útgáfutónleika, sem eru þeir fyrstu sem eru haldnir hérlendis í strætisvagni. Tónleikar í strætisvagni HELLVAR Hljómsveitin Hellvar heldur útgáfutónleika sína í strætisvagni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.