Fréttablaðið - 05.04.2008, Qupperneq 12
12 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 565
5.302 +0,89% Velta: 5.278 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,46 +0,81% ... Bakkavör
44,30 +0,00% ... Eimskipafélagið 24,70 +4,44% ... Exista 11,90
+3,03% ... FL Group 6,78 +1,35% ... Glitnir 17,85 +0,28% ... Ice-
landair 24,50 -0,41% ... Kaupþing 849,00 +1,19% ... Landsbankinn
30,20 -0,49% ... Marel 91,40 +0,33% ... SPRON 5,00 +6,61% ...
Straumur-Burðarás 12,45 +1,88% ... Teymi 4,32 +0,00% ... Össur
92,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
SPRON 6,61%
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 4,44%
EXISTA 3,03%
MESTA LÆKKUN
FLAGA 1,25%
LANDSBANKINN 0,49%
ICELANDAIR 0,41%
Andrés önd og
Eros í Seðlabanka
Þekkt er að í Seðlabankanum tekur fólk
störf sín mjög alvarlega, enda eru bankanum
falin mikilvæg verkefni. Þar á bæ, eins og
annars staðar, getur fólk tekið sumum
hlutum létt. Það sést meðal annars í
nafngiftum á netþjónum í bankanum.
Allir vefþjónar Seðlabankans hafa
um nokkurt skeið borið nöfn per-
sóna úr grísku goðafræðinni. Til að
mynda ber póstþjónn Seðlabankans
hið lostuga heiti Eros. Þar er einnig
að finna Seif og Aþenu. Þó
mun þar hvergi að finna
Dýonísos, svallguð þeirra Forn-
Grikkja. Svipuð nafngiftahefð
var fyrir hendi hjá Lánasýslu
ríkisins, sem nú er í Seðlabankan-
um. Þar eru þjónarnir raunar nefndir eftir
Andrési önd og félögum.
Danskir hækkar vexti
Hér hafa bank-
arnir elt hækk-
andi stýrivexti
og hækkað
vexti af
fasteignalánum.
Frændur vorir í
Danmörku bera nú
við aukinn tilkostnað
í fjármögnun starfsemi
banka þar og boða vaxtahækk-
anir, bæði á út- og innlánum.
Berlingske Tidende greina frá því að
stærstu bankar Danmerkur, Danske Bank
og Nordea, boði vaxtahækkanir
upp á allt að hálfu prósentustigi.
Breyttir vextir taka almennt
gildi 30. þessa mánaðar hjá
Danse Bank, en 5. maí hjá
Nordea.
Peningaskápurinn ...
„Í ljósi aðstæðna á fjármálamark-
aði og óvissu í efnahagsmálum
töldum við ráðlegt að setja þessar
áætlanir á ís í bili. Við verðum
jafnframt tilbúnir að endurmeta
stöðuna síðar,“ segir Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair
Group. „Þetta hefði orðið of mikil
skuldbinding við núverandi
aðstæður,“ segir hann.
Félagið greindi frá því í gær að
dótturfélögin Icelandair Cargo og
Icelease hefðu fallið frá kaupum
og leigu til tólf ára á fjórum A330-
200 fraktvélum frá Avion Airc-
raft Trading. Ákvörðunin er tekin
í samráði við Avion Aircraft, líkt
og segir í tilkynningu.
Tilkynnt var um samninginn í
fyrravor og áttu vélarnar að koma
til afhendingar á árabilinu 2010
og 2011.
Stefnt var að gríðarlegum vexti
í fraktflugi Icelandair Cargo og
stórauknum tekjum félagsins
erlendis. Afkoma frakthlutans
var undir væntingum í fyrra.
Hefði orðið af viðskiptunum
má ætla að miklar ábyrgðir og
skuldbindingar hefðu lent á herð-
um Icelandair. Hver flugvél kost-
ar um 130 milljónir Bandaríkja-
dala og má ætla að
heildarkostnaðurinn hefði orðið á
bilinu 400-500 milljónir dala, jafn-
virði hátt í 37 milljarða íslenskra
króna. - jab
BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON Forstjóri Icelandair segir að hætt hafi verið við kaup og
leigu á flugvélum vegna of mikilla skuldbindinga við núverandi aðstæður.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hætta við flugvélakaup í bili
MARKAÐSPUNKTAR
Vegna minni umsvifa á fasteignamark-
aði en Íbúðalánasjóður hafði gert ráð
fyrir hefur sjóðurinn lækkað áætlun
sína um endurfjármögnun lána um
fjórtán til sextán milljarða króna. Gert
er ráð fyrir að heildarútlán lækki um
átta til tíu milljarða, verði 49 til 55
milljarðar króna.
Greiningardeild Kaupþings telur að
lækkunarferli stýrivaxta Seðlabankans
hefjist í september, en spáir stýrivöxt-
um óbreyttum í fimmtán prósentum
á vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans
næsta fimmtudag.
Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði
samsvarar því að verðbólga verði að
jafnaði sex prósent á ári næstu sjö árin.
„Þetta jafngildir því að verðlag á Íslandi
hækki um helming til ársins 2015,“
bendir greiningardeild Landsbankans á.
Stjórn Icelandic
Group ætlar að leggja
það til á hluthafafundi
félagsins eftir hálfan
mánuð að hún fái
heimild til að afskrá
félagið úr Kauphöll
Íslands.
Í tilkynningu frá
Icelandic Group segir
að stjórn félagsins
telji það ekki hafa náð
að nýta sér þá kosti að
vera skráð félag. Við-
skipti með bréfin hafi
verið fá, verðmyndun
óskilvirk og dreifing hlutafjár
lítil og undir viðmiðum Kauphall-
arinnar.
Afkoma Icelandic Group hefur
verið undir væntingum síðustu
misseri og gengi hluta-
bréfa í félaginu fallið
um tæp 65 prósent frá
áramótum. Unnið
hefur verið að endur-
skipulagningu og hag-
ræðingu í rekstri
félagsins um nokkurt
skeið, svo sem með
útgáfa skuldabréfs
með breytirétti, að því
er segir í tilkynning-
unni.
Enn fremur segir að
í ljósi þess að skráning
í kauphöll geti verið
íþyngjandi geti það skekkt stöðu
félagsins gagnvart óskráðum
samkeppnisaðilum. Því komi
afskráning hluthöfum til góða.
- jab
FINNBOGI BALDVINSSON,
Icelandic Group
íhugar afskráningu
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík
MacBook Air.
MacBook Air er komin til landsins.
Komdu og sjáðu með eigin augum í Apple-versluninni á Laugavegi 182.
MacBook Air 1,6 GHz
13,3” hágljáa skjár
Intel Core 2 Duo
80 GB
2 GB
1280 x 800 dílar
Þráðlaust netkort (802.11n)
Bluetooth / iSight
0,4–1,94 cm þunn / 1,36 kg
5 klst. rafhlöðuending
219.990
MacBook Air 1,8 GHz
13,3” hágljáa skjár
Intel Core 2 Duo
80 GB
2 GB
1280 x 800 dílar
Þráðlaust netkort (802.11n)
Bluetooth / iSight
0,4–1,94 cm þunn / 1,36 kg
5 klst. rafhlöðuending
249.990
Fí
to
n
/
S
ÍA