Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 72
44 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR Á morgun kl. 16 munu nemendur á framhalds- stigi í Söngskólanum Domus Vox standa fyrir söngskemmtun í anda Mozarts í húsnæði skól- ans á Laugavegi 116. Píanóleikari á tónleikun- um er Antonía Hevesí, en dagskráin er sett saman af söngkonunni og kenn- ara skólans, Ingu J. Back- man. Þá lýkur áttunda starfsári Söngskólans Domus Vox, en hann hefur starfað undir stjórn Margrétar J. Pálmadótt- ur frá upphafi. Þetta er annar vetur skólans í nýju húsnæði hans á Laugavegi 116. Um þessar mundir eru nemendur skólans ásamt kórfélögum um tvö hundruð og sjötíu talsins. Þrír kórar starfa þar einnig undir sama þaki, kvennakórarnir Vox fem- inae og Gospelsystur Reykjavíkur og Stúlkna- kór Reykjavíkur. Nem- endur og kórfélagar hafa ærna ástæðu til að fagna á morgun en þá tekur skólinn við myndarlegri gjöf, 150 nýjum stólum frá einum nemanda skól- ans. Því þótt konur vilji helst standa þegar þær syngja hátt er gott að fá sér sæti á milli. - pbb Domus Vox SÖNGLIST Margrét J. Pálmadóttir, kórstýra og frumkvöðull, er sprautan á bak við starf Sönghússins Domus Vox. Listahátíðin Sequences 2008 hefst laugardaginn 11. október og lýkur föstudaginn 17. október. Hátíðin verður haldin í þriðja sinn í haust og skarast við Airwaves sem verð- ur á komandi hausti haldin dag- ana 15.-19. október. Myndlist og tónlist munu því takast í hendur í tvo sólarhringa á komandi hausti. Framkvæmdastjóri Sequences- hátíðarinnar er Tinna Guðmunds- dóttir og listrænn stjórnandi Kristín Björk Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Kira Kira. Sequences er sjálfstæð listahá- tíð sem haldin er árlega. Hún var haldin í fyrsta skipti í Reykjavík árið 2006. Stofnendur hátíðarinn- ar eru Nýlistasafnið, Kling og Bang, Gallerí Dvergur, Bananan- anas og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Í aðalstjórn Sequences sitja: Dr. Christian Schoen, Nína Magnúsdóttir, Birta Guðjónsdóttir og Daníel Björns- son. Tilgangur Sequences er að vera leiðandi í að sýna framúrstefnu- lega myndlist sem einblínir á óhefðbundin rými. Aðaláhersla er lögð á tímatengda list, s.s. gjörn- inga, myndbandslist, hljóðlist, tón- list, hönnun og samtvinnun þess- ara miðla. Má vænta að ráðning Kiru Kiru í stöðu listræns stjórn- anda hátíðarinnar auki enn hlut tónlistar í dagskrá hátíðarinnar. Sequences er afsprengi öflugs myndlistarumhverfis á Íslandi og er fyrsta listahátíðin sem sett hefur verið á laggirnar hér á landi sem einblínir eingöngu á mynd- list. Yfir tvö hundruð listamenn hafa tekið þátt í hátíðinni sem gefur ungum íslenskum myndlist- armönnum tækifæri til að láta ljós sitt skína og á sama tíma að kynn- ast listsköpun erlendra myndlist- armanna sem vinna með sömu miðla. Sýningarstaðir hafa verið af mörgum toga og hefur hátíðin teygt anga sína um alla Reykjavík. Ásamt listamannareknum gallerí- um borgarinnar hafa stærri söfn og stofnanir tekið þátt í hátíðinni. Af þeim má nefna Listasafn Reykjavíkur, i8, Safn, Turpentine og Þjóðminjasafnið. Listamenn hátíðarinnar hafa einnig sýnt í óhefðbundnum sýningarrýmunum eins og í verslunum, almennings- rýmum og jafnvel á textavarpinu. Þetta hefur opnað fyrir margar fjölbreyttar tengingar milli lista- verksins og áhorfandans. Fyrir Sequences 2008 hefur tekið til starfa listræn stjórn sem er samansett af átta manns með víðtæka reynslu úr menningar- geiranum. Stjórnin mun hafa umsjón með dagskrá Sequences í ár. Í henni sitja Huginn Þór Ara- son, Birta Guðjónsdóttir, Rebekka Silvía Ragnarsdóttir, Goddur, Katrín Ólína Pétursdóttir, Kristín Björk Kristjánsdóttir, Bjarki Bragason og Andrea Maack. Hefur listræn stjórn hátíðarinnar í haust valið fjörutíu listamenn til þess að skila inn tillögum að verki fyrir hátíðina. Tillögurnar verða síðan teknar til yfirferðar og ákveðin verk valin út frá listrænu inntaki og samspili við umhverfið. Með þessu ferli ætlar stjórnin að leggja áherslu á gæði umfram magn og efla hátíðina sem metnaðarfullt listrænt og rúmfrekt afl. pbb@frettabladid.is Sequences í haust MYNDLIST Kira Kira, eða Kristín Björk Kristjánsdóttir, höfundur á ýmsum sviðum lista, er listrænn stjórnandi Sequences á komandi hausti. Verkið Sjöund verður opinberað á Torginu í Þjóðminjasafni Íslands í dag kl. 14. Verkið er eftir Gunnar Hersvein rithöfund og Sóleyju Stefánsdóttur hönnuð og felst í ljóðaumslagi og sjö grafískum ljóðamyndum. Með Sjöund er gerð tilraun til að sleppa ljóðinu lausu úr ljóðabókinni og fólk fær tæki- færi til að senda ljóð hvert til ann- ars. Gunnar Hersveinn les upp ljóð við þetta tilefni. Umslög geyma oftast bréf og á þau er ritað nafn og heimilisfang og frímerki er límt í hægra horn. Sjöund Gunnars Hersveins er umslag sem uppfyllir þessi skil- yrði, en er um leið einnig bréf. Móttakandi opnar umslagið, les nokkrar línur frá sendanda og ljóðabókina. Gunnar Hersveinn er hugvís- indamaður sem starfar við miðlun og sköpun sem birtist í ritstörfum, kennslu og blaðamennsku hjá Reykjavíkurborg, Lesbók, Við- skiptablaðinu, Listaháskóla Íslands og JPV útgáfu. Sjöund er fjórða ljóðabók höfundar. Sóley Stefánsdóttir er hönnuður og hug- vísindakona sem hefur starfað við grafíska hönnun og rannsóknir innan hönnunar og myndrænnar miðlunar. Í verkinu Sjöund tekst hún, í samvinnu við Gunnar Her- svein, á við að opna möguleika ljóðlistar út fyrir hinar hefð- bundnu ljóðabækur. Ljóð og lógó eru af sama meiði og hér gerir Sóley tilraun til að tefla þessum systkinum fram sem einni heild. Ljóð móta heim úr mörgum áttum, rétt eins og myndræn framsetn- ing gerir ætíð. - vþ Ljóðið leikur lausum hala GUNNAR HERSVEINN Flytur ljóð í Þjóð- minjasafninu í dag í tilefni af sýningu á verkinu Sjöund. Sýning á bókverkum sem börnin á elstu deild leikskólans Sæborg unnu í vetur verður opnuð í bóka- versluninni Útúrdúr á Njálsgötu 14 í dag kl. 15. Börnin fengu frjálsar hendur við gerð bókverkanna og spanna þau því breitt svið viðfangsefna. Á meðal þess sem sjá má á sýn- ingunni eru því „sjóræningja- bækur“, „prinsessubækur“, „jólasöngvabækur“, „ljósmynda- bækur“ og „strumpasögur“. Börnin sáu sjálf um textagerð og myndskreytingu bókanna og er því hver bók persónulegt og ein- stakt listaverk. Sýningin stendur til 12. apríl næstkomandi. -vþ Bókverk leikskólabarna FRJÁLSAR HENDUR Eitt af bókverkun- um sem sjá má á sýningunni í Útúrdúr. FÖSTUD. 4. APRÍL KL. 20 OG LAUG. 5. APRÍL KL. 16 OG KL. 20 SÖKNUÐUR - TÓNLEIKAR Í MINNINGU VILHJÁLMS VILHJÁLMSSONAR. UPPSELT! SUNNUD. 6. APRÍL KL. 20 TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR MARGRÉT HRAFNSDÓTTIR OG HRÖNN ÞRÁINSDÓTTIR. FRUMRAUN Í TÍBRÁ! ÞRIÐJUD. 8. APRÍL KL. 20 SÖNGUR, FIÐLA, PÍANÓ BRAGI BERGÞÓRSSON, ELFA RÚN OG KRISTINN ÖRN KRISTINSSON. TÓNSNILLINGAR MORGUNDAGSINS! MIÐVIKUD. 9. APRÍL KL. 20 KLARINETT OG PÍANÓ VÍÐIR SMÁRI PETERSEN. BURTFARARPRÓF FRÁ TR! FIMMTUD. 10. APRÍL KL. 20 SÖNGTÓNLEIKAR HÖRN HRAFNSDÓTTIR OG ANTONÍA HEVESI. 30. mars - uppselt 3. april 4. april 10. april 11. april 17. april 18. april 23. april 24. april NÝ OG FÁRÁNLEGA SKEMMTILEG SÝNING UM FJÁRMÁL ÍSLENDINGA! D Y N A M O R EY K JA V IK Sýnt í Salnum Kópavogi Miðasala hjá Salnum í síma 5700 400, á salurinn.is og midi.is. Miðaverð 2000 kr. Helmingsafsláttur fyrir viðskiptavini Byrs ef keypt er í miðasölunni í Salnum. ATH! Takmarkaður sýningafjöldi. D Y N A M O R EY K JA V IK Þri 15/4 kl. 20 Mið 16/4 kl. 20 Fös 18/4 kl. 21 Lau 19/4 kl. 19 Lau 19/4 kl. 21 Fös 2/5 kl. 19 Fös 2/5 kl. 21 Lau 3/5 kl. 20 Lau 3/5 kl. 22 Fös 16/5 kl. 19 Fös 16/5 kl. 21 Lau 17/5 kl. 19 Lau 17/5 kl. 21 Forsýning - uppselt Forsýning - uppselt Frumsýning - uppselt Uppselt S Ý N I N G A R Fyrst var það Hellisbúinn, síðan Pabbinn og nú er það HVERS VIRÐI ER ÉG? Óborganlega fyndin sýning Bjarna Hauks Þórssonar um fjármál Íslendinga. Frábær sýning í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.