Fréttablaðið - 05.04.2008, Síða 4
4 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
5
2
8
GENGIÐ 04.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
150,3984
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
74,21 74,57
148,44 149,16
116,70 117,36
15,644 15,736
14,599 14,685
12,453 12,525
0,7251 0,7293
121,45 122,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
VERSLUN „Við höfum fundið það
klárlega síðustu dagana að það er
verulegur viðsnúningur,“ segir
Loftur Ágústsson, markaðsstjóri
Ingvars Helgasonar, um sölufall á
nýjum bílum á síðustu dögum.
Sala á nýjum bílum hrundi eftir
páska. Ástæðan er gengisfall krón-
unnar, hækkun verðs á nýjum bílum
í kjölfarið og óvissa um framhald-
ið. Þannig var aðeins skráður 151
bíll í vikunni eftir páska samanbor-
ið við 281 bíl vikuna á undan og 275
bíla vikuna þar á undan. Og í vik-
unni sem er að líða höfðu aðeins
verið skráðir 105 bílar á hádegi á
föstudag. Þrátt
fyrir þetta bak-
slag hefur sala
nýrra bíla aukist
um fjórtán pró-
sent það sem af
er árinu miðað
við sama tíma í
fyrra.
„Það er engin
launung að fólk
er miklu minna
að skoða nýja bíla,“ segir Loftur
Ágústsson, sem kveður stöðuna
einkennast af því að menn spili dag
frá degi og bíði átekta.
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar og formaður Bílgreinasam-
bandsins, tekur undir að afar rólegt
hafi verið á markaðnum frá því í
síðustu viku. „Þegar krónan veikist
svona skarpt finnur bílgreinin mjög
hratt fyrir samdrætti í sölu því
mjög stór hluti af bílverði er erlend-
ur kostnaður. Og þegar umræðan
er í hámarki og dýfan er sem dýpst
heldur fólk náttúrulega að sér
höndum. Síðan fer það að laga sig
að aðstæðum og kemur út á mark-
aðinn aftur,“ segir hann.
Að sögn Lofts hefur verð á nýjum
bílum hjá Ingvari Helgasyni hækk-
að um allt að fimmtán prósent að
undanförnu. „Við höfum reynt að
halda aftur af okkur í hækkunum
eins og við frekast getum en getum
ekki lifað með þessar sveiflur til
lengdar,“ segir hann.
Egill segir að hjá Brimborg hafi
hækkunin numið á bilinu níu til tólf
prósent, mest eftir páska. „En við
höfum ekki sett nema um þriðjung
af lækkun krónunnar út í verðið því
menn eru að vona að þetta gangi til
baka.“
Fyrstu þrjá mánuði ársins seld-
ust um fjögur þúsund nýir bílar.
Reiknað hefur verið með að salan
yrði allt að fimmtán þúsund nýir
bílar á árinu öllu. Loftur telur að
jafni gengi krónunnar sig ekki
muni sala á nýjum bílum verða allt
að þriðjungi minni. „Þá verður
þetta tæpast nema um tíu þúsund
bíla markaður á árinu,“ segir hann.
gar@frettabladid.is
Sala nýrra bíla fraus
við hrun krónunnar
Þrefalt færri bílar voru nýskráðir í vikunni sem er að líða en fyrstu þrjár vik-
urnar í mars. Verðhækkanir og óvissa í kjölfar falls krónunnar eru aðalástæð-
urnar. Menn sjá fyrir allt að þriðjungs samdrátt í sölunni miðað við áætlanir.
LOFTUR
ÁGÚSTSSON
BJÖRGUN Félagar úr Slysavarnafé-
laginu Landsbjörg sóttu í gær tvo
erlenda ferðamenn sem voru í
sjálfheldu í Þverfellshorni í
hlíðum Esjunnar.
Um klukkan tvö í gær barst
Neyðarlínunni símtal frá mönn-
unum og voru björgunarsveitir þá
sendar á vettvang. Hjálmar Örn
Guðmarsson, í svæðisstjórn
björgunarsveitanna, segir að
mennirnir hafi verið þokkalega
búnir en ekki treyst sér niður
vegna mikillar hálku. Alls voru 24
björgunarsveitarmenn kallaðir
út. Fór hluti þeirra upp til
mannanna og liðsinnti þeim niður
úr sjálfheldunni og að bílum sem
óku þeim niður á bílastæði. Voru
mennirnir kaldir en ekkert amaði
að þeim að öðru leyti. Aðgerðum
lauk um klukkan hálf fimm. - ovd
Björgunarsveitir kallaðar til:
Bjargað úr sjálf-
heldu í Esjunni
VIÐ RÆTUR ESJUNNAR Göngumennirnir
höfðu samband við Neyðarlínuna og
óskuðu aðstoðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LÖGREGLUMÁL Kynferðisbrotadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu rannsakar nú meint kynferð-
isbrot rúmlega fimmtugs
karlmanns gegn tveimur dætrum
sínum.
Maðurinn var í fyrradag
úrskurðaður í gæsluvarðhald í
eina viku vegna rannsóknarinnar.
Hann er grunaður um að hafa
misnotað tvær dætur sínar,
jafnvel um nokkurt skeið. Þær
eru átta og þrettán ára.
Rannsókn kynferðisbrotadeild-
ar snýst meðal annars um það
hvort fleiri börn kunni að koma
við sögu í málinu.
- jss
Karlmaður í gæsluvarðhaldi:
Meint misnotk-
un á dætrum
SVEITARSTJÓRNIR Kópavogsbær
ætlar að taka að láni jafnvirði 4,1
milljarðs króna í erlendri mynt.
