Fréttablaðið - 06.12.2007, Side 80

Fréttablaðið - 06.12.2007, Side 80
60 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR Kvennadeild Iceland Express Keflavík-Haukar 100-79 (54-38) Stig Keflavíkur: Kesha Watson 21 (11 stoðs., 7 fráköst, 5 stolnir), Margrét Kara Sturludóttir 20 (9 fráköst, 7 stoðs., 4 stolnir), Rannveig Randvers- dóttir 17 (hitti úr 8 af 12 skotum á 23 mín.), Pálína Gunnlaugsdóttir 16 (6 sóknarfráköst), Marín Rós Karlsdóttir 14 (7 stoðs.), Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 7, Halldóra Andrésdóttir 5. Stig Hauka: Kiera Hardy 27, Kristrún Sigur- jónsdóttir 15 (7 stoðs., 5 frák.), Telma Björk Fjalarsdóttir 13 (13 frák., hitti úr 6 af 10 skotum), Unnur Tara Jónsdóttir 12 (9 frák.), Ragna Margrét Brynjarsdóttir 8 (13 mín.), Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Bára Fanney Hálfdanardóttir 2. Fjölnir-Hamar 51-75 N1 deild Karla í handbolta: Akureyri-Valur 20-24 (11-10) Mörk Akureyrar (skot): Einar Logi Friðjónsson 6 (11), Jónatan Magnússon 5/2 (8/3), Andri Snær Stefánsson 3 (6), Hörður Fannar Sigþórsson 2 (4), Eiríkur Jónasson 1 (1), Rúnar Sigtryggsson 1 (4), Nikolaj Jankovic 1 (5), Magnús Stefánsson 1 (7), Ásbjörn Friðriksson 0 (1), Heiðar Þór Aðal- steinsson 0 (2), Goran Gusic 0 (3). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 16/4 (39/6, 41%) Hraðaupphlaup: 3 (Einar, Andri, Hörður) Fiskuð víti: 4 (Hörður 2, Magnús, Andri) Utan vallar: 10 mínútur Mörk Vals (skot): Baldvin Þorsteinsson 8/1 (12/3), Arnór Malmquist 4/1 (5/2), Fannar Þór Friðgeirsson 4 (12), Ernir Hrafn Arnarson 3 (10), Sigfús Páll Sigfússon 2 (3), Elvar Friðriksson 2 (8/1), Ingvar Árnason 1 (1). Varin skot: Pálmar Pétursson 17 (37/2, 46%) Hraðaupphlaup: 4 (Baldvin 3, Arnar) Fiskuð víti: 6 (Elvar 2, Sigfús 2 , Arnór, Baldvin) Utan vallar: 8 mínútur Evrópukeppni félagsliða: Everton-Zenit 1-0 1-0 Tim Cahill (85.). Nurnberg-Az Alkmaar 2-1 0-1 Demy de Zeeuw (29.), 1-1 Marek Mintal (83.) 2-1 Mintal (85.). Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði AZ. FC Kobenhavn-A. Madrid 0-2 0-1 Simao (21.), 0-2 Aguero (62.). Panathinaikos-Lokomotiv Moskva 2-0 1-0 Dimitrios Salpigidis (70.), 2-0 Salpigidis (74.). Mlada Boleslav-AEK Aþenu 0-1 0-1 Tam Nsaliwa (46.). Villarreal-Elfsborg 2-0 1-0 Jon Dahl Tomasson (2.), 2-0 Tomasson (52.). Basel-Brann 1-0 1-0 Carlitos (40.). Ólafur Örn Bjarnason var í byrjunarliði Brann og Ármann Smári Björnsson kom inná sem varamaður á 46. mínútu. Kristján Örn Sigurðsson gat ekki leikið vegna meiðsla. Dinamo Zagreb-Hamburg 0-2 0-1 Nigel de Jong (87.),0-2 Trochowski (90.). Enska úrvalsdeildin: Newcastle-Arsenal 1-1 0-1 Emmanuel Adebayor (4.), 1-1 S. Taylor (60.). Ítalska úrvalsdeildin: Inter-Lazio 3-0 1-0 Ibrahimovic (22.), 2-0 Maicon (33.), 3-0 Suazo (54.). Roma-Cagliari 2-0 1-0 Taddei (28.), 2-0 Taddei (36.). Meistaradeildin í Körfubolta Chorale Roanne-Lottomatica Roma 104-85 ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Rick Parry, stjórnarfor- maður Liverpool, hefur vísað á bug orðrómi nokkurra dagblaða í gær sem greindu frá því að Liverpool væri þegar búið að tala við Ítalann Fabio Capello um að taka að sér stöðu knattspyrnu- stjóra hjá liðinu. „Við höfum ekkert talað við herra Capello og hann hefur ekkert talað við okkur. Þessar sögusagnir eru uppspuni frá rótum,“ sagði Parry í viðtali við Liverpool Echo í gær. Sögusagnirnar um framtíð Rafa Benítez, núverandi stjóra Liverpool, hafa flogið fram og til baka í fjölmiðlum undanfarið vegna deilna hans við eigendur Liverpool, hina bandarísku Tom Hicks og George Gillet, út af fyrirhuguðum leikmannakaupum Liverpool í janúar. - óþ Enska úrvalsdeildin: Liverpool ekki á eftir Capello ORÐRÓMUR Rick Parry, stjórnarformaður Liverpool, harðneitaði að liðið vildi ráða Fabio Capello. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI José Mourinho, fyrrver- andi knattspyrnustjóri Chelsea, hefur stöðugt verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá enska landsliðinu í breskum fjölmiðlum síðan Steve McClaren var látinn taka pokann sinn. Spænska dagblaðið El Mundo Deportivo vill hins vegar meina að Mourinho muni afþakka boð enska knattspyrnusambandsins til þess að taka við stórliði Barcelona. Blaðið greinir frá því að tveir af aðstoðarmönnum Mourinhos hjá Chelsea á sínum tíma hafi verið tíðir gestir á leikjum Katalóníuliðsins upp á síðkastið og séu í raun að kanna jarðveginn áður en Mourinho taki við liðinu. Blaðið heldur því enn fremur fram að núverandi stjóri Barce- lona, Frank Rijkaard, sé nú þegar á hálum ís og verði látinn víkja ef liðið endurheimti ekki toppsætið í spænsku deildinni innan skamms tíma. Líklegast sé þó í stöðunni að Mourinho taki við Barcelona eftir núverandi tímabil. - óþ Spænska úrvalsdeildin: Mun Mourinho taka við Barca? EFTIRSÓTTUR Ef marka má spænska dagblaðið El Mundo Deportivo þá mun José Mourinho líklega taka við Barcelona, annaðhvort fljótlega eða eftir tímabilið. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Valsmenn geta prísað sig sæla yfir því að hafa fengið bæði stigin eftir viðureign sína við Akureyri í N1-deildinni í gær- kvöldi. Fjögurra marka sigur þeirra var tæpari en tölurnar gefa til kynna. Fyrri hálfleikurinn var kafla- skiptur en í stöðunni 2-2 skildi leiðir og sóknarleikur Vals hrundi algjörlega. Akureyringar gengu á lagið og komust mest í fjögurra marka forystu þar sem Pálmar hélt gestunum inni í leiknum með fínni markvörslu. Það var ekki fyrr en í stöðunni 8-4 að Valsmenn hristu af sér slen- ið og fóru loks að spila almenni- lega sókn. Í bland við lélega sókn- arnýtingu Akureyringa, þar sem markstangirnar stýrðu boltanum oftar út en ekki inn, tókst þeim að jafna leikinn. Eftir jafnar loka- mínútur hafði Akureyri 11-10 yfir í hálfleik í rífandi stemningu í KA- heimilinu. Valsmenn voru skrefinu á undan í síðari hálfleik en komust þó aldrei langt fram úr heimamönn- um. Spennustigið á lokamínútun- um var hátt, Einar Logi fékk sína þriðju brottvísun þegar 10 mínút- ur voru eftir og á þeim mínútum skoraði Akureyri aðeins eitt mark. Heimamenn gerðu hrapalleg mis- tök hvað eftir annað, Valsmenn gengu á lagið og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 24-20. „Við vorum hreint út sagt ömur- legir í byrjun. Við flýttum okkur of mikið en snúum blaðinu við í seinni hálfleik sem við vinnum með fimm mörkum og ég er mjög stoltur af liðinu. Baldvin var í hörkustandi og hann hlýtur að fá tækifæri með landsliðinu, hann á það svo sannarlega skilið,“ sagði sigurreifur Óskar Bjarni Óskars- son, þjálfari Vals eftir leikinn en Baldvin var markahæstur í Vals- liðinu með átta mörk. „Þetta var mjög erfiður leikur og ég er hrifinn af þessu Akureyr- arliði, ég er viss um að þeir munu klífa upp töfluna. Þeir eru með gott lið, vel mannað og vel þjálfað. Hvað okkur varðar þýðir ekkert að horfa á töfluna, þetta er bara að duga eða drepast og við þurfum bara að vinna alla leikina, það er bara þannig,“ sagði Óskar sem var skiljanlega glaðbeittari en norðan- menn eftir leikinn. „Loksins þegar ég næ mér á strik þá er þetta eins og svo oft í vetur, tveir hlutir eru í lagi en sá þriðji klikkar. Við áttum að keyra yfir þá þegar þeir voru á rassgat- inu í fyrri hálfleik en það er eins og það hafi vantað einhvern sigur- vilja í okkur. Þetta skilur á milli sigurvegara og hinna, sigurvegar- arnir keyra bara yfir liðið meðan hinir bíða og tapa svo,“ sagði Sveinbjörn Pétursson sem varði vel í marki Akureyrar, þar á meðal fjögur vítaköst. „Þetta er virkilega svekkjandi eftir að við fáum góðan stuðning hérna en það er þó ekki allt svart, það eru jákvæðir punktar í þessu líka. Við þurfum að byggja á því og taka fjögur stig í leikjunum tveimur fyrir hléið,“ sagði mark- maðurinn. - hþh Akureyringar lágu í valnum Valsmenn gerðu góða ferð norður á Akureyri og unnu þar baráttuglaða heima- menn með fjögurra marka mun, 20-24, í hörkuleik í N1 deild karla í gærkvöldi. BARÁTTA Fannar Þór Friðgeirsson, leikmaður Vals, fær hér óblíðar móttökur frá Goran Gusic, leikmanni Akureyrar, í leik liðanna í gærkvöldi. Fannar átti fínan leik og skoraði fjögur mörk fyrir Val. MYND/PEDROMYNDIR FÓTBOLTI Newcastle og Arsenal skildu jöfn á St. James‘ Park í gærkvöldi í ensku úrvalsdeildinni í fremur tilþrifalitlum leik. Arsenal fékk sannkallaða óska- byrjun þegar liðið tók forystu strax á 4. mínútu með marki Emm- anuel Adebayor. Gilberto Silva fékk boltann út á hægri kantinum og átti hnitmiðaða sendingu á Ade- bayor sem tók boltann á kassann og afgreiddi hann svo viðstöðu- laust í þaknetið á glæsilegan hátt. Þessi byrjun var vissulega ekki það sem Sam Allardyce, stjóri Newcastle, þurfti enda mikil pressa á honum þessa dagana að fara að ná góðum úrslitum. Í seinni hálfleik héldu heima- menn í Newcastle áfram að þjarma að Arsenal og á 60. mínútu náði Steven Taylor að jafna leikinn. Í lokin var farið að draga af leik- mönnum Newcastle, en þeir náðu að halda út og jafntefli því niður- staðan. Arsenal er með jafnteflinu komið með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. - óþ Newcastle og Arsenal gerðu jafntefli í gærkvöldi: Arsenal náði ekki að sigra Newcastle JAFNTEFLI Arsenal varð að sætta sig við jafntefli gegn Newcastle á St. James‘ Park í gærkvöldi. Arsenal er með fjögurra stiga forystu í deildinni. NORDICPHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur unnu Íslandsmeistara Hauka í fjórða sinn í röð í vetur þegar þær unnu 21 stigs sigur, 100-79, í leik liðanna í Keflavík í Iceland Express deild kvenna í gær. Keflavíkurliðið tók frumkvæðið strax í byrjun og leiddi leikinn nánast allan tímann án þess þó að ná að gera endanlega út um leik- inn fyrr en í fjórða leikhlutanum. Keflavíkurliðið var að fá fjórtán stig eða meira frá fimm leikmönn- um í leiknum og liðið setti alls niður 14 þriggja stiga körfur í leiknum en Haukaliðinu gekk illa að verjast fjölbreyttum sóknar- leik Keflvíkinga sem fengu hvað eftir annað galopin skot. Keflavík var 25-14 yfir eftir fyrsta leikhluta og með 16 stiga forskot í hálfleik, 54-38. Kiera Hardy skoraði 8 stig á fyrstu einni og hálfri mínútu seinni hálfleiks og komu muninum niður í átta stig, 54-46, en nær komst Hauka- liðið og Keflavíkurliðið kláraði leikinn á sannfærandi hátt. Keflavíkurliðið átti allt annan og miklu betri leik en þegar liðið tapaði í Grindavík um helgina og það voru margir leikmenn liðsins að leggja grunninn að sigrinum í gær. Það er mikill fengur fyrir Keflavíkurliðið að fá Keshu Wat- son aftur inn og hún stjórnaði leik liðsins með glæsibrag í gær og var með 21 stig og 11 stoðsendingar. Margrét Kara Sturludóttir byrjaði leikinn af miklum krafti og skor- aði 6 stig og átti 3 stoðsendingar á fyrstu sex mínútum leiksins. Hún endaði leikinn með 20 stig, 9 frá- köst og 7 stoðsendingar og hefur vaxið mikið með meiri ábyrgð í vetur. Rannveig Randversdóttir var frábær með 17 stig á þeim 23 mín- útum sem hún spilaði og þá átti Marín Rós Karlsdóttir frábæra innkomu af bekknum, skoraði 14 stig og gaf 7 stoðsendingar en hún setti meðal annars niður 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum. Pál- ína Gunnlaugsdóttir skoraði 16 stig gegn sínum gömlu félögum þar af setti hún niður þrjá mikil- væga þrista frá nánast sama punktinum í þriðja leikhlutanum. Telma Björk Fjalarsdóttir var bestí Haukaliðinu með 13 stig og 13 fráköst, Kiera Hardy skilaði 27 stigum en komst oft lítið áleiðis gegn Pálínu. Kristrún Sigurjóns- dóttir var með 15 stig og 7 stoð- sendingar en hitti illa en aðeins 4 af 17 skotum hennar fóru rétta leið. Unnur Tara Jónsdóttir átti einnig góða spretti og endaði með 12 stig og 9 fráköst. - óój Keflavíkurkonur unnu 21 stigs sigur á Íslandsmeisturum Hauka í Iceland Expressdeild kvenna í gærkvöldi: Sannfærandi á sigurbraut á nýjan leik ÖFLUG Margrét Kara Sturludóttir, hjá Keflavík, átti frábæran leik í gærkvöldi og skor- aði 20 stig. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.