Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 44
● heimili&hönnun
„Við liggjum oft í faðmlögum og gerum ekki neitt,“ segja Steinunn og Brynjar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Steinunn og Brynjar segjast
vera í hálfgerðu millibilsástandi
þar sem þau eru að gera upp ný-
keypta íbúð í Kópavogi. „Fram-
kvæmdirnar ganga vel en það
er mikið eftir. Þetta er ekta íbúð
fyrir ungt fólk og við ætlum að
gera hana flotta. Síðast bjugg-
um við í hundrað ára gömlu húsi
í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem
hlutirnir voru gamaldags,“ út-
skýra Steinunn og Brynjar og
bæta við að sú nýja verði með
öðru sniði. „Við erum óhrædd
við að gera hlutina eftir okkar
höfði og finnst gaman að blanda
svolítið saman, til dæmis grófu
og nýju.“
Skötuhjúin kunna vel við sig
í Kópavogi þar sem þau hafa út-
sýni af svölunum yfir hafið og
Perluna auk þess sem stutt er í
Nauthólsvíkina. „Við erum dug-
leg að fara í göngutúra og göng-
um oft Esjuna og reynum að
taka hana á góðum tíma,“ segir
Brynjar og bætir við að þau
séu bæði keppnisfólk. „Lífið er
keppni og við reynum alltaf að
vinna, annars væri bara leiðin-
legt.“
Þau eru dugleg að bjóða fólki
heim en segjast ekkert dugleg að
elda fyrir gestina. Það sé helst
þegar vel viðri að þau grilli en
yfirleitt bjóði þau vinum heim í
spjall og hvítvínsglas og stundum
sé gripið í spil. „Við erum bæði
rosalega mikil kúrudýr og ef við
getum þá liggjum við bara í faðm-
lögum einhvers staðar,“ segir
Steinunn.
„Við erum mikið í að gera
ekki neitt, sem er mjög mikil-
vægt í öllum samböndum. Stein-
unn er sérstaklega mikið fyrir að
vera lengi í baði,“ segir Brynjar
hlæjandi.
Spurð um hvernig heimilislíf-
ið gangi fyrir sig segja þau gald-
urinn felast í því að vera ósam-
mála. „Við erum frekar ósammála
en á móti kemur að við vinnum vel
saman. Við endum til dæmis alltaf
með betri útkomu en við lögðum
upp með, eftir að hafa rætt málin,
og erum bara ánægð með að vera
ekki sammála um allt.“ - rat
Keppnisfólk í Kópavogi
● Steinunn Garðarsdóttir og Brynjar Ingólfsson eru að gera upp íbúð við Kársnesbraut í
Kópavogi auk þess að taka þátt í sjónvarpsþáttunum Hæðin. Þau búa því í tveimur ófull-
gerðum íbúðum.
Steinunn og Brynjar unnu fyrir koníaks-
stofuna í síðasta þætti af Hæðinni.
Nýja íbúðin á Kársnesbrautinni er stæl-
leg og flott fyrir ungt par.
5. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR8