Fréttablaðið - 03.04.2008, Side 12
3. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
GJALDKERAR HÚSFÉLAGA
ÞURFA LÍKA SITT FRÍ!
HELSTU KOSTIR HÚSFÉLAGAÞJÓNUSTU SPRON:
Frekari upplýsingar er að finna á spron.is og hjá viðskiptastjórum
í síma 550 1200 eða þjónustuveri í síma 550 1400.
Oft fer dýrmætur frítími gjaldkera húsfélaga í að sinna starfi sínu. Af hverju ekki að nýta sér
Húsfélagaþjónustu SPRON og spara þannig vinnu og fyrirhöfn?
INNGÖNGU
TILBOÐ
Þau húsfélög, sem koma
í viðskipti við SPRON fyrir
30. maí 2008, fá fría
innheimtuþjónustu í sex
mánuði.
A
R
G
U
S
/
0
8
-0
1
3
3
Hörkutól
Samsung M110 farsíminn er nýjasta verkfærið í
verkfærakassann. Honum er pakkað inn í sterk-
byggða umgjörð sem er bæði ryk- og rakavarin
(IP54) og hann er fullur af notadrjúgum aukabúnaði.
Samsung M110 – er sannkallað hörkutól.
VGA myndavél Ryk- og rakavarinn (IP54)
Bluetooth Innbyggður hátalari
Stereó FM-útvarp Vasaljós
– með rykgrímu, hjálm og vinnuvettlinga
Heildsöludreifing og þjónusta:
Skútuvogi 12c auk viðukenndra söluaðila um land allt
M110 fæst hjá eftirtöldum aðilum:
BRUNAMÁL Orsaka stórbrunans í
miðbæ Reykjavíkur í apríl 2007 er
að leita í ófullnægjandi eldvörnum.
Tíu metra langur eldveggur á milli
húsanna við Lækjargötu 2 og Aust-
urstræti 22 hafði verið fjarlægður.
Skemmdir hefðu orðið óverulegar
hefði hann staðið, að mati bruna-
málastjóra. Rannsókn lögreglu er
lokið án niðurstöðu um eldsupptök.
Átak þarf í brunavörnum og eftir-
liti gamalla bygginga um allt land.
Björn Karlsson brunamálastjóri
kynnti skýrslu Brunamálastofnun-
ar um stórbrunann við Lækjartorg
í gær. Kom fram í máli hans að
eldsupptök hefðu að öllum líkind-
um verið í millilofti í söluturninum
Fröken Reykjavík, sem stóð á lóða-
mörkum húsanna. Eins að það verði
aldrei sannað þar sem niðurrif á
vettvangi varð þess valdandi að
lögregla gat ekki komist að skýrri
niðurstöðu um eldsupptökin.
Björn segir ljóst að niðurrif eld-
varnarveggs á milli húsanna sé
ástæða þess að svo illa fór sem
raun ber vitni. „Það er alveg með
ólíkindum að eldvarnarveggur á
lóðamörkum hafi verið rifinn.
Ábyrgðin liggur hjá eigendum sem
hefði mátt vera ljóst að verknaður-
inn hafi verið gróft lögbrot og að
verknaðurinn hafi aukið mjög
hættu á stórbruna.“ Björn segir
eldinn hafa komið upp innan þilja
og því sé óhætt að útiloka
íkveikju.
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu,
telur opinbera aðila hafa brugðist
þegar að horft er til brunavarna og
eftirlits í gömlum menningarsögu-
lega verðmætum húsum. „Stóru
skilaboðin eftir miðbæjarbrunann
eru að við erum ekki að hugsa
nægilega vel um menningarverð-
mætin okkar og taka þarf stór
skref til úrbóta.“ Hann segir að í
brunanum hafi eitt af elstu húsum í
Reykjavík brunnið og eyðilagst.
„Þetta er ekki hvaða hús sem er. Á
Norðurlöndunum eru til ítarlegar
skilgreiningar á því hvernig bruna-
vörnum skal fyrirkomið vegna
bygginga sem teljast menningar-
verðmæti, ólíkt því sem hér er.“
Nikulás Úlfar Másson, forstöðu-
maður húsafriðunarnefndar, telur
ljóst að brunavörnum gamalla húsa
hér á landi sé mjög ábótavant.
Sjálfvirk viðvörunar- og slökkvi-
kerfi hafa ekki verið sett upp í
sögufrægum húsum og eru húsin
við Bernhöftstorfuna, Menntaskól-
inn í Reykjavík, Iðnó og Höfði
nefnd í því sambandi.
svavar@frettabladid.is
Ófullnægjandi eld-
varnir ollu stórtjóni
Gríðarlegar skemmdir í miðbæjarbrunanum í apríl 2007 urðu vegna ófullnægj-
andi eldvarna. Rannsókn lögreglu er lokið án niðurstöðu um orsök eldsvoðans.
Íkveikja er útilokuð. Átak þarf í brunavörnum og eftirliti gamalla bygginga.
EYÐILEGGING Húsið að Lækjargötu 2 stórskemmdist en Austurstræti 22 eyðilagðist.
Mörg hundruð gömul hús hér á landi eru talin vera í hættu vegna ófullnægjandi
brunavarna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM