Fréttablaðið - 05.04.2008, Síða 74

Fréttablaðið - 05.04.2008, Síða 74
46 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Vor í Kaupmannahöfn! Come2 Scandinavia er með tvær íbúðir í miðborg Kaup- mannahafnar. Einungis 15mín gangur að Ráðhústorgi. Þetta er frábær og ódýr lausn fyrir hópa og fjölskyldur sem vilja hafa það gott yfir helgi eða viku í Köben. Erum einnig með góð verð á bílaleigubílum. Nánari upplýsingar á www.come2scandinavia.com Sími: +45 3325 6425 • Netfang: info@come2scandinavia.com A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið OKKUR LANGAR Í … töff hálsklút frá Dead sem er möst við blazerjakka vorsins frá Nonnabúð, Laugavegi. Eitt finnst mér oft gleymast þegar kemur að fyrirlestrum um góðan stíl. Það er endalaust hægt að predika í blöðum um hvernig á að klæða sig smekklega og hvernig á að fylgja nýjustu tískustraumum (án þess þó að reyna um of). En hvað er stíll ef maður kann ekki góða siði? Hvað er það eiginlega með þessa ágætu þjóð að þurfa alltaf að troða sér fram fyrir alla, biðja aldrei kurteislega um nokkurn hlut, þakka ekki fyrir sig, né sýna neitt sem ber vott af siðmenningu og herramennsku? Nú er ég alls ekki týpan sem ætlast til þess að karlmenn borgi fyrir mig kvöldverð né opni fyrir mér dyr, en hér í borg er vaninn frekar sá að hurðinni sé skellt, allhranalega, beint í andlitið á mér. Börn sem ég þekki ekkert eru gjörn á að ávarpa mig með þjósti og frekju og nota aðeins boðhátt. „Gefðu mér að borða, ég er svöng,“ er dæmi um slíka setninganotkun en þegar ég var lítil var manni kennt að biðja pent og kurteislega. Þá bar maður virðingu fyrir fullorðnu fólki og var bara frekar feiminn við það. Núna er eðlilegt að skipa manni fyrir eða ræða um hversu ömurlegan smekk maður hafi á sjónvarpstækjum. Ljótur orðaforði hjá hvaða aldurshópi sem er fer líka óstjórnlega í taugarnar á mér, hvort sem það eru karlmenn, konur eða börn, og ég vildi að fleiri væru meðvitaðir um hversu mikill sjarmi er falinn í því að nota íslenskuna rétt. Á skjánum segja okkar ágætu sjón- varps„stjörnur“ hluti eins og ÉG VILL í stað ég vil og STÆÐSTA húsið í stað þess stærsta og svo þjást afar margir af þústarveik- inni eins og ég kalla hana. Þið vitið, þú veist, þú veist í öðru hvoru orði. Annað sem mér finnst að ætti að skrifa bók um er endalaus notkun tyggigúmmís á landinu. Wrigley‘s hlýtur að stórgræða á okkur miðað við tyggjóklessurnar sem skreyta götur miðborgarinnar. Hættum að agnúast út í graffarana og sektum fólk fyrir að henda tyggjói á gangstéttina. Svo er varla hægt að tala við afgreiðslumann- eskju í búð nema hún tali í gegnum tyggjójapl. Meira að segja ansi fullorðnar konur láta smella í tyggjói við furðulegustu tækifæri: í boðum, á hárgreiðslustofum eða jafnvel í símann þegar þær tala við fólk. Hefur enginn tekið eftir því að tyggjótyggerí setur svona undarlega tómlegan svip á andlitið, rétt eins og kýr á beit? Svo, að síðustu, er bara nokkuð sem er svona almenn ókurteisi, þegar fólk yfirheyrir mann um fáránlegustu hluti eða lætur hvað sem er detta út úr sér. Fólk hittir kannski bekkjarfélaga sína eftir tíu ár og segir: „Nei, ég þekkti þig ekki aftur, þú varst einu sinni svo flott,“ eða „Þú ættir nú ekki að borða franskar kartöflur í þinni vigt,“ og þar fram eftir götunum. Svo ég tali nú ekki um liðið sem virðist hafa áhyggjur af giftingum og barneigum annarra, svo miklar að þetta er það eina sem það spyr um. „Manners before morals,“ sagði snillingurinn Oscar Wilde í Lady Windermere‘s Fan. Ég geng nú ekki svo langt að segja að kurteisi sé framar siðgæði, en kurteisi fegrar og hún kostar jú ekki neitt. gullfallega og gyllta ball- erínuskó frá Taryn Rose. Fást hjá Þráni skóara, Vegamótastíg. > TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR Prada-stuttmynd gerir lukku Ítalski hönnuðurinn Miuccia Prada gerði stuttmynd sem fylgir vor- og sumar- línu hennar eftir og nefnist „Trembled Blossoms“ (titrandi blómstur). Eftir að hafa vakið mikla hrifningu í Los Angel- es fyrir skömmu var hún sýnd á ný í Tókýó. Stuttmyndin sýnir fiðrildi breytast í sólgleraugu á undraverðan hátt. Öllum helstu stórstjörnum Japans var boðið á sýning- una og svo í veglega veislu í kjölfarið í Aoyama Epicenter. Meðal þekktra andlita voru leikkonurnar Ayumi Ito og Maki Sakai og Babel-stjarn- an Rinko Kikuchi, allar að sjálfsögðu klæddar í nýjustu Prada-línuna. svöl „old-stock“ Porsche sólgler- augu frá Nonnabúð, Laugavegi. STÍLHREINT Smart grá kápa með svörtum brydding- um við há leðurstígvel frá Etro. KÓSAKKI Falleg hvít skyrta með víðum ermum í rússnesk- um stíl frá Gucci. Kurteisi ofar öllu AÐSNIÐIÐ Falleg flau- elsföt með rússnesku hermanna- ívafi frá Gucci fyrir haust og vetur 2008. Ítalskir hönnuðir sóttu óspart innblástur til hermennsku fyrir næsta haust og vetur. Herklæði sáust í ýmsum myndum, allt frá spælum á öxlum, orðum og gylltum hnöppum hjá Moschino yfir í rússneskan kósakkastíl hjá Gucci. Mikilvægt er að ná sér í fallega sniðinn hermannalegan jakka til að nota við aðsniðnar buxur eða síð pils. amb@frettabladid.is HERNÁM Á TÍSKUPÖLLUNUM STRÍÐSHRJÁÐ Dásamlegur hvítur hermannajakki við svartar buxur og kósakkaskyrtu hjá Gucci. ALKLÆÐNAÐUR Fyrirsætan Freja Beha Ericssen lítur út eins og banda- rískur flugher- maður á tískupalli Moschino fyrir haust og vetur 2008. HERMANNARAUTT Sláandi fögur eldrauð kápa í her- mannastíl frá Gucci.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.