Fréttablaðið - 15.03.2008, Qupperneq 86
46 15. mars 2008 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 14.30
Jónas Viðar opnar málverkasýningu
sína í Jónas Viðar Gallery í Listagil-
inu á Akureyri í dag kl. 14.30. Jónas
Viðar nam myndlist við Myndlista-
skólann á Akureyri og Academia di
belle arti di Carrara á Ítalíu. Hann
hefur haldið fjölmargar einkasýning-
ar bæði hér heima og erlendis ásamt
því að reka gallerí og standa fyrir
sýningum annarra listamanna.
Þau Guðrún Óskarsdóttir semballeikari og
Kolbeinn Bjarnason þverflautuleikari koma
fram á tónleikum í Laugarborg í Eyjafjarðar-
sveit á morgun kl. 15.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir J.S.
Bach, Henry Purcell og Þorkel Sigurbjörns-
son. Jafnframt verða flutt í fyrsta sinn á
Íslandi verk eftir Huga Guðmundsson og
Diönu Rotaru sem eru samin sérstaklega
fyrir þau Guðrúnu og Kolbein. Verkin voru
bæði frumflutt á alþjóðlegri tónlistarhátíð í
Japan í ágúst 2007.
Flytjendurnir Guðrún og Kolbeinn eru
tónlistarunnendum að góðu kunn enda hafa
þau starfað saman síðan árið 1990 og leikið
bæði gamla tónlist og nýja.
Að auki hafa þau unnið margvíslega sigra
á tónlistarsviðinu hvort í sínu lagi. Guðrún
hefur leikið inn á hljómdiska og komið fram
sem einleikari og meðleikari á fjölmörgum
tónleikum á Íslandi og víða í Evrópu. Hún
leikur jöfnum höndum nýja tónlist og bar-
okktónlist, meðal annars með Bach-sveitinni
í Skálholti, Caput, Kammersveit Reykjavíkur
og með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Guðrún
hefur einnig unnið með Strengjaleikhús-
inu, Íslenska dansflokknum og í Íslensku
óperunni.
Kolbeinn hefur komið fram sem ein-
leikari á fjölmörgum tónlistarhátíðum á
Íslandi, en einnig í mörgum Evrópulöndum,
Bandaríkjunum, Mexikó og Japan. Hann
hefur frumflutt tónlist fjölmargra íslenskra
og erlendra tónskálda og hljóðritað verk
þeirra fyrir íslenskar, bandarískar og ítalskar
hljómplötuútgáfur.
Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr.
- vþ
Pálmasunnudagur í Laugarborg
GUÐRÚN ÓSKARSDÓTTIR OG KOLBEINN
BJARNASON Flytja tónlist fyrir sembal og
þver flautu í Laugarborg á morgun.
Um þessar mundir stendur yfir sýning
myndlistarkonunnar Eirúnar Sigurðardótt-
ur í hinu framsækna sýningarrými Suð-
suðvestur í Reykjanesbæ. Sýningin nefnist
Höll blekkinganna.
Á sýningunni tekur Eirún að sér hlutverk lifandi
skúlptúrs; hún birtist sem einhvers konar vera sem
heklar og bætir þannig við þræði og anga sem
spretta úr eigin höfði. „Ég hélt sýningu í Listasafni
ASÍ árið 2006 og það mætti segja að sýningin í
Suðsuðvestur sé hálfpartinn sprottin úr teikningu
sem þar var til sýnis,“ segir Eirún. „Þessi heklaða
vera á sér mýmargar skírskotanir í menningunni.
Hún er friðsæl, kyrrlát og bætir endalaust við sig.
Hún minnir þannig dálítið á manngert skilningstré
eða veru úr sjónvarpsþáttunum Star Trek sem
nefnist Borg og býr yfir samvitund með öðrum
verum. Sagan um dóttur malarans sem var gert að
spinna gull úr heyi hafði einnig áhrif á þessa veru.
Þessi saga fannst mér lýsa vel því sem listamenn
gera; að búa til eitthvað verðmætt úr hráefnum sem
kannski eru einskis virði í sjálfum sér.“
Höll Blekkinganna opnaði í byrjun mars og því
hefur Eirún nú nokkra reynslu af því að vera í
hlutverki lifandi skúlptúrs á sýningartíma. „Þetta er
vissulega öðruvísi reynsla en þegar maður setur upp
sýningu og kemur svo ekki aftur í sýningarrýmið
nema bara til að taka hana niður aftur. Þetta verk
krefst þess að ég gefi mér tíma í að sýna það. Það
tekur dálítið á að vera skúlptúr allar helgar, ekki síst
vegna þess að ég er dálítið heft þegar ég er í heklaða
búningnum, en ég er búin að koma mér upp aðferð
til að taka á móti sýningargestum. Svo get ég hvílt
mig aðeins inn á milli og slappað af innan um allt
garnið.“
Í tengslum við sýninguna kom út bókverk.
„Bókverkið sýnir ferlið á bak við þessa sýningu sem
átti sér stað frá teikningunni á sýningunni í ASÍ árið
2006 til þessa lifandi skúlptúrs í Suðsuðvestur.
Uppistaða bókverksins er teikningar sem tilheyra
þessu ferli, en í því eru einnig textar eftir Sigríði
Þorgeirsdóttur heimspeking og Sigrúnu Daníelsdótt-
ur sálfræðing og ljósmyndir eftir Katrínu Elvars-
dóttur,“ segir Eirún.
Hægt er að líta Höll blekkinganna augum á milli
kl. 13 og 17.30 nú um helgina í Suðsuðvestur,
Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ, og svo aftur helgina
29. og 30. mars. vigdis@frettabladid.is
Heklandi skilningstré
EIRÚN SIGURÐARDÓTTIR Heklandi vera í Suðsuðvestur.
„Það má segja að ég sé að láta
gamlan draum rætast,“ segir Þor-
steinn Jónsson, stofnandi sýning-
arrýmisins Reykjavík Art Gallery
sem opnar formlega í dag kl. 14.
„Ég hef lengi haft áhuga á mynd-
list og verið viðriðinn myndlistar-
heiminn á einn eða annan hátt, ég
var til að mynda forstöðumaður
Listasafns ASÍ hér á árum áður.
En mér hefur í nokkurn tíma þótt
vanta fleiri og fjölbreyttari sýn-
ingarrými í Reykjavík og því er
mjög ánægjulegt að geta tekið
þátt í að ráða bót á því með þess-
um hætti.“
Reykjavík Art Gallery er á
Skúlagötu 28 í húsnæði þar sem
áður var rekin kexverksmiðjan
Frón. „Þetta er frábært húsnæði
fyrir myndlistargallerí; lofthæðin
er um fjórir metrar og mikið vegg-
pláss. Við reiknum með því að geta
verið með þrjár til fjórar sýningar
í gangi í einu að jafnaði þar sem vel
er hægt að laga rýmið að þörfum
myndlistarinnar.“
Fyrstu myndlistarmennirnir
sem opna sýningar á verkum sínum
í hinu nýja galleríi eru þeir Magn-
ús Tómasson, Pétur Már Pétursson
og Tolli. Þorsteinn segist reikna
með að galleríið komi til með að
bjóða upp á fjölbreyttar sýningar í
framtíðinni. „Við ætlum að vera
með nokkra listamenn á okkar
snærum, sýna verk þeirra og kynna
þá, meðal annars með bókaútgáfu.
En við ætlum jafnframt að bjóða
upp á fjölbreyttar sýningar á
myndlist og ljósmyndum.“
Reykjavík Art Gallery verður
opið alla daga vikunnar, nema
mánudaga, kl. 14.00 til 18.00. - vþ
Reykjavík Art Gall-
ery tekur til starfa
GLÆSILEGT SÝNINGARRÝMI Reykjavík Art Gallery er í húsnæði sem áður tilheyrði
kexverksmiðjunni Frón.
Ég bíð þín er yfirskrift tónleika
sem Alexandra Chernyshova sópr-
ansöngkona heldur á Norðaustur-
landi nú um helgina. Á efnisskrá
tónleikanna eru rómantísk lög
eftir rússneska tónskáldið Sergei
Rachmaninov. Tónleikarnir fara
fram í Egilsstaðakirkju í dag kl. 17
og í Miklagarði á Vopnafirði á
morgun kl. 16. Undirleikari á tón-
leikunum er Zbigniew Zuchowicz.
Miðaverð er 1.500 kr.
Alexandra er fædd í Kíev í Úkr-
aínu en hefur verið búsett á Íslandi
síðan árið 2003. Hún hefur látið að
sér kveða í íslensku tónlistarlífi
allar götur síðan; um haustið 2006
stofnaði hún Óperu Skagafjarðar
sem hefur sett upp La Traviata
eftir Verdi og stefnir að því að
setja upp Rigoletto eftir sama tón-
skáld. Að auki starfrækir söng-
konan unga Söngskóla Alexöndru,
en í honum eru 30 nemendur.
Zbigniew Zuchowicz er skóla-
stjóri tónlistarskólans á Vopna-
firði. Hann er ættaður frá Póllandi
en hefur verið búsettur hér á landi
undanfarin ár ásamt fjölskyldu
sinni. Zbigniew er mjög fjölhæfur
og hámenntaður tónlistarmaður
en auk þess að spila á fjölmörg
hljóðfæri þá fæst hann einnig við
tónsmíðar, hefur unnið fjölmörg
verðlaun fyrir verk sín og starfar
einnig samhliða tónlistarskóla-
starfinu við kórstjórn, sem organ-
isti og hljóðfæraleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands.
Sergei Rachmaninov þarf vart að
kynna, því hann var ekki aðeins
einn besti píanóleikari 20. aldarinn-
ar heldur einnig síðasti fulltrúi
rússnesk-rómantísku stefnunnar,
sem Tsjaíkovskí og Rimskí-Korsa-
kov eru helstu fulltrúar fyrir. -vþ
Alexandra syngur
Rachmaninov
ALEXANDRA CHERNYSHOVA SÖNGKONA
Flytur sönglög Rachmaninovs á tónleik-
um í dag og á morgun.