Fréttablaðið - 15.03.2008, Síða 92

Fréttablaðið - 15.03.2008, Síða 92
52 15. mars 2008 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Bretarnir Simon Latham og Pete Lunn endurhljóðblönd- uðu nýverið tvö lög með söngkonunni Birgittu Hauk- dal. Simon hvetur Birgittu til að syngja á ensku og hasla sér völl í Bretlandi. Samstarfið varð þannig til að Simon og Pete höfðu samband við Birgittu í gegnum Myspace-síð- una og spurðu hvort þeir mættu ekki endurhljóðblanda lög hennar. Hún samþykkti það og urðu lögin Ein, titillag fyrstu sólóplötu henn- ar, og Örmagna fyrir valinu. Voru þau nýverið gefin út á síðunni Tón- list.is. Gott að vinna með Birgittu „Ég talaði við Birgittu og hún vildi endilega prófa eitthvað nýtt á borð við endurhljóðblöndun. Það var mjög gott að vinna með henni og hún var afar fagmannleg, rétt eins og samstarfsfólk hennar,“ segir Simon, sem hefur fengið góð við- brögð við lögunum. „Það hafa allir verið jákvæðir. Það hefur komið mörgum í opna skjöldu hversu frábrugðin lögin eru þeim sem eru á plöt- unni hennar en það var ein- mitt það sem við lögðum upp með. Við vildum setja þetta í þannig búning að þeir sem vanalega hlusta ekki á Birgittu myndu hlusta á þessi lög.“ Markaður í Bret- landi Simon játar að hugsanlega sé markaður fyrir Birgittu í Bret- landi. „Hún hefur rödd sem sker sig úr. Hreimur hennar þegar hún syngur á ensku gæti verið henni í hag því slík- ur hreimur íslenskra listamanna telst yfir- leitt kostur í Bretlandi ef þeir vilja ná langt. Ég myndi hvetja hana til að syngja líka á ensku í framtíðinni en það verður að koma í ljóst hvort það verði af því,“ segir hann. Búsettur í Reykjanesbæ Simon og Pete reka útgáfufyrir- tækið Airport Route, sem var stofnað fyrir tæpu ári. Simon er búsettur í Reykjanesbæ á meðan Pete býr í Bretlandi og saman gefa þeir út ýmiss konar danstónlist. Nýjasta útgáfa þeirra og sú stærsta til þessa er endurhljóð- blöndun Royal Sapien og Android Cartel á laginu Do You Feel It?, sem Simon og Pete gáfu út við miklar vinsældir árið 1996 undir nafninu Soundsation. Að auki stjórnar Simon mánað- arlegum podcast-þætti sem nefn- ist Something 4 Your Weekend ásamt því sem hann skrifar gagn- rýni á heimasíðuna progressive- house.com. Ísland best í heimi Simon, sem á íslenska eiginkonu, flutti hingað til lands fyrir fimm árum og líkar afar vel. „Þegar ég kom til Íslands var ég eiginlega hættur í tónlist en þegar maður býr á stað eins og Íslandi er eiginlega nauðsynlegt að semja tónlist, sérstak- lega á veturna. Mér finnst þetta líklega besti staðurinn í heimi til þess að búa til tónlist. Lands- lagið og fleira veitir manni innblástur og það síast inn í tónlistina sem maður semur. Ég get vel skilið af hverju svona margir tónlistar- menn koma fram hérna og hvers vegna margir þeirra hafa náð svona langt.“ freyr@frettabladid.is Bretar starfa með Birgittu SIMON LATHAM Simon hafði gaman af því að endurhljóðblanda lög fyrir Birgittu Haukdal. MYND/VÍKURFRÉTTIR BIRGITTA Tvö lög af fyrstu sólóplötu Birg- ittu voru endurhljóð- blönduð á dögunum af tveimur Bretum. Saksóknarar í máli hins hálf-íslenska Ians Strachan hafa lagt fram beiðni um að réttarhöldin yfir honum og félaga hans verði lokuð almenningi og fjölmiðlum. Frá þessu var greint á vef breska blaðsins Mirror. Eins og kom fram í fjöl- miðlum seint á síðasta ári var Paul Ian Adalsteinsson Strachan handtekinn ásamt meintum vitorðsmanni sínum, grunaður um að hafa ætlað að kúga fé út úr meðlimi konungsfjölskyld- unnar. Breskum fjölmiðl- um var meinað að upplýsa hver sá væri en bandarísk- ir vefmiðlar töldu víst að hann væri David Linley, stjórnarformaður uppboðs- fyrirtæksins Christie’s og frændi Elísabetar drottn- ingar. Mirror hefur eftir tals- manni ákæruvaldsins að óskin sé borin upp til að geta leikið óklippta útgáfu af upptökum þar sem nafn hins aðalborna kemur fyrir. „Og þess vegna vilj- um við hafa bara dómara og kviðdóm í dómsal til að vernda hlutaðeigandi,” sagði talsmaður ákæru- valdsins. Lögfræðingurinn Mark Stephens hjá lögfræðifyr- irtækinu Finers, Stephens, Innocent sagðist ekki geta tekið þessi rök gild til að réttarhöldin yrðu lokuð almenningi. „Sú hefð að konungsfjölskyldan sé ekki yfir lög hafin hefur fylgt bresku þjóðinni frá Magna Carta,“ sagði Step- hens en beiðni ákæru- valdsins hefur vakið reiði meðal breskra lögfræð- inga. - fgg Leynimakk yfir krúnukúgara BÍÐUR RÉTTARHALDA Ian Strachan, hálf-íslenska partíljón- ið, hefur setið í varðhaldi frá því að hann var handtekinn, grunað- ur um að ætla að kúga fé út úr meðlim konungsfjölskyldunnar. Í kvöld ræðst hver vinnur Músíkt- ilraunir Tónabæjar og bætist við fríðan flokk sigurvegara. Síðan á mánudaginn hafa fimmtíu bönd spilað í Austurbæ og tíu bestu böndin koma fram í kvöld. Hinir, End- less Dark, Furry Strangers, The Nellies, Ástark- ári, Blæti, Happy Funeral og Óskar Axel og Karen Páls tryggðu sér þátttökurétt á lokakvöldinu, auk tveggja hljóm- sveita sem komust áfram í gærkvöldi. „Ég hef séð betri ár,“ viðurkennir Arnar Eggert Thor- oddsen, fulltrúi Rásar 2 í dómnefnd. Hann hefur fylgst með ótal Tilraunum. „Samt er gleðilegt að sjá að fjölbreytnin er allsráðandi og krakkarnir eru ófeimnir við að viðra það sem þeir hafa verið að nostra við í bílskúrunum. Aðal- stefnan er rokk í öllum sínum myndum, en lang efnilegasta bandið að mínu mati er rapp- hljómsveit.“ Úrslitin fara fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsi. Húsið verð- ur opnað kl. 16 og miðaverð er 1.000 kr. Rás 2 verður með beina útsendingu frá tónleikunum. Lokaslagur Tilrauna GLEÐILEGT AÐ SJÁ FJÖLBREYTNINA Arnar Eggert er í dómnefnd fyrir Rás 2. > VISSIR ÞÚ? ...Fyrsta klónaða spen- dýrið, kindin Dolly, var nefnd eftir söngkon- unni Dolly Parton. Eitt þekktasta lag hennar, Jolene, hefur verið flutt af fjölda tónlistarmanna, þar á meðal Olivu Newton- John, hljómsveitinni The White Stripes og nú síð- ast Lay Low. Æskudraumur leikarans Billy Crystal varð að veruleika þegar hann fékk að spila með hafna- boltaliðinu New York Yankies. Í tilefni af sextugsafmæli sínu fékk Crystal að slá fyrsta höggið í sýningarleik liðsins í Flórída gegn Pittsburh Pirates. Crystal, sem klæddist skyrtu númer 60, þurfti að skrifa undir eins dags samning við Yankies til að fá að spila leikinn. „Þetta var nánast óraunverulegt en alveg frábært. Ég vildi að ég gæti endurtekið leikinn strax á morgun,“ sagði Crystal. „Mér leið eins og hafnaboltaspilara:“ Draumur að veruleika CRYSTAL OG ALI Billy Crystal á góðri stundu með hnefaleikakappanum og vini sínum Muhammad Ali.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.