Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 2
2 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL Ákæruvaldið í Færeyjum mun krefjast tíu
ára fangelsisvistar að lágmarki yfir Íslendingi sem
setið hefur þar í fangelsi og einangrun svo mánuð-
um skiptir vegna meintrar aðildar að Pólstjörnumál-
inu. Þetta segir Linda Margarete Hasselberg,
saksóknari í málinu, við Fréttablaðið.
Gæsluvarðhald yfir manninum rann út í gær, en
hann féllst á að sitja áfram í gæslu og einangrun þar
til að réttarhöldum loknum. Hann þurfti því ekki að
mæta fyrir dómara, sem ella hefði orðið. Það er hins
vegar á valdi saksóknara í málinu hvort honum
verður haldið í einangrun til 11. apríl. Þá á að ganga
dómur í málinu ef tímasetningar standast.
Á mánudag hefjast réttarhöld í málinu. Þá verður
kviðdómur kallaður saman og vitnaleiðslur hefjast.
Einn mannanna fjögurra sem sitja í fangelsi á Litla-
Hrauni vegna Pólstjörnumálsins mun bera vitni í
máli Íslendingsins. Hann fer út í lögreglufylgd eftir
helgina til að mæta fyrir dóminn.
Hinn 11. apríl er svo að vænta niðurstöðu kvið-
dóms um sekt eða sakelysi Íslendingsins. Þeirri
niðurstöðu er ekki hægt að áfrýja, að sögn saksókn-
ara. Verði maðurinn fundinn sekur ákveða dómari
og kviðdómur refsingu hans. Þeirri ákvörðun er
hægt að áfrýja til æðri dómstóls. - jss
Íslendingurinn áfram í einangrun í Færeyjum vegna Pólstjörnumáls:
Ákæruvaldið mun krefjast tíu
ára fangelsis að lágmarki
MÓTMÆLI Engra breytinga er að
vænta í bráð eftir fund Kristjáns
L. Möller samgönguráðherra og
fulltrúa atvinnubílstjóra sem fram
fór í gær.
Sturla Jónsson, talsmaður
bílstjóra, sagði að niðurstaðan af
fundinum hefði verið lítil. „Ástand-
ið hefur ekkert breyst. Það var í
sjálfu sér fínt að hitta ráðherra, en
við viljum að menn vinni sína
vinnu. Það er kergja í okkur.“
„Að mínu mati var fundurinn
ágætur,“ segir Kristján L. Möller.
„Við höfum fengið tillögur frá
Samtökum atvinnulífsins og ASÍ
um undanþáguákvæði sem við
hyggjumst fylgja eftir og ætlum
að fara með til eftirlitsstofnunar
EFTA.“ Kristján segist hafa boðið
bílstjórunum að fara yfir tillögurn-
ar og láta þau í ráðuneytinu vita ef
þeir hefðu eitthvað meira fram að
færa. - kp
Kergja meðal bílstjóra:
Engra breyt-
inga að vænta
Á FUNDI Sturla Jónsson og félagar fund-
uðu með samgönguráðherra í gær.
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Gott í helgarmatinn
Ungnautafillet í rauðvíns-
og piparmarineringu Þú sparar 1.700kr.
1.998kr.kg.
FÆREYJAR Maðurinn situr inni fyrir meinta hlutdeild í einu
stærsta fíkniefnasmyglmáli sögunnar.
SVEITASTJÓRNARMÁL Stjórnendur
Reykjavík Engergy Invest (REI),
útrásararms Orkuveitu Reykja-
víkur (OR), munu um helgina
funda með embættismönnum og
stjórnendum fyrirtækja í Jemen
og Eþíópíu um samstarf að orku-
verkefnum. Undirbúningi að
uppsetningu jarðvarmavirkjun-
ar í Djíbútí verður einnig fram-
haldið. Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins hafa að
undanförnu deilt um hverjar
áherslur Orkuveitunnar eigi að
vera varðandi verkefni á erlendri
grundu, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Því hafnar Kjart-
an Magnússon, stjórnarformað-
ur Orkuveitunnar og REI.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að ekki sé full sátt innan
borgarstjórnarflokks Sjálfstæð-
isflokksins um útrásarverkefni
REI, og um þau hafi verið deilt
að undanförnu. Þrætueplið virð-
ist þó ekki vera verkefni í Djíbútí,
enda hafa þau verið lengi í
bígerð. Öðru máli gegni um ný
verkefni í Jemen og Eþíópíu.
