Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 32
[ ]
Fyrirtækin Ísafold og Sigfús
G Sigfússon stofnuðu saman
bílaleigu sem býður hópum
og fyrirtækjum í jeppaferðir á
nýjum Land Rover-jeppum.
„Í hópferðum geta allt að sextíu og
þrír farið með á níu glænýjum
Land Rover-jeppum. Það er eng-
inn smá floti,“ segir Jón Baldur
Þorbjörnsson sem sér um að leiða
hópana í þessum jeppaferðum.
Það er því stór hópur sem getur
lagt í jeppaferð og komast sjö
manns í hvern jeppa. Bílarnir fara
saman í einni lest og eru talstöðvar
í hverjum bíl. Jepparnir eru útbún-
ir til að geta tekist á við erfiðar
aðstæður og hver jeppi er með
leiðsögutæki, kapal, skóflu og
kastara.
„Í öllum ferðum fer fyrir hópn-
um starfsmaður sem leiðir bílalest-
ina og stjórnar hópnum í gegnum
talstöð. Það er mikið öryggisatriði
og veitir öryggistilfinningu,“ segir
Jón Baldur. Þessar jeppaferðir eru
að hans sögn tilvaldar fyrir hópa
úr fyrirtækjum og einnig henta
þær vel fyrir óvissuferðir. Jón
Baldur-
bendir á
að margar ferðir séu í boði fyrir
hópa og í raun geti hópar komið
með hugmynd að ferðum sjálfir.
„Við sérsníðum hugmyndina
fyrir hópinn og þá er bara eftir að
leggja í hann. Einnig er boðið upp
á ferð sem nefnist „Frábært fund-
arhlé“ og er farin part úr degi. Í
lengri ferðum er gjarnan gist í
skálum eða á Hótel Rangá og Hótel
Heklu. Það má því segja að það sé
allur gangur á því hvert er farið.
Fólki þykir gaman að upplifa nýjar
slóðir og fá að keyra sjálft.“
Á heimasíðunni www.isafoldtra-
vel.is fá finna allar upplýsingar
um ferðirnar.
mikael@frettabladid.is
Fólk tekur þátt í ævintýrinu
Jón Baldur Þorbjörnsson leiðir hópana sem eiga þess kost að geta stýrt þessum
jeppum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Bílaþrif eru skemmtileg svona á vordögum. Ryksugið
mottur og sæti vel og bónið innréttinguna með þar til
gerðum efnum. Rennið svo í gegnum bílaþvottastöð
eða hamist með þvottakústinn.
Aukin ökuréttindi
Næsta námskeið byrjar 22. ágúst
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Meirapróf-
Nýlegir kennslubílar
Næsta námskeið hefst
9.ap íl
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR
SÍMI 440 1200
WWW.N1.IS
Hjá N1 finnur þú landsins mesta úrval af bílavarahlutum frá
viðurkenndum framleiðendum. Í verslunum okkar um land
allt er fagfólk reiðubúið að veita þér alla þá aðstoð og ráðgjöf
sem þú þarfnast. N1 – Meira í leiðinni.