Fréttablaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 3. apríl 2008 45
FÓTBOLTI Guðbjörg Gunnarsdóttir
fór í aðgerð í gær á hásin og fram
undan er langur tími í endur-
hæfingu.
„Ég er búin að heyra í Sigga
Ragga og landsliðsnefndinni og
ég fæ bara bestu meðferð sem er
til á landinu,“ sagði Guðbjörg í
gær en áfallið var mikið.
„Það eina sem ég hef heyrt
núna er að þetta er verra en að
slíta krossböndin en ég hélt að
það væri það versta,“ segir
Guðbjörg, sem hefur fengið sinn
skammt af meiðslum þrátt fyrir
ungan aldur. „Ég fór í gegnum
axlarmeiðsli þegar ég var sautján
ára og var frá í níu mánuði eftir
aðferð og svo átti ég að hafa slitið
krossbönd 2006 en þegar ég fór í
aðgerðina voru þau ekki slitin. Þá
var ég heppin,“ segir Guðbjörg,
en hvernig urðu meiðslin?
„Það kom fyrirgjöf, ég missti
boltann og var að skutla mér
aftur á hann og fann þá brjálaðan
smell aftan í hælnum. Ég hélt
pottþétt að einhver hefði sparkað
í mig og var alveg brjáluð,“ lýsir
Guðbjörg og bætir við: „Ég
fann strax að þetta
var eitthvað
alvarlegt og ég
fer ekki út af
vellinum svo
auðveldlega.
Þetta var
allavega
enginn
væll,“
segir
Guð-
björg. - óój
Guðbjörg Gunnarsdóttir:
Fór í aðgerðina
strax í gær
GUÐBJÖRG GUNN-
ARSDÓTTIR Frá í
langan tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið-
ið í fótbolta varð fyrir gríðarlegu
áfalli í gær þegar markvörðurinn
Guðbjörg Gunnarsdóttir sleit
hásin í leik gegn KR í Lengjubik-
arnum. Guðbjörg var búin að leysa
brotthvarf Þóru Bjargar Helga-
dóttir með glæsibrag og mark-
varðarstaðan var í góðum hönd-
um. Nú er allt hins vegar breytt.
„Ég er eiginlega orðlaus yfir
þessu og bara ennþá í sjokki. Það
er fullt af leikjum fram undan
með landsliðinu og ég var loksins
búin að vinna mér sæti í byrjunar-
liðinu. Maður vaknar einn daginn
og þá eru bjartir tímar fram undan
og daginn eftir er maður bara úr
leik,“ sagði Guðbjörg niðurbrotin
þegar Fréttablaðið heyrði í henni í
gær.
Guðbjörg var nýtekin við aðal-
markvarðarstöðunni af Þóru
Björgu Helgadóttur sem gaf ekki
kost á sér vegna vinnu sinnar í
Belgíu. Fram undan er stórt og
hugsanlega sögulegt ár hjá liðinu
og meiðsli Guðbjargar, sem stóð
sig frábærlega á Algarve-mótinu
á dögunum, þýða að markmanns-
málin eru í óvissu. Sigurður Ragn-
ar Eyjólfsson landsliðsþjálfari vill
ekki leita til Þóru, sem sjálf er til-
búin að skoða það að koma aftur í
landsliðið sé KSÍ tilbúið að aðstoða
hana við það.
„Þetta eru hrikalegar fréttir,
fyrir Guggu og fyrir landslið-
ið,“ sagði Þóra Björg þegar
Fréttablaðið heyrði í henni.
„Siggi Raggi er búinn að taka það
skýrt fram að það verði ekki leitað
til mín. Ég þarf ákveðinn sveigj-
anleika sem er ekki eðlilegur fyrir
landsliðsmann og ég skil það vel.
Mér finnst þetta aftur á móti engin
spurning um forgangsröðun þegar
maður fær ekki greitt fyrir að
vera í fótboltanum. Þetta er mín
atvinna hér úti og ég get ekkert
gert nema KSÍ komi til móts við
mig. Ég hef ekki verið með kröfu
um það en væri alveg tilbúin að
skoða það,“ segir Þóra. „Mér finnst
æðislegt að spila með landsliðinu
og mikill heiður en þetta var bara
það eina í stöðunni hjá mér. Ef ég
get tekið þátt í þessu er ég alveg
tilbúin.“ Þóra hefur mikla trú á
þeim markvörðum sem eftir
standa en segir málið snúast aðal-
lega um að þær vanti báðar
reynslu.
„Ég ætla ekki að vera sá maður
sem suðar í leikmönnum, og leik-
menn verða að vilja vera í lands-
liðinu. Þegar ég talaði við Þóru í
janúar tjáði hún mér það að hún
gæfi ekki kost á sér og því kemur
hún ekki til greina að mínu mati,“
sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson
landsliðsþjálfari, sem varð vitni
að því þegar Guðbjörg sleit hásin-
ina í fyrrakvöld.
„Við höfum lent í ýmsum
skakkaföllum þetta eina ár sem ég
hef verið þjálfari en það hefur
alltaf komið maður í manns stað.
Ég er ekki búinn að ákveða hver
verður næsti aðalmarkvörður en
við eigum eftir að skoða það betur
á næstu vikum. Það getur vel farið
svo að ég skipti leikjunum við
Finnland á milli markvarða en það
gæti líka farið svo að ég verði
búinn að velja aðalmarkvörð fyrir
þann tíma,“ segir Sigurður Ragn-
ar og það er ljóst að frumkvæðið
að því að tala við Þóru mun ekki
koma frá honum og það mun ekki
koma frá Þóru heldur.
Nú er spurning hvað Knatt-
spyrnusambandið er tilbúið að
gera í stöðunni. Fram undan eru
úrslitaleikir fyrir kvennalandslið-
ið um að tryggja sér sæti á stór-
móti í fyrsta sinn. Útlitið í dag er
fyrir að landsliðið fari í næstu
leiki með reynslulausan markvörð
á sama tíma og Ísland á einn besta
markvörð heims sem hefur gríð-
arlega mikla reynslu og er að spila
á fullu með belgíska liðinu Ander-
lecht.
Nú er að sjá hvort formaður eða
framkvæmdastjóri KSÍ eru til-
búnir að taka af skarið og leysa
þennan hnút og gera kvennalands-
liðinu kleift að mæta með Þóru
Björgu Helgadóttur í markinu í
hinum mikilvægu leikjum ársins.
Það gæti gert útslagið í að koma
landsliðinu í fyrsta sinn á stórmót.
ooj@frettabladid.is
Þóra tilbúin ef KSÍ getur hjálpað
Landsliðsþjálfarinn vill ekki suða í leikmönnum til að spila með kvennalandsliðinu en það þarf frum-
kvæði frá KSÍ eigi Þóra Björg Helgadóttir að spila með liðinu á einu mikilvægasta ári í sögu þess.
56 LANDSLEIKIR Þóra
Björg Helgadóttir er
leikjahæsti markvörður
A-landsliðs kvenna frá
upphafi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR