Fréttablaðið - 03.04.2008, Side 2
2 3. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
Ármann, hvað varstu að
hugsa?
„Ég var að hugsa um hvernig í
ósköpunum væri hægt að þrýsta
niður heimsmarkaðsverðinu á olíu.“
Ármann Kr. Ólafsson alþingismaður var
einn þeirra sem sat fastur í umferðinni
þegar vörubílstjórar mótmæltu háu olíu-
verði við Austurvöll. Ármann virtist afar
hugsi þegar ljósmyndari fangaði hann
undir stýri.
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Fljótlegt og gott
Frábært verð!
139 kr.kg.
Ungnautahamborgarar
120 g
SIMBABVE, AP Stjórnarflokkur
Roberts Mugabe forseta í Simb-
abve hefur misst meirihluta sinn
á þingi, að því er nýjustu opin-
beru tölur sýndu í gær. Stundu
áður höfðu talsmenn stjórnarand-
stöðunnar birt sínar tölur um
úrslit úr forsetakosningunum,
sem fram fóru jafnhliða þing-
kosningunum um helgina, en sam-
kvæmt þeim náði stjórnarand-
stöðuleiðtoginn Morgan
Tsvan girai hreinum meirihluta
atkvæða.
Tölurnar sem yfirkjörstjórnin
birti loks síðdegis í gær virðast
staðfesta að upplausn er brostin á
stjórn Mugabe, sem hefur stýrt
landinu allt frá því það hlaut sjálf-
stæði frá Bretaveldi fyrir 28
árum. Síðustu ár hennar við völd
hafa einkennst af gerræði og
óreiðu í efnahagsmálum með óða-
verðbólgu, matarskorti og allt að
80 prósent atvinnuleysi.
Samkvæmt hinum opinberu
úrslitum þingkosninganna fær
Lýðræðishreyfingin, flokkur
Tsvangirais, 105 sæti en ZANU-
PF-flokkur Mugabes 93 í nýju og
breyttu þjóðþingi með alls 210
fulltrúum. Einn óháður náði kjöri.
Þetta þýðir að jafnvel þótt ZANU-
PF fengi öll þingsætin sem eftir
er að úthluta næði hann ekki
meirihluta. Á síðasta þingi hafði
stjórnarandstaðan 41 fulltrúa af
120.
Á blaðamannafundi fyrr í gær
lýsti Tendai Biti, framkvæmda-
stjóri Lýðræðishreyfingarinnar,
því yfir að Tsvangirai hefði feng-
ið 50,3 prósent atkvæða í forseta-
kosningunum en Mugabe 43,8.
Stjórnardagblaðið The Herald
flutti í gær þá frétt að til úrslita-
umferðar myndi koma. Það var
fyrsta opinbera viðurkenning
stjórnarliða á því að hinn 84 ára
gamli Mugabe hefði ekki tryggt
sér endurkjör í þetta sinn.
Í fyrradag heyrðust óstaðfest-
ar fréttir af því að fulltrúar for-
setans og áskorandans ættu í við-
ræðum um valdalok Mugabe.
- aa
Stjórnarflokkur Mugabe missir meirihluta á þingi Simbabve:
Rætt um valdalok Mugabe
MORGAN
TSVANGIRAI
ROBERT MUGABE
Der Spiegel fjallar um Ísland
Ítarleg grein um stöðuna í íslensku
efnahagslífi birtist á hinum víðlesna
fréttavef þýska vikuritsins Der
Spiegel í gær og bættist þar með í
langa röð greina um þróunina hér í
erlendum miðlum að undanförnu.
Höfundur greinarinnar er Auðunn
Arnórsson, blaðamaður á Frétta-
blaðinu.
EFNAHAGSMÁL
SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guð-
finnsson sjávarútvegsráðherra
og Tórbjörn Jacobsen starfs-
bróðir hans í Færeyjum hafa
gengið frá árlegum fiskveiði-
samningi Íslendinga og Færey-
inga.
Færeysk skip fá heimild til að
veiða 30 þúsund lestir af loðnu
við Ísland svo fremi að útgefinn
kvóti verði 500 þúsund lestir.
Samkomulag er um að þjóðirnar
fái áfram að veiða kolmunna og
norsk-íslenska síld- og botnfisk-
veiðiheimildir Færeyinga verða
óbreyttar. Færeysk skip hafa því
heimild til að veiða 5.600 lestir
af botnfiski á árinu. Íslensk skip
hafa heimild til að veiða 2.000
lestir af Hjaltlandssíld við
Færeyjar og 1.300 lestir af
makríl. - shá
Samningur við Færeyinga:
Veiðar við Ísland
svipaðar og áður
SAMNINGUR Í HÖFN Sjávarútvegsráð-
herrarnir Tórbjörn Jacobsen og Einar K.
Guðfinnsson.
Grím
stunguheiði
Friðmundarvötn
Langjökull
XAuðkúluheiði
Blöndulón
SLYS Tveir karlmenn fundust látnir
í skothúsi á Auðkúluheiði í gær.
Talið er líklegt að þeir hafi látist
vegna kolmónoxíðseitrunar, en
skothúsið var að mestu lokað þegar
að var komið.
Mennirnir, 88 ára og 52 ára, fóru
til refaveiða á þriðjudag, og ætluðu
að koma til byggða í gærmorgun.
Þegar þeir skiluðu sér ekki fór
sonur annars þeirra við annan
mann til að kanna málið. Þegar
hann kom að skothúsinu um hádegi
fann hann mennina látna.
Gas er notað til að hita upp skot-
húsið, og telur lögregla líklegt að
það hafi dregið mennina til dauða.
Þeir voru báðir reyndar refa-
skyttur, að sögn lögreglunnar á
Blönduósi. Ekki er unnt að greina
frá nöfnum mannanna að svo
stöddu.
Lögreglan á Akureyri rannsakar
lát þeirra.
Ingvar Helgi Árnason, prófessor
í efnafræði við Háskóla Íslands,
segir gasbruna geta orðið mönnum
að aldurtila með tvennum hætti.
Annars vegar geti logi slökknað
en gas haldið áfram að streyma.
sem geti verið banvænt. Hins vegar
myndist kolmónoxíð við gasbruna
þegar ekki sé nægilegt súrefni.
Kolmónoxíð er eitruð lofttegund
sem hindrar súrefnisupptöku, og
getur dregið fólk til dauða. - bj
Tvær grenjaskyttur fundust látnar í skothúsi á Auðkúluheiði skammt frá Blönduvirkjun um miðjan dag í gær:
Gaseitrun talin líklegt banamein
Slysið á Auðkúluheiði í gær minnir
á svipað slys sem varð í ágúst árið
2001 þegar þrír karlmenn og kona
biðu bana í veiðiskála við Veiði-
vötn vegna kolmónoxíðseitrunar.
Veiðivörður kom að
fólkinu látnu og
voru gluggar
og hurðir lok-
aðar.
MINNIR Á BANASLYS
Í VEIÐIVÖTNUM
DÓMSMÁL Saga Capital fjárfest-
ingabanki krefst þess að Insolid-
um ehf., sem er í eigu Daggar
Pálsdóttur, varaþingkonu
Sjálfstæðisflokksins, og sonar
hennar, Páls Ágústs Ólafssonar,
verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Mál þess efnis var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
en málflutningi vegna kröfunnar
frestað til 21. apríl.
Insolidum tók lán hjá Saga
Capital til þess að kaupa stofn-
fjárbréf í SPRON á haustmánuð-
um í fyrra sem hafa lækkað mikið
í verði frá því félagið var skráð á
markað 29. október.
Dögg og Páll Ágúst Ólafsson
telja engar forsendur vera fyrir
því að taka félagið til gjaldþrota-
skipta. - mh
Saga Capital gegn Insolidum:
Saga Capital
krefst gjald-
þrots Insolidum
VIÐSKIPTI Viðskiptavinur Landsbankans heldur því
fram að rangar ráðleggingar starfsmanns bankans
hafi kostað sig um sjö milljónir króna. Maya Petzoldt
vildi ávaxta evrur í einn mánuð, og segir að sér hafi
verið ráðlagt að skipta þeim í krónur þrátt fyrir að
krónan félli dag frá degi.
Petzoldt segir starfsmenn bankans hafa sagst hafa
misskilið sig, en þegar hún hafi rætt við útibússtjóra
hafi hann sagt að bankinn gæti ekkert gert fyrir hana,
hún hafi tekið ákvörðun um að selja.
Petzoldt fékk um 235 þúsund evrur til landsins fyrir
um mánuði síðan, og ætlaði að nota féð til að greiða
fyrir íbúð í byrjun apríl. Hún fór tæpri viku eftir að
hún fékk féð til landsins í útibú Landsbankans til að
kanna hvernig skammtímaávöxtun myndi skila henni
bestum árangri.
„Ég er alls enginn fjármálasérfræðingur, ég fór í
bankann til að fá ráð frá sérfræðingi,“ segir Petzoldt.
