Fréttablaðið - 06.04.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
SUNNUDAGUR
Sími: 512 50006. apríl 2008 — 93. tölublað — 8. árgangur
Minna sælgæti og ódýrara vín
Nanna Rögnvaldardóttir og Sigmar Guðmundsson
ræða um verkföll, aprílgöbb og sitthvað fleira.
SÖGULEGUR FUNDUR
Tímamótaákvarð-
anir voru teknar
á fundi leiðtoga
Atlantshafsbanda-
lagsríkja í
Búkarest.
UTANRÍK-
IS MÁL 16
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
12
Áframhaldandi blíða Veðrið í
dag er áframhald á blíðunni í gær,
bjartviðri um allt land, hægur vind-
ur og hiti yfir frostmarki sunnan- og
vestanlands en rétt fyrir neðan
frostmark norðan- og austantil.
-0
-1
4 2
2
MENNING Málerkið Lovescape, eftir
Guðmund Guðmundsson, Erró, var
í gærkvöldi slegið á 300 þúsund
evrur eða 35 milljónir íslenskra
króna hjá uppboðsskrifstofunni
Cornette de Saint Cyr í París.
Love scape, sem er frá árunum
1972-74, var metið á bilinu 300-400
þúsund evrur og var eitt verðmæt-
asta verkið á uppboðinu. Verkið var
á sama verðbili og tvö léreftsþrykk
eftir Andy Warhol og olíumynd
eftir Anselm Kiefer.
Á uppboðsverðið leggst tíu pró-
senta uppboðsgjald og tæplega tólf
prósenta skattur. Kaupandinn mun
því reiða af hendi 369.468 evrur
þegar upp er staðið, eða tæpar 43
miljónir íslenskra króna.
Verðið sem gefið var fyrir Love-
scape er mun lægra en hæsta verð
sem til þessa hefur verið greitt
fyrir verk eftir Erró frá sama tíma-
bili. Verkið Comicscape var selt á
720 þúsund evrur á uppboði hjá
Christies í desember eða nær 84
milljónir íslenskra króna á núver-
andi gengi.
Félagar Errós sem tilheyra hópi
„nonfigurative“-málaranna áttu
margir verk á uppboðinu í gær:
Klasen, Monory og Adami. Verk
hópsins njóta nú mikillar athygli í
París vegna stórsýningar á Grand
Palais sem opnar hinn 16. apríl en
hún er helguð þeim. Þá stendur enn
stórsýning í Zürich um evrópsku
popplistina sem vakið hefur athygli
og lýkur um miðjan maí. Þar er
Erró einnig í forsæti. - pbb
Málverkið Lovescape seldist á 35 milljónir hjá uppboðsskrifstofu í París:
Vonbrigði með verð á Erró
HEILBRIGÐISMÁL Skipulag læknisþjónustu á
Íslandi er vægast sagt tilviljanakennt. Skil-
greina þarf betur hlutverk sjúkrahúsa,
heilsugæsla og sérfræðilækna. Slíkt myndi
lækka útgjöld til muna. Þetta segir Runólfur
Pálsson, formaður Félags íslenskra lyflækna.
Runólfur segir langstærsta verkefni heil-
brigðisþjónustunnar vera meðferð langvinnra
sjúkdóma. „Því er ekkert stjórnað hvar sjúk-
lingar með langvinna sjúkdóma, einn eða
fleiri, njóta þjónustu, hvar þeir eru í eftirliti
og hvar tekin er ákvörðun um þeirra með-
ferð,“ segir hann.
Í nýjasta hefti Læknablaðsins segir hann
meðferð slíkra sjúkdóma afar krefjandi við-
fangsefni bæði hvað varðar kostnað og starfs-
krafta. Þrátt fyrir það hafi málið ekki verið
tekið föstum tökum.
„Alvarlegustu tilfellin eiga heima á göngu-
deildum Landspítalans þar sem er greiður
aðgangur að flókinni þjónustu en léttari tilfell-
in hjá heilsugæslunni sem er ódýrasti valkost-
urinn, tilfellin sem falla þarna á milli ættu svo
að vera á hendi sérfræðilækna. Nú er staðan
ekki þannig,“ segir hann. Í alltof mörgum til-
fellum fari fólk fram hjá heilsugæslulæknum
og fái þjónustu annarra sérfræðilækna, jafn-
vel árum saman þótt þess sé ekki þörf og hafi í
för með sér meiri kostnað fyrir samfélagið. Þá
hafi skortur á heimilislæknum ýtt enn frekar
undir þessa þróun.
Með frekari skilgreiningu á því hvaða sjúk-
dómar og á hvaða stigi geti verið á hendi hvers
hluta innan heilbrigðiskerfsins mætti létta
álag á bráðaþjónustu sjúkrahúsanna. Í flestum
tilfellum ættu heilsugæslulæknar að hafa yfir-
sýn yfir málefni þeirra sem þjást af langvinn-
um sjúkdómum en til þess þurfi heimilislækn-
ar að hafa greiðan aðgang að upplýsingum um
sjúklinga sína þegar þeir fá þjónustu annars
staðar. Víða erlendis séu þessir hlutir í mun
betri farvegi en hér er og byggist það á mikilli
samvinnu lækna innan og utan sjúkrahúsa.
Hérlendis sé veruleg tregða á þeim samskipt-
um og úr því verði að bæta.
Samskiptaleysi þessara þriggja grunnein-
inga heilbrigðiskerfisins valdi því miður því að
algengt sé að enginn hafi heildaryfirsýn á
lyfjameðferð sjúklinga. Lyfjagagnagrunnur og
rafrænar lyfjaávísanir séu gott framtak í þeim
efnum en hann ítrekar að auk þess þurfi ávallt
að skilgreina hver sé umsjónarlæknir sjúk-
lings með langvinnan sjúkdóm og að honum sé
ávallt tilkynnt um nýjar lyfjaávísanir. - kdk
Samskiptaleysi lækna kemur
niður á þjónustu við sjúklinga
Algengt er að samskiptaleysi milli lækna sjúkrahúsa, sérfræðilækna og lækna á heilsugæslustöðvum hafi
í för með sér að enginn hafi yfirsýn yfir lyfjagjafir sjúklinga. Því er ekki stjórnað hvar sjúklingar með
langvinna sjúkdóma njóta þjónustu eða eftirlits. Þetta segir formaður Félags íslenskra lyflækna.
ÚTIVIST „Það eru mörg ár síðan
aðstæður hafa verið svona
frábærar,“ segir Einar Bjarna-
son hjá skíðasvæðunum í
Bláfjöllum. „Hér er allt á kafi í
snjó, sól, logn og frost.“
Um tvö þúsund manns voru á
skíðum í Bláfjöllum í gær en að
sögn Einars getur svæðið vel
tekið á móti fimm þúsund
manns.
Um ellefu hundruð manns
voru í Hlíðarfjalli í gær þar sem
fram fer unglingameistaramót
Íslands á skíðum. „Að mínu mati
er þetta besti skíðadagurinn í
vetur,“ segir Kristján Baldurs-
son skíðakennari. Mjög gott
veður var í Hlíðarfjalli, sól og
blíða.
Flest skíðasvæði landsins eru
opin í dag. Í Bláfjöllum og
Hlíðarfjalli opnar klukkan tíu og
verður opið fram eftir degi. - ovd
Besti skíðadagurinn í vetur:
Skíðafæri með
allra besta móti
VEÐRIÐ Í DAG
KYNÞOKKAFYLLST
Hornamennirnir
eru heitastir í N1-
deildunum.
SPORT FYLGIR Í DAG
LOVESCAPE Verk Errós fór á 300 þúsund
evrur eða um 35 milljónir íslenskra
króna. FRÉTTABLAÐIÐ/GREGORY GERAULT
MEIRI HÁTTAR SKÍÐAFÆRI Um tvö þúsund manns voru í Bláfjöllum í gær og um ellefu hundruð í Hlíðarfjalli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rökstólar 18