Fréttablaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 32
[ ]Sundfötin skal hengja strax upp á snúru þegar heim er komið svo þau mygli ekki ofan í töskunni. Einnnig er hægt að leigja sér sundföt á staðnum sem verða þá eftir í klefanum.
Hlutverk og samskipti er nám-
skeið ætlað ömmum og öfum.
Leiðbeinendur eru ömmurnar
Valgerður Magnúsdóttir sál-
fræðingur og Lone Jensen
uppeldisráðgjafi.
Valgerður verður fyrir svörum
þegar spurt er út í námskeiðið Hlut-
verk og samskipti. „Við Lone þekkj-
um það sem fagmenn og ömmur að
fólk vill vanda sig í ömmu- og afa-
hlutverkunum en er samt að lenda í
smá vandræðum,“ segir Valgerður
glaðlega. Hún telur nútíma afa og
ömmur verða að móta sína eigin
stefnu þar sem þau skorti fyrir-
myndir í eldri kynslóðum. „Lífið
hefur breyst svo mikið,“ bendir
hún á. „Það heyrir til undantekn-
inga í dag að afar og ömmur séu í
sveitinni og bíði eftir að barnabörnin
komi til sumardvalar. Nú þarf að
finna út hvar sóknarfærin liggja og
taka tillit til fjarlægðar, aldurs og
áhugamála. Þó hugsa ég að tíminn
sé sá þáttur sem þarf mest að spá í.
Það hafa allir svo mikið að gera.“
Valgerður kveðst þekkja fólk
sem hafi slegið af í eigin starfi og
tómstundaiðkun vegna barnabarn-
anna. „Sumir koma inn í líf barn-
anna svolitla stund á hverjum degi,
aðrir eiga þau langt í burtu en reyna
að halda tengslum í síma og á net-
inu. Það skiptir máli hversu náin
tengslin eru við barnabörnin og
ekki síður foreldra þeirra. Leiðir
foreldranna hafa kannski skilið og
ýmis ör eftir það geta gert ömmu-
og afahlutverkið erfitt,“ segir hún
og bætir við: „Vissulega eiga for-
eldrarnir að ráða ferðinni enda
standa þeir barninu næst og mikil-
vægt er að amma og afi séu sam-
stiga uppeldisaðferðum þeirra.“
Fyrsta námskeiðið er á laugar-
daginn 5. apríl milli 10 og 14. Hægt
er að skrá sig bæði í síma og á net-
föng þeirra Valgerðar og Lone.
Númerin eru 896 0449 og 868 9777
og netföngin valam@est.is og
lonej@simnet.is „Við Lone byggjum
námskeiðið upp á samræðum og
hópavinnu og svo smá umhugsun
fyrir hvern og einn,“ segir Val-
gerður. „Við teljum okkur sjálfar
hafa ýmsu að miðla sem fagmenn
og komum líka nestaðar eigin
ömmu reynslu.“
gun@frettabladid.is
Tími, fjarlægð og tengsl
Valgerður og Lone
verða með fyrsta
námskeiðið á laugar-
daginn og miðla
þekkingu bæði úr
störfum sínum og
eigin reynslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
• Hjarta og æðakerfi
• Kólesteról í blóði
• Blóðþrýsting
• Liði
• Orkuflæði líkamans
• Minni og andlega líðan
• Námsárangur
• Þroska heila og miðtaugakerfi
fósturs á meðgöngu
• Rakastig húðar
Í fitusýrum er að finna tvo
undirstöðuþætti sem eru
okkur lífsnauðsynlegir á
sama hátt og prótín, kolvetni,
vítamín og steinefni.
Omega fitusýrur byggja upp
ónæmiskerfið á marga vegu
og hafa jákvæð áhrif á:
Udo‘s Choice fæst í apótekum og heilsubúðum
Fullkomin
blanda!
Udo's choice 3•6•9 olíublandan
er fullkomin blanda af
lífsnauðsynlegum fitusýrum.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt
fram á jákvæða eiginleika
þeirra fyrir heilsu okkar. Udo’s
3•6•9 olíublandan er sérvalin
blanda náttúrulegra, óunninna,
lífsnauðsynlegra fitusýra.
RAFMAGNSHITARAR
VERÐ FRÁ 1.990
ne
tv
er
slu
n
ish
us
id
.is
Byrjendanámskei› í yoga
Sex vikna byrjendanámskei› hefst 7. apríl.
Mánudaga og fimmtudaga kl. 16.40.
Kennari: Talya Freeman.
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
HEYRNARÞJÓNUSTA
Dot er góður punktur
fyrir þá sem vilja heyra vel.
Þessi punktur er agnarsmátt heyrnartæki
sem með nýjustu tölvutækni bætir við heyrnina
þeirri tíðni sem notandinn hefur tapað.
Hringdu og láttu okkur fræða þig meira um
þessa undraverðu tækni.
Heimsins minnstu heyrnartæki koma frá ReSound . . . . . . . . . . .
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki