Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 13
LAUGARDAGUR 5. apríl 2008 13
Verðbólga nær 18 ára hámarki í
sumar gangi eftir ný spá grein-
ingardeildar Landsbankans. Að
því gefnu að veiking krónunnar
gangi að hluta til baka er í spánni
gert ráð fyrir að verðbólga fari
hæst í ríflega 10 prósent í sumar.
„Haldist krónan áfram veik má
reikna með að verðbólgan fari í 13
prósent,“ segir þar jafnframt.
„Við gerum ráð fyrir að verð-
bólga frá upphafi til loka þessa árs
verði 8,4 prósent,“ segir í spá
bankans og gert er ráð fyrir að
verðbólgumarkmið Seðlabankans
náist um mitt ár 2009. „En í kjöl-
farið fer verðbólga þó tímabundið
hækkandi á ný.“ Gert er ráð fyrir
að vegna aukinnar verðbólgu verði
samið um nokkra viðbótarhækkun
launa við endurskoðun kjarasamn-
inga í febrúar á næsta ári.
Snarpt fall krónunnar er sagt
ráða mestu um vaxandi verð-
bólgu, en fréttir bendi til að geng-
islækkunin skili sér hratt í verð á
innfluttum vörum. Á móti kemur
að hægt hefur á fasteignamarkaði
og telur greiningardeildin að á
næstu mánuðum muni fasteigna-
verð draga úr hækkun verðbólgu-
vísitölunnar í stað þess að ýta
undir hana líkt og raunin hafi
verið síðustu misseri.
Í fráviksspá bankans er ráð fyrir
því gert að stjórnvöld grípi ekki
tímanlega til viðeigandi aðgerða
og krónan verði veik áfram. „Slík
gengisþróun þýðir mun meiri verð-
bólgu, eða 13 prósent þegar mest
lætur í sumar.“ - óká
Spá verðbólgunni í átján ára hámark
Haldist krónan veik áfram gæti hér verðbólga farið í 13 prósent, segir greiningardeild Landsbanka Íslands.
VIÐ MJÓLKURINNKAUPIN Verðbólga á
eftir að aukast fram á sumar áður en
hún hjaðnar á ný, segir í spá greiningar-
deildar Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VERÐBÓLGA INNAN ÁRS:
Spá greiningardeildar Landsbankans
2007 2008* 2009*
Vísitala neysluverðs 5,8% 8,4% 3,1%
- án húsnæðis 2,3% 10,6% 4,0%
*spá. Heimild: Greiningardeild
Landsbanka Íslands, Verðbólguspá
2008-2010, apríl 2008.
Atvinnuleysi mældist 5,1 prósent
í Bandaríkjunum í síðasta
mánuði. Þetta er 0,3 prósentu-
stiga aukning á milli mánaða og
hefur viðlíka tala ekki sést síðan
fellibylurinn Katarína olli miklu
tjóni vestanhafs í september
fyrir tveimur og hálfu ári.
Atvinnulausum fjölgaði um
áttatíu þúsund, sem er þrjátíu
þúsund fleiri en fjármálaspekúl-
antar höfðu reiknað með. Þetta
er jafnframt þriðji mánuðurinn í
röð sem störfum fækkar þar í
landi og skiptist á ýmsa geira.
Reiknað er með að störfum eigi
enn eftir að fækka á árinu og
atvinnuleysi verði 5,5 prósent í
árslok. - jab
Atvinnulausum
fjölgar vestra
SEÐLABANKINN Greining Glitnis spáir
hækkun stýrivaxta næst, en lækkunar-
ferli frá þriðja ársfjórðungi ársins þegar
vísbendingar séu fram komnar um meira
jafnvægi hagkerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gengi krónunnar verður nálægt
núverandi gildi fram að júlí sam-
kvæmt nýrri spá Glitnis. Greining
bankans gerir engu að síður ráð
fyrir töluverðum sveiflum á gengi
hennar innan ársfjórðungsins.
Einnig er spáð 50 punkta hækkun
stýrivaxta Seðlabankans á vaxta-
ákvörðunarfundi í næstu viku, en
þeir verða þá 15,5 prósent.
„Aðstæður á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum, lítil áhættulyst
innlendra sem erlendra fjárfesta,
skert aðgengi að lánsfé og þreng-
ingar á innlendum gjaldeyrisskipta-
markaði hafa stuðlað að veikingu
krónunnar að undanförnu og reikn-
um við með að þessir þættir verði
ráðandi í þróun gengis krónunnar
enn um sinn,“ segir Glitnir, en gerir
ráð fyrir að krónan styrkist á
sumarmánuðum og að gengisvísi-
talan verði nærri 135 stigum í árs-
lok. „Bandaríkjadalur í 67 krónum
og evran verði komin í 104,5 krón-
ur. Þá spáum við að gengisvísitalan
verði í kringum 126 í lok árs 2009,
dollarinn í tæpum 63 krónum og
evran í 97,5 krónum.“ - óká
Krónan svipuð
og vextir hækka
Asíska samstæðan Hutchison
Whampoa hagnaðist um 30,6 millj-
arða Hong Kong-dala (292 millj-
arða króna), í fyrra. 50 prósentum
meira ein árið áður.
Tekjur jukust um fimmtán pró-
sent milli ára, samkvæmt útreikn-
ingum Bloomberg. Mestu munar
þar um sölu á farsímarekstri
félagsins á Indlandi til fjar-
skipta risans Vodafone en þá runnu
35 milljarðar dala í vasa félagsins.
Hefði ekki komið til hennar má
reikna með tapi vegna rekstrar
þriðju kynslóðar farsímakerfis
Hutchison. Taprekstur hlutans
nam um 18 milljörðum dala.
Að sögn Bloomberg er spáð
hagnaði á seinni hluta þessa árs.
Gangi það eftir verður þetta í
fyrsta sinn í fjögur ár sem far-
símahlutinn er í plús. - jab
Hutchison bíð-
ur eftir hagnaði