Bæjarráð hefur heimilað
Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra
að ganga frá lántökunni í erlendri
mynt sem svari til allt að 35
milljónum evra.
„Lán þetta er ætlað til endurfjár-
mögnunar á óhagstæðum lánum
bæði í íslenskum krónum og
erlendri mynt,“ segir í bókun
bæjarráðs um lántökuna. - gar
Kópavogur endurfjármagnar:
Erlent lán fyrir
fjóra milljarða
KÝPUR, AP Múr sem lokað hafði
fyrir umferð um Ledrastræti í
miðborg kýpversku höfuðborgar-
innar Nikósíu var rifinn í fyrra-
dag, en hann hafði allt frá innrás
tyrkneska hersins á eyna fyrir 34
árum verið tákn fyrir skiptingu
hennar milli Kýpur-Tyrkja og
Kýpur-Grikkja.
Eftir fögnuðinn yfir þessum
áfanga kom í gær bakslag vegna
deilu sem kom upp er kýpur-
tyrkneskir lögreglumenn fóru inn
hinn nýopnaða hluta Ledrastrætis
á hlutlausa svæðinu. Kýpur-gríski
forsetinn Dimitris Christofias
hraðaði sér heim af ráðstefnu í
Lundúnum vegna málsins.
Opnun Ledrastrætis vekur vonir
um að nú kunni að hilla undir
endursameiningu eyjarinnar. - aa
Nikósía á Kýpur:
Miðborgargata
opin eftir 34 ár
OPNUN Ledrastrætis fyrir og eftir opnun.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
0
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13
Vikur
ÞRÓUNIN 2008 Gengisvísitalan hefur hækkað um 28 prósent frá því um áramót
og krónan fallið sem því nemur. Eins og sjá má fylgdi fall í bílasölu snarpri lækk-
un krónunnar um miðjan mars.
* MV. HÁDEGI FÖSTUDAGINN 4. APRÍL HEIMILDIR: UMFERÐARSTOFA OG SEÐLABANKI ÍSLANDS
60
80
100
120
140
160
40
1 42
9
42
0
40
5
27
9 29
9 31
5
25
8 27
6
25
5 2
81
15
1
10
5*
Gengisvísitala
SALA NÝRRA BÍLA OG GENGI KRÓNUNNAR 2008
Vísitala gengisskráningar
Seldir bílar á viku
Nýr sveitarstjóri
Guðmundur Jóhannsson hefur verið
ráðinn sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit og
tekur við 1. júní af Bjarna Kristjánssyni.
Guðmundur var þjónustustjóri Símans
á Norðurlandi á árunum 1998-2006.
Guðmundur er kvæntur Evu Ingólfs-
dóttur og eiga þau fjögur börn.
EYJAFJARÐARSVEIT
STJÓRNMÁL Fari svo að Ísland nái
kjöri í öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna þarf að endurskipu-
leggja íslensku utanríkisþjónust-
una.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra sagði í samtali
við Fréttablaðið í gær að yrði
Ísland kjörið til setu í ráðinu
þyrfti hugsanlega að fjölga starfs-
mönnum utanríkisþjónustunnar.
Starfsfólki yrði mögulega fjölgað
í ráðuneytinu í Reykjavík sem og
í sendiráðum okkar í þeim ríkjum
sem hafa neitunarvald í öryggis-
ráðinu. Þá þyrfti að styrkja fasta-
nefnd Íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Kosið verður til öryggisráðsins
í október og hefst kjörtímabilið 1.
janúar 2009. Innan utanríkisráðu-
neytisins og á vettvangi ríkis-
stjórnarinnar hefur framboð
Íslands verið kynnt fyrir flestum
aðildarríkjum Sameinuðu þjóð-
anna. Hafa bæði formlegar leiðir
og persónuleg tengsl verið nýtt.
Ingibjörg Sólrún segir ómögu-
legt að segja til um möguleikana
á að Ísland nái kjöri, atkvæða-
greiðslan sé leynileg, fastafull-
trúar ríkja hjá Sameinuðu þjóð-
unum greiði atkvæði og ekki sé
hægt að taka öllum vilyrðum fyrir
atkvæðum sem gefnum. „En þetta
er vitanlega möguleiki núna, sem
það var ekki fyrir ári,“ segir Ingi-
björg Sólrún.
- bþs
Seta í öryggisráði SÞ kallar á endurskipulagningu íslensku utanríkisþjónustunnar:
Gæti þurft að fjölga starfsfólki
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR utan-
ríkisráðherra.
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
5°
9°
8°
10°
11°
11°
11°
11°
8°
12°
20°
19°
13°
10°
21°
14°
29°
13°
1 4
-5
Í DAG
5-13 m/s austast
annars hægvirði
MÁNUDAGUR
Fremur hæg
SV-læg
eða breytileg átt.
-3
-3
-2
-2
0
2
3
2
2
-2
1
1
4
6
9
10
2
2 6
5
3
-3
-3
22
3
2
3
5
HLÝNAR EITT-
HVAÐ EFTIR HELGI
Sé litið inn í næstu
vinnuviku má
greina að heldur
muni hlýna. Við
erum þó fyrst og
fremst að tala um
mánudag til mið-
vikudags og þá er
um við að tala um
að hitinn hlaupi á
bilinu 2-8 stig. Hins
vegar frystir á ný á
fi mmtudag einkum
nyrðra.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur