Fréttablaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 7bílar ● fréttablaðið ●
* Verð í auglýsingunni er án virðisaukaskatts. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Aukabúnaður á mynd af Transit er samlitur á stuðara og grilli og þokuljós í framstuðara. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
„Standard“heiturallamorgna
Nýtt útlit. Nýtt innlit. Ný vél. Nýtt
stöðugleikastýrikerfi. Komdu.
Skoðaðu nýjan Ford Transit.
Kannaðu aðstæður. Vinnuaðstöðunni hefur verið breytt til hins betra í nýjum Transit.Reyndu nýju vélina í Transit:
2,2 l dísil Duratorq TDCi.
G
C
IG
R
O
U
P
Stilltu klukkuna að kvöldi og þú byrjar daginn heitur að morgni.
Tímastillanleg olíumiðstöð er staðalbúnaður í Transit sendibílum
frá Ford - sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Komdu í Brimborg.
Kynntu þér nýtt stöðugleikastýrikerfi Ford Transit sem er staðalbúnaður.
Vertu í hópi þeirra bestu. Komdu í
Brimborg. Veldu Ford Transit í dag.
Verð frá 2.626.506 kr. án vsk*.
Kynntu þér sértæka þjónustu Atvinnubíla Ford hjá Brimborg
Kynntu þér sértæka þjónustu
Atvinnubíla Ford hjá Brimborg
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.ford.is
REYNSLUAKSTUR
Volvo XC90 Sport hefur allt
sem góður sportjeppi þarf
að bera og ætti ekki að valda
vonbrigðum.
Jeppar eru í mikilli sókn og njóta
meiri vinsælda nú en áður. Þar er
Volvo XC90 sportjeppinn engin
undantekning, enda fallegur bæði
að innan sem utan.
Volvo XC90 hefur fengið yfir
fimmtíu alþjóðleg verðlaun fyrir
hönnun, öryggi og vistmildi svo
fátt eitt sé nefnt og skal engan
undra.
Bíllinn býr yfir talsverðri tækni
og er öryggisbúnaður hans með
besta móti. Í staðalbúnaði bifreiðar-
innar má líta á fjölmörg öryggis-
atriði sem mættu sjást í fleiri
bílum, svo sem sex loftpúðar með
loftpúðatjöldum fyrir glugga að
framan og aftan, ný yfirbygging
úr boron-stáli, veltivörn og bak-
hnykksvörn.
Sem fyrr sagði hefur boron-stál
verið notað í yfirbyggingu bíls-
ins, en þessi tegund af stáli er sögð
vera fimm sinnum sterkara en það
venjulega. Stálið eykur því öryggi
ökumanns og farþega ásamt því að
ýta auðvitað undir öryggiskennd
bílstjórans þegar haldið er af stað.
Fjöðrunarbúnaður Volvo XC90
er einnig magnaður, einn sá besti
sem fæst. Bíllin er búinn sport-
fjöðrun og sjálfstæðri fjölarma
afturfjöðrun. Jeppinn helst þannig
stöðugur sama hvert undirlagið er.
Bíllinn er glæsilegur að innan, stíl-
hreinn og plássið mikið fyrir öku-
mann og farþega. Hann er skráður
sjö manna og fer vel um farþega
sem sitja í aftursæti, en hægt er
að færa aftursætin fram og aftur
eftir hentisemi.
Þá skilar 4,4 lítra V8 vélin ótrú-
legu afli og snerpu. Hún skilar 315
hestöflun og það nýtist hvert ein-
asta hestafl.
Þeir sem eru hugsa um að fá
sér jeppa gætu sannarlega haft
gaman að kynna sér Volvo XC90
Sport betur, sportjeppa sem búinn
er öllum helstu eiginleikum góðs
jeppa, hvort sem um ræðir kraft,
öryggi eða fallega hönnun. Óhætt
er að segja að Volvo XC90 bíllinn
hitti beint í mark og skili sínu til
ökumannsins. mikael@frettabladid.is
Öryggi og kraftur í fyrirrúmi
Volvo XC 90 hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir hönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Aðbúnaður ökumannsins er með besta móti.
Vel fer um farþega en gert er ráð fyrir
sjö manns í bifreiðinni.
VOLVO XC90
Hö: 315
Tog: 440 Nm
Skipting: Geartronic 6 þrepa sjálf-
skipting
Þyngd: 2.250 kg
Hröðun 0-100 km/klst: 8,5 sek
Eyðsla bl. akstur: 13,3 l/100 km
Veghæð: 22 cm
Farangursrými: 615/1837 lítrar
Umboð: Brimborg
Verð: 8.690.000