Fréttablaðið - 03.04.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Einu sinni á miðju fylliríi fékk vinur minn hugmynd. Hann
hafði reyndar verið að pæla í þessu
lengi en fékk snögglega vitrun:
Strákar, sparkiði í rassinn á mér!
sagði hann æstur, beygði sig niður
og setti rassinn út í loftið. Hvað
meinarðu!? spurðum við hinir
hissa.
ÞAÐ er fátt betra en að vera í bata,
útskýrði vinurinn. Að vera frískur
er bara eitthvað sem manni er sama
um og hugsar ekkert út í, en verði
maður veikur kann maður að meta
heilsuna og fyllist lífslöngun og
gleði þegar manni fer að batna.
Þess vegna vil ég að þið sparkið í
rassinn á mér. Það er vont fyrst en
svo fyllist ég lífshamingju í réttu
hlutfalli við það þegar verkurinn
hverfur.
JÆJA þá, ókei, sögðum við og
spörkuðum í rassinn á honum.
Svona voru nú partíin einu sinni.
MÉR datt þessi saga í hug nú þegar
hin hræðilega kreppa hefur varað í
rúmlega tvær vikur. Kannski er
það bara Pollýanna sem talar, en
mér líður frábærlega undir hinum
endalausa hörmungarsöng og
harmkvælum. Mér finnst þetta satt
að segja miklu skemmtilegri tíð en
þegar það skall á okkur daglega að
Blablabanki hefði grætt þúsund
trilljónir fyrir hádegi og einhver
trillinn hefði gert eitthvað geðveikt
við aurinn sinn.
LAMANDI lífleysi, mannlaus
torg og almennur doði eru helstu
einkenni íslensks mannlífs en nú
er allavega smá líf í tuskunum.
Brjálaðir vörubílakallar teppa
hraðbrautir og óþekktir samverj-
ar mála yfir krot í miðbænum.
Flestir eru sammála vörubílaköll-
unum og hanga þolinmóðir í tepp-
unni. Það er búið að dúndra jafnt í
rassgatið á öllum og nú er bara að
bíða eftir að verkurinn líði smám
saman úr afturendanum.
Í glimrandi góðæri liggja allir á
andlegri meltunni, vömbin vell-
andi úr fráhnepptum buxna-
strengnum, heilastarfsemin lömuð
af súkkulaði. Úttroðinn maður
gerir ekkert nema blása úr nös og
teygja sig eftir enn einni sneið af
tertunni. Stuðið býr hins vegar í
kreppunni. Svangur maður er til
alls vís, neyðin kennir naktri konu
að spinna og allt það. Auðvitað
þarf að hafa kreppuna innan gæsa-
lappa því okkar svokallaða kreppa
er bara sykurhúðað millibils-
ástand og ekkert í ætt við alvöru
harðindi. Já, Pollýanna mín.
EN allavega: Góðærið er diskó,
kreppan er pönk og í batanum
felst hamingjan.
Bati
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Tónlistarsími sem þú
vilt láta sjá þig með
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Nokia 5310 Express Music
Fullkomin blanda af flottum síma og
góðum tónlistarspilara. Örþunnur og
einfaldlega töff út í gegn.
Verð: 32.900 kr.
Þráðlaus móttakari
Tengdu móttakarann við hljóm-
flutningstækin þín, heima eða í
bílnum, og spilaðu tónlistina
þráðlaust úr símanum í
fullkomnum hljómgæðum!
Verð: 6.900 kr.
Tilboðspakki
35.900 kr.
Komdu í næstu Vodafone verslun og kynntu þér tónlist í símann.
Endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð fi mmtudaga
milli 19:30 – 22:00 í síma 551-1012.
Í dag er þriðjudagurinn 3. apríl,
94. dagur ársins.
6.38 13.31 20.26
6.18 13.16 20.16