Fréttablaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 3. apríl 2008 11
Eldur á Grettisgötu
Eldur kom upp í húsi við Grettisgötu í
gærdag þegar kviknaði í út frá eldhús-
tæki. Slökkvistarf gekk greiðlega. Ekki
urðu slys á fólki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÝRAHALD „Þetta er ungur fugl,
sennilega eins til þriggja ára og
ekki kynþroska,“ segir Erpur
Snær Hansen hjá Náttúrufræði-
stofu Suðurlands um fálka sem
fannst máttvana í námunda við
lögreglustöðina í Vestmanna-
eyjum fyrr í vikunni.
Erpur segir unga fálka eiga
misjafnlega erfitt uppdráttar
fyrstu árin, á meðan þeir eru að
læra veiðitæknina. „Þessi er
verulega horaður svo honum
hefur ekki gengið neitt sérstak-
lega vel.“ Til stendur í dag að
senda fálkann í Húsdýragarðinn í
Laugardal, þar sem honum
verður sinnt frekar. - ovd
Fálki í Vestmannaeyjum:
Fékk hjálp hjá
lögreglunni
FÁLKINN Í VESTMANNAEYJUM Ungum
fuglum gengur misjafnlega vel að læra
veiðitæknina. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
MÓTMÆLI Óverulegar tafir urðu á
flugi í gærmorgun vegna
mótmæla flutningabílstjóra á
Reykjanesbrautinni. Bílstjórarnir
lokuðu umferð við Kúagerði í
klukkustund, frá klukkan 5.30 til
6.30, og töfðust bæði flugfarþegar
og -áhafnir á leið til Keflavíkur.
Samkvæmt áætlun áttu fyrstu
vélar að fara í loftið klukkan 7.40
en á þeim varð tíu mínútna
seinkun, en það þykir innan
eðlilegra marka í flugrekstri. Um
klukkan átta var allt flug komið í
eðlilegt horf. Hæpið er því að
þetta hafi haft áhrif á farþega
sem áttu bókað frekara flug
þegar út var komið. - kp
Mótmæli á Reykjanesbraut:
Óverulegar
tafir á flugi
ÍRLAND, AP Bertie Ahern, sem setið hefur á
forsætisráðherrastóli á Írlandi síðastliðin
ellefu ár, boðaði í gær afsögn sína.
Á blaðamannafundi í Dyflinni, með mestu
þungavigtarráðherrana úr ríkisstjórn sinni
sér við hlið, lýsti Ahern því yfir að hann
myndi víkja úr embætti hinn 6. maí næst-
komandi. Hann neitaði því enn og aftur að
hafa þegið spillingargreiðslur, en viður-
kenndi að stöðug gagnrýni síðustu átján
mánaða á persónulegt fjármálasiðferði sitt
hefði tekið sinn toll af skilvirkni ríkis-
stjórnarinnar.
„Aldrei á öllum þeim tíma sem ég hef
gegnt opinberum störfum hef ég sett
persónulega hagsmuni ofar almannaheill,“
sagði Ahern í tíu mínútna ávarpi. Við
flutning þess titraði rödd hans ítrekað af
geðshræringu. „Ég hef aldrei þegið spillta
greiðslu, og ég hef aldrei gert neitt sem
smánað gæti virðingu neins þeirra embætta
sem ég hef gegnt,“ sagði hann.
Ahern kvaðst einnig mundu hætta sem
formaður stjórnarflokksins Fianna Fáil, sem
hann hefur farið fyrir síðan árið 1994. Hann
sagðist áfram mundu verjast öllum þeim
ásökunum sem á hann eru bornar og enn er
verið að rannsaka.
Enda Kenny, leiðtogi stjórnarandstöðu-
flokksins Fine Gael, sagði það hins vegar
hafa sýnt sig að Ahern væri „lygari“ sem
hefði „beygt sig fyrir hinu óhjákvæmilega“
eftir ótrúverðugan vitnisburð í spillingar-
réttarhaldi.
Í stjórnartíð Aherns hefur Írland notið
fordæmislauss hagvaxtarskeiðs og átti hann
stóran þátt í því að koma á hinu sögulega
friðarsamkomulagi á Norður-Írlandi.
- aa
UMSKIPTI Ahern tilkynnir afsögnina umkringdur sam-
herjum í Dyflinni í gær. MYND/AP
Írski forsætisráðherrann Bertie Ahern víkur úr embætti í maí eftir ellefu ár á valdastóli:
Kveðst áfram munu verjast ásökunum
DANMÖRK Ránsfengurinn sem
náðist í ráninu í útibúi peninga-
flutningafyrirtækisins Loomis í
Glostrup á Sjálandi í fyrradag
gæti verið mun stærri en þær
þrjátíu milljónir dönsku króna,
andvirði nærri 500 milljóna
íslenskra, sem fyrst var tilkynnt
um. Grunur leikur á að innan-
búðar maður hafi átt þátt í ráninu.
Kaupmannahafnarlögreglan
upplýsti í gær að þær þrjátíu
milljónir danskra króna sem fyrst
voru nefndar væru lágmarksupp-
hæð. Raunveruleg tala kynni að
vera mörgum milljónum hærri.
Stærsti fengur í ráni í Danmörku
til þessa var 41 milljón danskra
króna. Það var framið fyrir átta
árum, einnig í Glostrup. - aa
Peningaránið í Danmörku:
Náðu minnst
500 milljónum