„Ég kom í bankann með þá hugmynd að kaupa
peningabréf, en vildi fá ráðleggingar um hvað væri
best að gera.“
Starfsmaður bankans ráðlagði henni að kaupa
peningabréf, sem Petzoldt gerði. Eftir að hafa talað
við aðra sérfræðinga segir hún að á sig hafi runnið
tvær grímur. Hún hafi til að mynda ekki áttað sig á
því að á þeirri tæpu viku sem hún átti peningana í
evrum hafi verðmæti þeirra aukist um í kringum 600
þúsund krónur vegna lækkandi gengis krónunnar. Það
hefði starfsmaðurinn átt að upplýsa.
Síðan hún seldi evrurnar fyrir krónur hefur gengi
krónunnar lækkað verulega. Evrurnar hennar hefðu
því verið um 7 milljónum króna verðmætari í byrjun
apríl en þær voru þegar hún seldi. Á því að eiga
peningabréfin í tæpan mánuð græddi hún 300 þúsund.
Petzoldt átelur bankann fyrir ranga ráðgjöf.
Sérfræðingar hafi talið víst að krónan myndi falla
áfram, en henni hafi verið ráðlagt að kaupa krónur.
Slíkt séu vítaverð og greinileg mistök af hálfu
starfsmanns bankans.
Eftir ítrekaðar tilraunir tókst Petzoldt að komast í
samband við yfirmann hjá bankanum, og hitti
Guðmund Inga Hauksson, útibússtjóra hjá Landsbank-
anum. Hún segir Guðmund Inga ekki hafa viðurkennt
að bankinn hafi gert mistök, né að bankinn bæri
nokkra sök í málinu. Hann hafi ekki hegðað sér
fagmannlega. brjann@frettabladid.is
Tapaði milljónum á
rangri ráðgjöf banka
Starfsmaður Landsbankans ráðlagði konu að skipta 235 þúsund evrum í krónur
fyrir mánuði. Skammtímaávöxtun skilaði 300 þúsundum, en hefði skilað um
sjö milljónum að halda í evrurnar. Bankinn segir ábyrgðina liggja hjá konunni.
„Starfsmenn bankans veita ekki ráð-
gjöf um gengi, hvorki á hlutabréfum
né gjaldmiðlum. Þetta er spákaup-
mennska,“ segir Guðmundur Ingi
Hauksson, útibússtjóri hjá Lands-
bankanum.
Starfsmaðurinn sem ráðlagði
Petzoldt segir hana hafa komið í
bankann til þess að skipta evrunum
í krónur og fjárfesta, og ráðgjöfin
snerist því um skammtímafjárfest-
ingu á krónum, segir Guðmundur
Ingi.
Svo virðist sem Petzoldt telji
starfsmanninn hafa átt að telja
hana af því að selja evrurnar, sem er
ekki hlutverk starfsmannsins, segir
Guðmundur Ingi. Almannarómur-
inn á þeim tíma hafi verið að gengi
krónunnar hafi verið of hátt skráð,
og að gengið myndi lækka þegar
stýrivextir Seðlabankans lækkuðu,
ekki að lækkunin yrði jafn snörp og
raun bar vitni.
Landsbankinn er með sérfræðinga
á sviði viðskipta með gjaldmiðla, en
viðskiptavinurinn óskaði ekki eftir því
að ræða við þá, segir Guðmundur.
Starfsmanni hafi ekki borið að benda
viðskiptavininum á slíka sérfræðinga.
RÁÐLEGGJA EKKI UM SPÁKAUPMENNSKU
ÓSÁTT Maya Petzoldt og Einar Snorri Einarsson, eiginmaður
hennar, segja yfirmenn Landsbankans hafa hafnað því að taka
ábyrgð á mistökum starfsmanns bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SLYS Ekið var á unglingstúlku í
Skeiðarvogi við Vogaskóla um
klukkan hálf níu í gærkvöld. Að
sögn lögreglu var hún meðvitund-
arlaus þegar sjúkraflutningamenn.
Rannsóknanefnd umferðaslysa var
kölluð á staðinn en tildrög slyssins
voru ókunn í gærkvöld.
Þá lá ekki fyrir í gærkvöld
hversu alvarleg meiðsl stúlkunnar
voru en hún var til rannsóknar á
slysadeild Landspítalans. - kdk
Bílslys við Vogaskóla:
Ekið á stúlku
Hittir Rice í Washington
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra mun eiga fund með
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í Washington 11. apríl
næstkomandi. Meðal þess sem ráð-
herrarnir munu ræða er varnarsam-
starf Íslands og Bandaríkjanna.
UTANRÍKISMÁL
SPURNING DAGSINS