Fréttablaðið - 19.12.2007, Page 30

Fréttablaðið - 19.12.2007, Page 30
[ ] Nú þegar fólk er að fara í jóla- frí eru margir að skipuleggja ferðalög heim á æskuslóðir. Þá getur komið sér vel að taka bílaleigubíl en gæti virst óhentugt þar sem oft er dvalið lengi á sama stað. Það kemur sér því vel að sumar bíla leigur bjóða upp á að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. „Við erum með þrettán afgreiðslu- staði vítt og breitt um landið. Það er auðveldlega hægt að leigja bíl til dæmis í Reykjavík og skila honum á Akureyri,“ segir Vilhelm Þorri Vilhelmsson hjá Bílaleigu Akureyrar. „Það er nánast sama hvar á landinu maður er staddur, það er alltaf stutt í okkur. Fólk er duglegt að nýta sér þessa þjón- ustu, bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar. “ Ef til stendur að leigja bíl á einum stað og skila á öðrum þarf að greiða skilagjald. „Algengt skilagjald er á bilinu 8.500-13.500 krónur, breytilegt eftir því hvar bíl er skilað.“ Þorri segir að af íslenskum við- skiptavinum sé á veturna algeng- ara að fyrirtæki séu að leigja bíla en einstaklingar en það snúist svo við á sumrin. „Núna eru fjórhjóla- drifnir bílar vinsælastir hjá okkur. Við höfum alla tíð verið með gríðarlega gott úrval af þeim og þeir eru sérstaklega vinsælir á veturna.“ Þá býður Bílaleiga Akureyrar upp á svokallaðar CDW kaskó- tryggingar og Súper CDW. „Við bjóðum CDW kaskótryggingu sem er alla jafna innifalin í verð- listum. Þá er sjálfsábyrgðin breytileg eftir því hvort um er að ræða fólksbíl eða jeppa. Kjósi leigutaki að bæta við Súper CDW tryggingu lækkar sjálfsábyrgð niður í 15 til 25 þúsund krónur. Þessi trygging nýtur aukinna vin- sælda, enda er hún frekar ódýr og fólk þá mun betur tryggt,“ segir Þorri. hnefill@frettabladid.is Bíllinn leigður á einum stað og skilað á öðrum Vilhelm Þorri segir að Bílaleiga Akureyrar sé með þrettán afgreiðslustaði vítt og breitt um landið. MYND/K. LOUISE Jólakúlur geta skreytt ýmsa staði. Til dæmis má skreyta bílinn með nokkrum vel völdum kúlum og skrauti en þess ber þó að gæta að það trufli ekki aksturinn. Fiskislóð 16 Granda Sími: 577 3344 Fiskislóð 16 Granda Sími: 577 3344

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.