Fréttablaðið - 15.03.2008, Síða 93
LAUGARDAGUR 15. mars 2008
Heiðin er, að mér telst, önnur mynd
Einars Þórs Gunnlaugssonar í
fullri lengd, hann á að baki Þriðja
nafnið sem og einn þátt í kvik-
myndinni Villuljósi. Hér leikstýrir
hann bæði og skrifar handrit.
Myndin gerist í fámennu byggð-
arlagi vestur á fjörðum á kosninga-
degi. Hér segir frá Emil sem lendir
í hrakningum þegar hann þarf að
koma kjörkassa norður yfir heiði
svo hægt sé að telja atvæðin.
Nýkominn heim úr borginni er
sonur hans, Albert. Komið hefur
upp sundurlyndi milli feðganna og
þeir talast vart við en á þessum
örlagaríka degi komast þeir ekki
hjá því að gera upp sín mál.
Leikhópurinn samanstendur af
reyndum leikurum og öðrum yngri,
sem sumir hverjir eru að stíga sín
fyrstu spor á hvíta tjaldinu. Jóhann
Sigurðarson leikur Emil, sem er
gæðablóð en svo tilfinningalega
heftur að það hefur kostað hann
tengslin við soninn sem Gísli Pétur
Hinriksson leikur. Inn í söguna
fléttast hálfbróðirinn Stebbi, leik-
inn af Ólafi S. K. Thorvalds.
Hugmyndin er prýðileg og býður
upp á marga möguleika. Þetta
strandar hins vegar allt á handrit-
inu sem er allt of lítið unnið og per-
sónurnar ómótaðar. Samskipti
Emils og Alberts eru lítt áhuga-
verð, framvindan er álíka tíðinda-
lítil og stirð og samband þeirra
feðga og risið að sama skapi lágt og
ósannfærandi.
Jóhann Sigurðarson er traustur
leikari, sem skilar sér vissulega í
persónu Emils, en karakterinn
skortir þó átakanlega meiri dýpt.
Enn einsleitari er hins vegar
Albert; lengst af hegðar hann sér
eins og einfaldur fantur sem erfitt
er að hafa samúð með, en í blálokin
er látið í það skína að ekki sé allt
eins og sýnist. Gísli Pétur er fyrir-
ferðarmikill og hefur sterka nær-
veru en fær ekki úr miklu að moða,
frekar en aðrir leikarar sem skila
sínu þó eftir bestu getu. Það er
reyndar alltaf dásamlegt að sjá Jón
Sigurbjörnsson fyrir framan
myndavél og óvæntur gleðigjafi er
Ólafur S. K. Thorvalds í hlutverki
galgopans Stebba, sem er í raun
eini karakterinn sem eitthvað
púður er í.
Margt er vissulega vel gert. Útlit
myndarinnar er gott og stórkost-
legt umhverfi Austur-Barðastrand-
arsýslu nýtur sín vel í linsu Sigurð-
ar Sverris Pálssonar. Í raun er hér
allt saman komið sem góða kvik-
mynd þarf að prýða – fyrir utan
handrit. Vissulega koma fyrir fal-
leg atriði og augnablik, sjálfsagt
væri hægt að þjappa atburða-
rásinni saman og búa til ágæta
stuttmynd. En handritið er of hrátt
til að halda uppi kvikmynd í fullri
lengd. Segja má að það fari eins
fyrir myndinni og aðalpersónunni;
hún festist í brekku í upphafi veg-
ferðar og kemst hvorki lönd né
strönd. Bergsteinn Sigurðsson
Auðir seðlar og ógildir
KVIKMYNDIR
Heiðin
Leikstjórn og handrit: Einar Þór
Gunnlaugsson.
Aðalhlutverk: Jóhann Sigurðarson,
Gísli Pétur Hinriksson, Ólafur S. K.
Thorvalds, Ísgerður E. Gunnarsdóttir,
Gunnar Eyjólfson o.fl.
★★
Niðurstaða: Góð hugmynd fer for-
görðum vegna ófullburða handrits og
ómótaðra persóna.
Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að
vinna að verkefnum á sviði umhverfis- eða ferðamála í sumar.
Við bjóðum fram krafta vinnuhópa ungmenna á aldrinum 16 til 20 ára sem starfa hjá okkur
á sumrin. Hóparnir sinna viðhaldi og snyrtingu í nágrenni mannvirkja okkar en um árabil
hafa þeir sinnt umhverfismálum og bætt aðstöðu til útivistar og ferðamennsku víða um
land. Við viljum eiga samstarf um verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun og öðrum
umhverfisbótum ásamt t.d. stígagerð og stikun gönguleiða.
Við bjóðum fram vinnuframlag unglinganna og flokkstjórn yfir þeim.
Við óskum eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni,
samkvæmt nánari lýsingu á umsóknareyðublaði sem er að finna á vefsíðu
Landsvirkjunar, www.lv.is.
Nánari upplýsingar veita: Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi og Ragnheiður Ólafsdóttir
umhverfisstjóri í síma 515 9000 – thorsteinn@lv.is og ragnheidur@lv.is.
Umsóknum skal skila í síðasta
lagi 4.apríl með vefumsókn á
www.lv.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
05
77
Margar hendur vinna létt verk
Samstarfsaðilar óskast!