Kjartan Magnússon segir hins
vegar að full samstaða sé innan
borgarstjórnarflokks sjálfstæð-
ismanna um málið. Í forsíðufrétt
Fréttablaðsins í gær sagði Gísli
Marteinn Baldursson að hann
hefði ekki áhuga á því að Orku-
veitan nýtti skattfé til áhættu-
verkefna erlendis. Hann hefði
jafnframt aldrei legið á þeirri
skoðun sinni. Kjartan segir að
ekki hafi komið til neinna nýrra
fjárskuldbindinga af hálfu fyrir-
tækisins. Því séu viðræðurnar og
hugsanlegt framhald á samstarfi
ekki þrætuepli innan borgar-
stjórnarflokksins.
Kjartan segir að verkefnið sé
að ræða við heimamenn í Jemen
og Eþíópíu um mögulega aðkomu
fyrirtækisins að orkuverkefn-
um. „Þetta hefur verið til skoð-
unar hjá fyrirtækinu í nokkurn
tíma en er mun skemmra á veg
komið en verkefnin í Djíbútí. Við
munum undirrita viljayfirlýs-
ingu um samstarf í Eþíópíu en
óvíst er hvort til þess komi í
Jemen. Við munum þó ræða við
þarlend stjórnvöld og fyrirtæki
um þeirra áhuga, sem er mikill
að því er ég best veit.“ Spurður
hvort vonast sé til að viðræðurn-
ar leiði til svipaðrar niðurstöðu
og í Djíbútí, þar sem líklegt er að
fyrirtækið standi að uppsetningu
50 til 100 megavatta jarðvarma-
virkjunar sem tryggi orkusölu-
samning við djíbútísk stjórnvöld
til tuttugu ára, segir Kjartan að
það muni viðræðurnar leiða í
ljós. „Ef þetta lítur vel út er
freistandi að hefja verkefni í
þessum tveimur ríkjum. Svo leið-
ir tíminn í ljós hvað það yrði og
hvernig það yrði fjármagnað, en
sérstaka fjármögnun þyrfti í slík
verkefni.“
svavar@frettabladid.is
REI kannar verkefni
í Jemen og Eþíópíu
Stjórnendur REI munu um helgina funda með embættismönnum og forsvars-
mönnum fyrirtækja í Jemen og Eþíópíu um aðkomu að orkuverkefnum. Skiptar
skoðanir eru innan borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna um útrásarverkefni.
FRÁ UNDIRRITUN Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI, undirritar samning um jarð-
hitanýtingu í Djíbútí við Mahmoud Ali Youssouf, utanríkisráðherra landsins, í janúar.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var viðstaddur. MYND/FORSETAEMBÆTTIÐ
Kjartan, geta Sjálfstæðismenn
ekki reynt að fá útrás öðruvísi?
Við ættum kannski að REIna það.
Kjartan Magnússon er stjórnarformaður
Orkuveitunnar og REI. Sjálfstæðismenn
hafa að undanförnu eytt miklu púðri í að
ræða um hlutverk OR á erlendri grund
og eru ekki alltaf á eitt sáttir um það.
SIMBABVE, AP Menn í herbúðum
Roberts Mugabe, forseta
Simb abves, sögðu í gær að þeir
hefðu fallist á að efnt yrði til
úrslita umferðar forsetakosning-
anna sem fram fóru fyrir viku.
Þetta var fyrsta opinbera
viðurkenning stjórnarliðsins á
því að hinn 84 ára gamli Mugabe
hefði ekki unnið kosningarnar.
Hundruð vopnaðra uppgjafaher-
manna úr sjálfstæðisstríðinu
gengu fylktu liði um götur
Harare í gær.
Enn er opinberra úrslita beðið.
- aa
Spenna í Simbabve:
Samþykkja
úrslitaumferð
Mokhumarveiði
Humarvertíðin er hafin og lofar byrj-
unin mjög góðu. Fyrstu bátarnir héldu
út strax eftir páska og hefur aflinn
verið afbragðsgóður suðaustanlands,
nánar tiltekið í Hornafjarðardýpi. Enn
sem komið er hafa aðeins fjórir bátar
hafið veiðar, allir frá Þorlákshöfn.
SJÁVARÚTVEGUR
Kastaðist út úr bílnum
Ökumaður bíls með átta farþega
innanborðs missti stjórn í hálku og
valt út af veginum við bæinn Hóla í
Öxnadal í gærmorgun. Farþegi kast-
aðist út úr bílnum en er ekki talinn
alvarlega slasaður.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SÖFNUN „Við erum að hjálpa
Hannesi að mæta þessum
kostnaði og það sér nú ekki fyrir
endann á því,“ segir Friðbjörn
Orri Ketilsson, forsvarsmaður
hóps sem
stendur fyrir
fjársöfnun
fyrir Hannes
Hólmstein
Gissurarson
prófessor.
Friðbjörn Orri
segir söfnun-
ina ganga vel
en vill ekki
gefa upp hve
mikið hefur safnast. Markmiðið
er að safna að minnsta kosti
þeim rúmu þremur milljónum
króna sem Hannes var dæmdur
í Hæstarétti til að greiða Auði,
ekkju Halldórs Laxness. „Svo
þarf auðvitað að mæta frekari
kostnaði í Bretlandi. En við
erum ánægðir og þakklátir
öllum þeim sem hafa lagt fé til
söfnunarinnar.“
- ovd
Söfnun fyrir Hannes:
Neitar að gefa
upp hve mikið
hefur safnast
FRIÐBJÖRN ORRI
KETILSSON
LÖGREGLUMÁL Fíkniefni og fjár-
munir fundust við húsleit lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu í Breiðholti í fyrrakvöld.
Talið er að um sé að ræða 70
grömm af marijúana. Einnig var
lagt hald á rúmlega 600 þúsund
krónur í peningum sem grunur
leikur á að séu tilkomnir vegna
fíkniefnasölu. Karlmaður og
kona á þrítugsaldri voru hand-
tekin vegna rannsóknar málsins.
Húsleitin var framkvæmd að
undangengnum dómsúrskurði.
Fjögur önnur fíkniefnamál
komu til kasta lögreglunnar í
fyrradag og fyrrinótt. Tveir karl-
menn, annar á fimmtugsaldri en
hinn undir tvítugu, voru hand-
teknir í miðborginni síðdegis. Á
mönnunum, sem voru báðir í
annarlegu ástandi, fundust ætluð
fíkniefni. Í fyrrakvöld var tæp-
lega þrítugur karlmaður stöðv-
aður í Breiðholti en hann var
með marijúana í fórum sínum.
Nokkru síðar, eða um miðnætti,
var karlmaður á líkum aldri
stöðvaður í miðborginni en við
leit á honum fundust einnig ætluð
fíkniefni. Snemma í gærmorgun
var rúmlega fertugur karl færð-
ur á lögreglustöð. Hann var líka
tekinn í miðborginni og var með
hass í fórum sínum.
- jss
Annríki hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu vegna fíkniefnamála:
Tók marijúana og 600 þúsund
LANDBÚNAÐARMÁL Einar K.
Guðfinnsson landbúnaðarráðherra
greindi frá því á aðalfundi
Landssambands kúabænda í gær
að kjarnfóðurtollar verði felldir
niður á öllum fóðurblöndum frá
ríkjum Evrópska efnahagssvæðis-
ins frá og með 1. maí. Óbreytt
gjald verður innheimt af fóður-
blöndum frá öðrum löndum.
Tollurinn er 3,90 krónur á hvert
kíló af blönduðu fóðri.
Breytingin verður tímabundin
og ræðst framhaldið af því hvernig
samningar um gagnkvæmar
tollaívilnanir á landbúnaðarvörum
þróast á milli Íslands og Evrópu-
sambandsins. - shá
Hagur bænda vænkast:
Kjarnfóðurtoll-
ar felldir niður
HASS OG MARIJÚANA Nokkurt magn af
hassi og marijúana var tekið víðsvegar
um borgina, auk fjármuna.
SPURNING DAGSINS